Bændablaðið - 12.04.2005, Side 26

Bændablaðið - 12.04.2005, Side 26
26 Þriðjudagur 12. apríl 2005 Skógræktin í samspili við aðra landnýtingu Sæmundur Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Skjólskóga á Vest- fjörðum, segir að uppleggið hafi verið sambýli skógræktar við aðra landnýtingu á Íslandi. Hvert hlut- verk skógræktarinnar gæti orðið með öðrum búskap og hvar nún- ingsfletir kynnu að verða fyrir hendi við annan búskap. ,,Þar kemur lausaganga sauðfjár, sá gamli draugur, inn á sviðið en ráð- stefnunni var stillt þannig upp að við fengum hagsmunaaðila til þess að tala sínu máli. Ég get ekki alveg fallist á það að ekki hafi borið á andstæðum sjónarmiðum milli manna á ráðstefnunni, en umræðan var bæði málefnaleg og kurteis. Þegar menn fara kinnroðalaust beint í málin, þá er ekki byrjað á einhverju alkunnu gömlu stagli. Til dæmis voru uppi deilur fyrir nokkrum misserum um skógrækt gagnvart fuglalífi og öfugt. Stór orð fóru á milli manna um hvort það væri tilræði við rjúpnastofninn að auka skógrækt og hvort einnig væri hugsanlega þrengt að mófugl- inum. Á þessari ráðstefnu var kynnt rannsókn, sem ákveðin var í kjölfar umræðunnar, og komin niðurstaða. Skógur er fugli gagn- samlegur og fuglinn skóginum.“ Kornrækt á berangri Búskaparskógrækt er nýyrði sem fylgir breyttum tímum. Tveir ágæt- ir sérfræðingar frá Bretlandseyjum fjölluðu um beitarskógrækt svo og skjólbelti og skjólskóga í nyrstu héruðum Englands og Skotlands. Alan Sibbald er sérfræðingur í landnýtingu og beitarskógum og starfar hjá Bresku landbúnaðar- skógunum, en Alistair McLeod er forstöðumaður Skógræktar ríkisins í Norður-Skotlandi. Þeir gerðu grein fyrir mikilvægi búskapar- skógræktar og skjólbelta fyrir bú- pening. Sæmundur Þorvaldsson hefur lengi séð fyrir sér breyttan landbúnað og breytt mannlíf á Vestfjörðum í lundum nýrra trjáa. Hann vék að kornræktinni, eins og hún er stunduð á Íslandi, enda orð- in viðurkennd búgrein með aðstoð ríkisins. ,,Ég skil ekkert í kornrækt á Ís- landi, hvernig bændur eiginlega stunda þá iðju. Má líkja því við að maður sé að byggja sér stórt og vandað hús, sem hann ætlar að láta sér líða vel í, en gleymir að setja glerið í gluggana. Ísland er á mörkum þess að þar sé hægt að stunda kornrækt. Við Íslendingar erum þeir einu sem ekki nota skjólbelti til að skýla korninu. All- ar kornræktarsþjóðir á norðlægari breiddargráðum láta sér ekki detta annað í hug en að rækta skjólbelti þar sem þær erja kornakra sína. Mér finnst umhugsunarefni hvern- ig leiðbeiningarþjónustu okkar er háttað yfir höfuð. Greinin er að hluta til komin inn í stuðningskerfi ríkisins, sem ég hef ekkert við að athuga, en ég hef sitthvað við það að athuga að menn skuli ekki nýta sér þau tæki, sem þeir hafa í hönd- unum, sem er skjólbeltaræktun.