Bændablaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 12. apríl 2005
Vorferðirnar eru hvatning um að gera betur
Félag sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði fer árlega í svokallaða vorferð, en tilgangur ferðalagsins er að skoða fallegt fé og kynna sér bú-
skapartækni í öðrum héruðum. Þá hafa sláturleyfishafar verið sóttir heim. Vorferðin var að þessu sinni farin í Húnavatnssýslu laugardaginn
2. apríl og voru þátttakendur um 50 talsins.
Ferðin hófst á Þóroddsstöðum í Hrútafirði en þaðan var haldið í sláturhús KVH á Hvammstanga. Síðan var haldið að Bergsstöðum á Vatnsnesi og
því næst Sauðadalsá. Ferðalaginu lauk í Hamarsbúð sem er skamman spöl frá Hamarsrétt, en þar slógu bændurnir á bæjunum þremur upp kaffiveislu
fyrir Borgfirðingana. „Það er mikið gagn af svona ferðum. Þær hafa félagslegt gildi og við sjáum líka hvernig aðrir bændur standa að ýmsu á borð við
fóðrun og hirðingu - svo dæmi séu tekin,“ sagði Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður sauðfjárræktarfélagsins í Borgarfirði og bóndi í Bakkakoti I.
„Vorferðirnar eru hvatning til manna um að gera betur.“ Meðfylgjandi mynd var tekin þegar hópurinn áði í Staðarskála.
Sláturhúsið í Búðardal ehf. , sem er eignar-
haldsfélag sláturhússins, hefur gert upp þær
skuldir sem á sláturhúsinu hvíldu. Þar var
um að ræða 40 milljónir króna og að sögn
Haraldar L. Haraldssonar, sveitarstjóra í
Dalabyggð, fengust felldar niður 20 milljón-
ir af skuldunum en eignarhaldsfélagið
greiddi þær 20 milljónir sem þá stóðu eftir.
Þar með er húsið skuldlaust og ákveðið hef-
ur verið að framkvæma þær lagfæringar á
því sem nauðsynlegar eru taldar til þess að
það fái aftur leyfi til slátrunar.
Haraldur segir að nú sé verið að vinna út-
boðsgögn fyrir framkvæmdir sem eru upp á
rúmar 50 milljónir króna. Ætlunin er að reyna
að safna auknu hlutafé fyrir þessari upphæð.
Hann sagðist hafa verið að fá afrit af bréfi yfir-
dýralæknis til landbúnaðarráðuneytisins varð-
andi húsið. Þar segir í lok bréfsins: ,,Yfirdýra-
læknisembættið telur að fyrirhugaðar endur-
bætur á sláturhúsinu uppfylli nú kröfur reglu-
gerðar nr. 461 frá 2003 um slátrun og meðferð
sláturafurða og verkáætlun sé ásættanleg.“ Því
segist Haraldur búast fljótlega við bréfi frá
landbúnaðarráðuneytinu þar sem tilkynnt verði
um löggildingu á sláturhúsinu.
Aðspurður um hvað þurfi að framkvæma
til þess að húsið hljóti löggildingu sagði Har-
aldur að um þrjá verkþætti væri að ræða. Í
fyrsta lagi er um að ræða endurbætur við að-
gengi að húsinu þannig að aðgengi fyrir óvið-
komandi verði lokað og starfsmannaaðstaða
verði bætt. Þessi verkþáttur kostar á milli 10 til
15 milljónir króna. Í öðru lagi er um að ræða
viðgerð á húsinu að utan sem mun kosta um 10
milljónir króna. Þriðji verkþátturinn er svo
malbikun og frágangur á lóð hússins. Haraldur
segir að allt sem snýr að slátruninni sjálfri inn-
anhúss sé nokkurn veginn í lagi sem og réttin
sjálf.
Þegar þessum framkvæmdum er lokið er
húsið komið í það ástand að það má flytja út
kjöt en harðari kröfur eru gerðar til þeirra slát-
urhúsa sem flytja kjöt út en þeirra sem bara
framleiða fyrir innanlandsmarkaðinn. Haraldur
segir stefnt að því að Sláturhúsið í Búðardal
ehf. verði meðal glæsilegustu sláturhúsa lands-
ins.
Sláturhúsið í Búðardal hefur í gegnum árin
skipt gríðarlega miklu máli hvað atvinnu snert-
ir fyrir fólkið í Dölunum. Í sláturtíðinni hafa 55
til 60 manns haft atvinnu í húsinu sem þýðir
um 20 heilsársstörf í sveitarfélaginu.
Búðardalur
Sláturhúsið verði eitt það glæsilegasta á landinu
Nú er hafin uppbygging á slát-
urhúsi Sláturfélags Vopnfirð-
inga og er gert ráð fyrir að hús-
ið verði tilbúið til að taka við fé
til slátrunar í ágúst nk. Björn
Halldórsson á sæti í sveitar-
stjórn Vopnafjarðar og er hlut-
hafi í sláturfélaginu. Hann
sagði í samtali við Bændablaðið
að breyta ætti húsinu fyrir
næstu sláturtíð og fara eins
langt og hægt er til að uppfylla
skilyrði reglugerðar um slátur-
hús sem tekur gildi árið 2007.
