Bændablaðið - 12.04.2005, Side 13
Þriðjudagur 12. apríl 2005 13
Dalsbraut 1, 600 Akureyri Sími 461 4606 Fax 461 2995 Netfang pbi@akureyri.is
Lamba-
merki
Vinsamlega sendið okkur skriflegar pantanir
Rúlluvélar
Múgavélar
Fjölfætlur
Dráttarvélar
Sláttuvélar
Áburðardreifarar
Haugtankar
Stórbaggavélar
Pökkunarvélar
Sjálfhleðsluvagnar
Keðjudreifarar
Plógar
Aflherfi
Leikfélag Hofsóss hefur undanfarið æft leikritið Góðverkin kalla undir
leikstjórn Höllu Margrétar Jóhannesdóttur.Fimmtán leikarar koma fram í
verkinu og koma þeir af svæðinu úr Hjaltadal,Hofsósi og nágrenni og af
Höfðaströnd. Hér eru fjórir leikarar á æfingu fyrir skömmu. frá vinstri
Helgi Thorarensen, Fríða Eyjólfsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Kristján
Jónsson. /Bændablaðsmynd: Örn
Góðverkin kalla á Hofsósi
Lagt hefur verið fram stjórn-
arfrumvarp um að komið verði
upp stofnun til að sameina stofn-
anir, embætti og verkefni á sviði
eftirlits og stjórnsýslu innan
landbúnaðarins í eina öfluga eft-
irlits- og stjórnsýslustofnun,
Landbúnaðarstofnun. Með þeim
hætti nýtist þverfagleg sérþekk-
ing betur en hingað til og grund-
völlur er lagður að bættri og
skilvirkari stjórnsýslu og ein-
faldara og samhæfðara eftirliti.
,,Í þessari stofnun er verið að
sameina allt eftirlit sem snýr að
landbúnaðinum. Með því er verið
að hagræða og styrkja þessi verk-
efni en nú liggur þessi eftirlitsþátt-
ur í mörgum stofnunum, litlum og
veikum. Að mínu mati er því fátt
mikilvægara en að stíga þetta
skref því í því er fólgið aukið ör-
yggi fyrir neytendur í landinu og
landbúnaðinn í heild,“ sagði
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra í samtali við Bændablaðið.
Landbúnaðarstofnun verður
falin framkvæmd ýmissa eftirlits-
og stjórnsýsluverkefna samkvæmt
lögum. Í frumvarpinu er lagt til að
eftirtaldar stofnanir landbúnaðar-
ráðuneytisins verði lagðar niður:
yfirdýralæknir, veiðimálastjóri og
aðfangaeftirlitið. Landbúnaðar-
stofnun er ætlað að taka að sér
hlutverk ofangreindra stofnana.
Einnig er lagt til að embætti kjöt-
matsformanns verði lagt niður og
starfsemi þess flutt til Landbúnað-
arstofnunar og að starfsemi plöntu-
eftirlits flytjist þangað frá Land-
búnaðarháskóla Íslands. Að auki
er Landbúnaðarstofnun ætlað að
fara með stjórnsýsluverkefni sem
Bændasamtök Íslands hafa farið
með og varða framleiðslustýringu í
landbúnaði, forðagæslu og eftirlit
með aðbúnaði búfjár.
Umræddar ríkisstofnanir og
embætti hafa flestar aðeins fáum
starfsmönnum á að skipa. Hafa
sumar unnið nokkuð einangrað eða
verið vistaðar að hluta innan ann-
arra stofnana landbúnaðarráðu-
neytisins. Samanlögð velta þeirra
samkvæmt fjárlögum 2005 er
505,5 millj. kr. og stöðugildi um
50 talsins. Því til viðbótar kemur
kostnaður vegna verkefna sem
með samningi hafa verið falin
Bændasamtökum Íslands.
ZooLac
®
PROPASTE
®
Zoolac í lömbin - Hrein afurð
Söluaðilar: Dýralæknar um land alt,
Apótekarinn Akureyri
Vetis ehf - Sími: 4611290 - Heimasíða: www.vet.is - Rafpóstur: vetis@vet.is
Landbúnaðarráðherra um fyrirhugaða landbúnaðarstofnun
Mun auka öryggi neyt-
enda og landbúnaðarins
ÚRVAL NOTAÐRA VÉLA Á HAGSTÆÐU VERÐI
Veitum fulla aðstoð
við fjármögnun atvinnutækja