blaðið - 17.11.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGV'í
blaðiö
EMBER 2006
,Viö erum ekki hrokafullir. Viö höld
um því bara fram aö viö séum
besta hljómsveit í heiminum."
Guns N Roses a DVD
Axl Rose og felagar i Guns N’ Roses aforma ao gefa út DVD-
disk í febrúar á næsta ári. Diskurinn mun innihalda tónleika
. sveitarinnar í Chicago í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári.
j Engar fréttir hafa borist af plötu sveitarinnar, Chinese
I Democracy, en ólíklegt er að hún komi út á árinu.
Noel Gailagher, um hljómsveitina Oasis
John Wayne Gacy ]r. er eitt viðfangsefna Sufjan Stevens
Fallegt
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Sufjan Stevens heldur tónleika í
Fríkirkjunni i Reykjavík í kvöld
og á morgun. Stevens á að baki sex
breiðskífur, en kappinn hyggst gefa
út jólaplötu í desember.
Stevens hefur lýst yfir að hann
hyggist gefa út plötu um öll fylki
Bandaríkjanna. Hann hefur þegar
gefið út tvær sem falla undir þann
flokk, um Michigan og Illinois. Sú
síðarnefnda kom út á síðasta ári og
þótti með allra bestu plötum ársins.
Undirritaður er sammála öllu því
hóli sem platan hefur fengið, sem
er ekki litið. Eitt laganna er þó eft-
irminnilegra en hin. Lagið fjallar
um raðmorðingjann John Wayne
Gacy jr. og heitir eftir honum. Gacy
þessi er í hópi viðurstyggilegustu
raðmorðingja samtímans. Hann
misnotaði og myrti 33 drengi og
gróf undir gólffjölunum heima hjá
sér. Þegar upp komst um morðin
var John Wayne Gacy jr. dæmdur
til dauða en hann sýndi aldrei iðr-
un vegna gjörða sinna.
Raðmorðingjar eru ekJd óvin-
sælt viðfangsefni í tónlistarsköp-
un. Lög eins og Midnight Rambler
með Rolling Stones, Stalker Song
með Danzig, Jack The Ripper með
Morrissey og 213 með Slayer fjalla
öll um þekkta fjöldamorðingja.
Munurinn á þessum lögum og lagi
Stevens er þó mikill. Sufjan Ste-
vens tekur afskaplega mannúðlega
á John Wayne Gacy jr. og lagið er
ótrúlega fallegt, með léttu gítarp-
lokki og fallegu píanóstefi. Aðstand-
endur fórnarlamba Gacy gætu án
efa misskilið lagið og tekið því sem
svo að Stevens sé að hampa morð-
Tónleika Sufjans Stevens um
helgina er beðið með mikilli
eftirvæntinau innan tónlistar-
bransans. Ifyrstu var
búist við að kappinn
mætti ásamt einum
gítarleikara en nú
hefur heyrst að tíu
manna hljómsveit sé
með honum í för. Það gefur
vissulega góð fyrirheit fyrir
tónleikana þar sem útsetningar
laga síðustu platna hafa verið
hlaðnar alls kyns hljóðfærum
sem spennandi verður að hlýða
á. Upphitun fyrir Sufjan verður í
höndum sveitar innan sveitar-
innar sem spilar með honum.
Eins og komið hefur fram var
tónleikum kvöldsins flýtt til
18.00 en Sufjan Stevens vill alls
ekki missa af tónleikum Sykur-
molanna seinna í kvöld.
Ekki er minni spenna fyrir
tónleikum Sykurmolanna í
kvöld en Ijóst er að
tónleikarnir eru einir
af mestu viðburðum
ársins. Það er ekki
nóg með að allir upp-
runalegu meðlimir Syk-
urmolanna stígi á svið í kvöld
heldur hafa þeir hóað í rótara,
hljóðmenn og aðra starfsmenn
sem unnu með sveitinni á árum
áður. Það er því Ijóst að gamla
Sykurmolastemningin verður
heldur betur fönguð í kvöld.
Islendingar eru ekki einir um
að vera spenntir fyrir Sykurmol-
unum í kvöld. Pakka-
ferðir Flugleiða sem
seldar voru erlendis
og innihéldu miða
á tónleikana voru
mjög vinsælar og nú
er Ijóst að um 800 manns koma
utan frá á tónleikana. í heildina
búast aðstandendur við að yfir
1000 útlendingar láti sjá sig.
ingjanum með svo fallegu lagi, en
svo er ekki.