Teikningar að breytingunum
liggja fyrir sem og kostnaðar-
áætlun. Fjármögnun er lokið en
þar er bæði um aukið hlutafé að
ræða og lán. Búið er að annast
kaup á öllu sem skiptir máli varð-
andi uppbygginguna. Flánings-
línu verður breytt og ýmsu öðru
innanhúss. Nýja fláningslínan
kemur í þessum mánuði og verð-
ur uppsetningu hennar lokið í
maí. Öllu verkinu á að vera lokið
í ágúst.
Björn segir að hér sé um að
ræða framkvæmdir upp á rúmar
28 milljónir króna. Ekki er gert
ráð fyrir að fara í útflutning frá
sláturhúsinu á Vopnafirði enda
telji Vopnfirðingar of marga vera
að slást á þeim markaði. Ein-
göngu verði slátrað fyrir innan-
landsmarkað.
Síðastliðið haust var slátrað
um 20 þúsund fjár í húsinu og eru
starfsmenn milli 30 og 40 í slát-
urtíðinni. Starfsfólkið kemur úr
sveitinni í kring, úr Jökuldalnum
og Hlíðinni og einnig er eitthvað
um erlent starfsfólk.
Uppbygging hafin
á sláturhúsinu á
Vopnafirði
Opinn dagur á Hesti
Þann 15. apríl verður „opinn
dagur“ á tilraunabúinu að Hesti
í Borgarfirði. Búið verður opið
frá kl. 13 til 17.
Landbúnaðarháskóli Íslands
býður alla velkomna að skoða að-
stöðuna og kynna sér þá starfsemi
sem þar fer fram. Jafnframt verða
kynnt flest þau verkefni sem snúa
að sauðfjárrækt og starfsmenn eða
nemendur skólans eiga aðild að.
Boðið verður upp á kaffi og með-
læti
Utandagskrárum-
ræða á Alþingi
Lánasjóður
landbúnaðarins
verður að lík-
indum seldur
Jón Bjarnason, þingmaður VG,
hóf utandagskrárumræðu á Al-
þingi sl. fimmtudag um sölu
Lánasjóðs landbúnaðarins.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra var til andsvara.
Jón sagðist andvígur því að
selja Lánasjóðinn. Hann taldi upp
ágæti sjóðsins og hvað hann hefði
gert fyrir bændur á erfiðum tím-
um. Hann benti á að þótt bankar
byðu nú lán með lágum vöxtum
væri ljóst að allir bændur hefðu
ekki aðgang að þeim. Hins vegar
vildu bankarnir eignast Lánasjóð
bænda til að komast yfir 1. veðrétt
á jörðum þeirra bænda sem skulda
sjóðnum og ná þannig tangarhaldi
á landbúnaðinum.
Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra sagði að nefnd sem
hann skipaði til að fjalla um mál-
efni Lánasjóðsins legði til að sjóð-
urinn yrði ekki rekinn áfram held-
ur leitað leiða til að selja hann. Nú
væri verið að leita leiða til að selja
sjóðinn því rekstur hans væri orð-
inn mjög erfiður og nota féð til að
efla Lífeyrissjóð bænda. Nokkrar
leiðir kæmu til greina, eins og að
leggja niður starfsemi sjóðsins og
selja eignir hans. Líka væri hægt
að breyta sjóðnum í hlutafélag og
selja það síðan og láta andvirðið
renna til lífeyrissjóðsins. Þá sagð-
ist Guðni vera að skoða þann
möguleika að láta sjóðinn renna
beint inn í Lífeyrissjóð bænda en
það þyrfti að skoða út frá lagalegu
sjónarmiði.
Þéttasta varp
hrossagauks
í heimi!
Ævar Petersen, fuglafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands hélt fyrirlestur um varp-
hætti hrossagauks í Flatey á
Breiðafirði sl. fimmtudag. Þar
er eitt þéttasta varp hrossa-
gauka í heiminum. Upphafið að
rannsóknunum var áhugi á að
kanna af hverju hrossagaukar
hafa svo langan varptíma sem
raun ber vitni, eða 3-4 mánuði.
Rannsóknirnar byggðust á ná-
kvæmri leit að hreiðrum og
merkingum, bæði með því að
veiða fullorðna fugla á hreiðri
og unga. Upplýsingar fengust
þannig um varptíma, fjölda
varppara og varpútbreiðslu, óð-
alstryggð fuglanna, varpárang-
ur, varpaldur o.fl. Niðurstöður
gefa m.a. tilefni til að velta fyrir
sér umhverfisáhrifum á varp
hrossagauka, hvort hrossagauk-
ar verpi tvisvar á sumri, hvort
ungir fuglar verpi seinna en
gamlir, hve gamlir hrossagauk-
ar verða og af hverju aðeins fáir
ungir fuglar virðast koma á
uppeldisstöðvarnar þegar þeir
eru orðnir kynþroska. Frá
þessu er sagt á heimasíðu Reyk-
hólahrepps.
www.bondi.is