Bændablaðið - 12.04.2005, Side 1
Auglýsingasíminn er 563 0300
Netfang augl@bondi.is
Næsta blað kemur
út 26. apríl
Upplag Bændablaðsins
14.141
Þriðjudagur 12. apríl 2005
7. tölublað 11. árgangur
Blað nr. 215
2
Aðalfundur
ferðaþjónustubænda
Bændur
í ís...
12
Fjarnám
Tölvu- og fjarskiptatæknin hefur gjörbylt möguleikum íbúa
landsbyggðarinnar í menntamálum, segir einn viðmælandi
Bændablaðsins í blaðauka um fjarnám sem fylgir blaðinu í dag. Nú
stunda þúsundir Íslendinga nám á háskóla- eða framhaldsskólastigi
án þess að yfirgefa heimabyggð sína. Þetta eflir byggðirnar og
hamlar gegn fólksflótta af landsbyggðinni. Sjá bls.17 - 23.
Hagnaður hjá
Leiðbeininga-
miðstöðinni ehf.
Tæplega sex hundruð þúsund
króna hagnaður varð af rekstri
Leiðbeiningamiðstöðvarinnar
ehf. á Sauðárkróki á síðasta ári.
Þetta kom fram á aðalfundi fyr-
irtækisins fyrir skömmu. Þetta
er þriðja heila starfsár stöðvar-
innar, en hún var stofnuð í sept-
ember 2001 og tók þá yfir þá
starfsemi sem Búnaðarsamband
Skagafjarðar hafði áður með
höndum. Á fundinum kom jafn-
framt fram að á síðasta ári lauk
frágangi við uppgjör á starfsemi
Búnaðarsambandsins frá fyrri
tíð og er það nú skuldlaust.
Hjá Leiðbeiningamiðstöðinni
störfuðu 8-9 manns á síðasta ári.
Þar af eru þrír ráðunautar og þrír
sem starfa í bókhaldsdeild en fyr-
irtækið vinnur bókhald fyrir
marga aðila í héraðinu, einkum þó
bændur. Auk þess eru 2-3 aðilar í
verktöku og sjá um sæðingar í
héraðinu. Á aðalfundinum var
Guðrún Lárusdóttir, bóndi í
Keldudal, kosin í stjórn Leiðbein-
ingamiðstöðvarinnar og er hún
fyrsta konan sem sest þar í stjórn,
auk hennar voru fjórar konur
kjörnar í varastjórn.
Árni Gunnarsson frá Flatar-
tungu hefur verið framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins frá stofnun
þess. /ÖÞ
Með litinn þann staka, sem stöðuvötn fá
er stormskúrin þýtur við bakkann,
í augunum stóru, sem starandi gljá,
með stolta og hnarreista makkann
Þú hrekkur við, fákur, og flögrar,
og festu og kjark mínum ögrar.
Stephan G. Stephansson
Bændablaðið/Jón EiríkssonBændablaðið kemur
næst út 26. apríl.
“Þetta var góður fundur og menn skiptust
á skoðunum í mikilli hreinskilni. Það var
góð sátt um stefnumörkun að nýjum
sauðfjársamningi, sem var aðalmál
fundarins,” sagði Jóhannes Sigfússon,
formaður Landssamtaka sauðfjárbænda
þegar aðalfundi LS lauk á Hótel Sögu sl.
föstudag. Jóhannes sagði að nú biði það
nýrrar samninganefndar að vinna úr
tillögum fundarins og semja við
ríkisvaldið um nýjan sauðfjársamning.
“Á fundinum kom fram mikill
baráttuhugur og meiri bjartsýni en við
höfum átt að venjast undanfarin ár. Nú er lag
að blása til nýrrar sóknar,” sagði Jóhannes.
Á síðasta ári jókst sala dilkakjöts um
13,5%. Salan hefur líka verið góð það sem af
er ársins. “Á fundinum voru menn sammála
um að í haust verðum við að ná fram
verðhækkunum á afurðum. Við höfum
fullan hug á því að ná til baka þeirri miklu
verðlækkun sem við höfum mátt sæta
undanfarin ár.”
Þórólfur Sveinsson, formaður LK, sagði
fund kúabænda hafa gengið prýðilega,
hann hafi verið málefnalegur og upplýs-
andi. Í tilefni 20 ára afmælis Félags kúa-
bænda á Suðurlandi var fundurinn hald-
inn á Selfossi og sagði Þórólfur að öll að-
staða hefði verið til fyrirmyndar. Meðal
þess sem rætt var voru örlög Lánasjóðs
landbúnaðarins og Bjargráðasjóðs, við-
bætur við mjólkursamning, alþjóðamál,
mikilvægi sjúkdómaskráningu og slæm
gæði á einstaklingsmerkjum sem tekin
voru í notkun í fyrra. Þá taldi fundurinn
það aðkallandi að fjármálaráðgjöf á veg-
um BÍ og leiðbeiningamiðstöðvanna yrði
stórefld.
„Fundurinn lagði áherslu að fyrir næsta
aðalfund yrðu komnar skýrar línur varðandi
ráðstöfum á þeim greiðslum sem eftir á að
semja um í mjólkursamningnum en í samn-
ingnum er kveðið á um að ljúka þessu fyrir 1.
september 2006. Sú stefna var mótuð á fund-
inum að reyna að komast út úr bjargráða-
sjóðskerfinu. Það er breyting á lögum um
Bjargráðasjóð og búnaðargjald svo það er
ljóst að leita þarf til stjórnvalda um þau mál.
Síðan var ályktað um Lánasjóð landbúnaðar-
ins og nokkrar umræður spunnust um örlög
hans. Það er ekki því að neita að menn velta
fyrri sér hver muni eignast bréfin eftir þær
breytingar sem nú eru fyrirhugaðar. Hver
muni verða kröfuhafi á þá og hvernig bændur
á jaðarsvæðum fara út úr þessu.“
Þórólfur sagði að talsvert var rætt um
málefni Mjólku ehf. þó ekki hefði verið álykt-
að um þau mál. „Landbúnaðarráðherra gaf
mjög skýran tón í sínu ávarpi um stöðu þess
máls. Það er ljóst að LK þarf að fara yfir þá
stöðu í ljósi þeirrar afstöðu sem þar kom
fram.“ Umræðu um einstaklingsmerkingar-
málin bar einnig á góma og þeir möguleikar
ræddir að e.t.v. þyrfti að skipta skipta um eitt-
hvað af merkjum vegna framleiðsugalla.
Einnig var rætt um samræmda sjúkdóma-
skráningu sem menn vilja gjarnan að komist á
hið fyrsta.
Bjartsýni ríkti á fundum
nautgripa- og sauðfjárbænda
Sjá nánar á bls. 34 og 35. Á bls. 36 eru
svipmyndir frá árshátíðum LK og LS.
Aðalfundir sauðfjár- og kúabænda voru haldnir í síðustu viku