Sufjan Stevens skoðar hin hræði-
legu morð sem John Wayne Gacy
jr. framdi ásamt því að skoða hvað
það er sem gæti fengið einhvern til
að gera slíka hluti. Þetta gerir hann
snilldarlega. Einlægnin í söngnum
færir mann á hrollvekjandi hátt á
staðina þar sem Gacy framdi morð-
in en inni á milli segir Stevens
manni frá hversu elskaður Gacy
var í samfélaginu. Hann lifði jú tvö-
földu lífi, annars vegar virtur og
harðduglegur viðskiptamaður sem
klæddi sig upp sem trúður fyrir
börn og hins vegar hræðilegur rað-
morðingi sem skildi eftir sig 9 til 20
ára fórnarlömb. Stevens hefði auð-
veldlega getað klúðrað laginu og
móðgað þær fjölmörgu sálir sem
Gacy særði. Honum tekst þó að
klúðra engu og segir sorglega sögu
af manni sem framdi voðaverk.
í lok lagsins raular Stevens línu
sem íslenskast einhvern veginn
þannig: „Og þegar ég haga mér sem
best / er ég í raun eins og hann.“
Línan segir okkur að allir menn
eru færir um voðaverk. Það eru
bara ekki allir menn eins og John
Wayne Gacy jr.
Samdi magnað lag um
raðmoröingjann John
Wayne Gacy jr.
lag um raðmorðingja
Hljóofæraverslunin Rín ehf,
BRAUTARHOLT.2 • WWW.RIN.IS
Púað á Jackson
Konungur poppsins, Michael
Jackson, sneri aftur á svið á Heims-
tónlistarverðlaunahátíðinni í Lond-
on á miðvikudag, en náði aðeins að
stama út úr sér nokkrum linum í
lagi sínu We Are The World.
Jackson var mættur á hátíðina
til að taka á móti Demantsverðlaun-
unum sem veitt eru listamönnum
sem selja fleiri en 100 milljón plöt-
ur. En það sem var auglýst sem
mögnuð endurkoma féll um sjálft
sig. Jackson steig á svið ásamt kór
til að syngja lagið We Are The
World, sem hann samdi ásamt Li-
onel Richie árið 1985, en náði harla
lítið að syngja, klikkaði á háu nót-
unum og fékk í staðinn pú frá ósátt-
um áhorfendum.
í viðbót við Demantsverðlaunin
fékk Jackson viðurkenningu frá
Heimsmetabók Guinnes þar sem
plata hans, Thriller, er mest selda
plata allra tíma. I ræðu sinni þakk-
aði hann fjölskyldu og vinum og
bætti við: „Ég er mjög þakklátur
fyrir þessi verðlaun. Draumur
minn var að Thriller yrði mest
selda plata allra tíma og ég þakka
guði fyrir að það rættist,"
Hulduplötusnúðurinn DJ@
mundo hitar upp fyrir Sykur-
molana í kvöld ásamt
•hljómsveitunum Rass
og Múm. Mikil leynd
I hvílir yfir hver þessi
DJ@mundo er en
ýmsir telja sig vera
búna áð ráða gátuna.
Margir telja að hér sé á ferð
Einar Örn sjálfur á meðan enn
aðrir telja að hin eina sanna
Björk sé á bak við nafnið.
Þegar rýnt er í nafnið kemur í
Ijós að „mundo“ þýðir „heimur"
á spænsku og ©-rnerkið fyrir
framan gæti allt eins táknað
nafnið „Atli“. Þá hlýtur að liggja
í augum uppi að DJ@mundo
sé hið virta tónskáld Atli Heimir
Sveinsson. Mjög langsótt en
góð ágiskun þó.
Komandi helgi verður algjör
veisla fyrir tónlistaráhug-
menn, en ekki nóg
með að Sykurmol-
arnir og Sufjan
Stevens troði upp
heldur mun hljóm-
sveitin Shadow Parade
halda útgáfutónleika sína í Tjarn-
arbiói á laugardag klukkan 22.
Sveitin gaf nýlega út plötuna Du-
bious Intentions sem inniheldur
meðal annars lagið Dead man’s
hand sem notið hefurtöluverðra
vinsælda á útvarpsstöðvum.
Ásamt Shadow Parade kemur
fram hinn bráðsnjalli Pétur Ben.