“ Hjarðmenn Íslands Í meginatriðum hefur sauðfjárrækt í landinu búið við sömu lögmál í langan tíma. Hleypt til um jóla- leytið, burður í maí, hagaganga fram á haust. Þá rekið og síðan keyrt í sláturhús og afurðir frystar. Sæmundur segir að markaðurinn kalli orðið á allt annan afhending- artíma á sauðfjárafurðum og á sem lengstum tíma. ,,Hér hefur við- gengist lausaganga sauðfjár, sem svo er smalað saman einu sinni á ári. Ég sé ekki annað en að hjarð- mennskan verði eingöngu stunduð af þeim, sem vilja snæða sína eig- in framleiðslu. Hinir hljóta að skoða málin með tilliti til markað- arins og hvenær hann kallar eftir kjöti. Hins vegar stilltum við þessu ekki svona upp á ráðstefnunni. Reyndum að kalla fram alla hugs- anlega fleti og þá einnig hvaða gildi það fyrirkomulag hafi fyrir auðfjársamfélögin, sem lengst hef- ur verið við lýði. Í núverandi bú- skaparháttum eru fólgin verðmæti eins og bændur hafa sjálfir lýst. En ef við lítum á dilkakjötsfram- leiðslu sem rekstur og lífsafkomu, þá er það allt annað mál. Bændur verða að geta gengið að fé sínu og fært til slátrunar þegar það hentar, sem þýðir að það verður að vera í einhverjum afgirtum hólfum. Sú hugmynd að reka fé í sameiginlega heimaafrétti er góð og gild en tak- markanirnar eru þær að menn eru ekkert nær því að geta stjórnað framleiðslunni svo vit sé í. Hrær- andi í fénu í nokkra mánuði sem ekki þótti gott þegar ég var smali. Grundvallarreglan var að láta það í friði. Að mínu viti verður að hefja markvissa beitarstjórn með sauðfé. Það kostar áreiðanlega stórfé og bændur verða að fá mikla aðstoð til að ná þessu fram. Ef það fer eft- ir, er ég sannfærður um, að þetta er hægt við flestar aðstæður. Við skógræktarmenn erum nú að girða yfir fjöll og upp í hlíðar og reynum að hafa ræktarsvæðin sem stærst og forma skógræktina eftir land- inu. Reynum að komast hjá því að girða af leiðir og heimilum rekstur gegnum afgirt svæði, ef á þarf að halda. Það sést best á því sem Vest- firðingar hafa gert að sauðfjárbú- skapur og skógrækt þurfa ekki að vera andstæður. Stærstur hluti skógræktarbænda á Vestfjörðum býr einnig með sauðfé og hefur verið til fyrirmyndar.“ Fimmtíu skógræktarjarðir Skjólskógar á Vestfjörðum eiga sér fimm ára sögu en þrjú árin þar á undan var rekin stofnun með sama nafni í tveimur hreppum Vestur-Ísafjarðarsýslu með opin- berum stuðningi. Sæmundur segir að þá þegar hafi stefnan verið mörkuð og ekkert hik á fólki við stofnun Skjólskóga hinna síðari. Í haust leið voru fjörutíu jarðir með samninga um skógrækt eða skjól- beltarækt og tólf jarðir að bætast við. Á obbanum af þessum jörðum er jafnframt rekinn hefðbundinn landbúnaður, einkum sauðfjárrækt. Alls hafa verið gróðursettar fimm- tán hundruð þúsund plöntur á veg- um Skjólskóga og eru bjarkir hlut- fallslega lang ,,fjölmennastar“. Skógræktin er í hólfum, en ekki sauðféð, og margar reglur eru fyrir hendi sem takmarka ,,lausagöngu“ skógar. ,,Skógræktin er leyfisskyld eins og annar atvinnuvegur,“ upp- lýsir Sæmundur, ,,og getur land þurft að fara í umhverfismat á við- kvæmum svæðum, ellegar ef um stórar skógarspildur er að ræða. Nýja bújörðin á Núpi í Dýrafirði Búskaparskógrækt, beitar- stjórnun og nýting lands Fjölmenni sótti ráðstefnu á Núpi í Dýra- firði um miðjan mars, sem bar yfirskrift- ina Nýja bújörðin. Samankominn var fjöldi sérfræðinga og framámanna í landbúnaði, skógrækt og landgræðslu. Fjórar stofnanir stóðu fyrir ráðstefnunni, sem voru Skjólskógar á Vestfjörðum, Landbúnaðarháskóli Ís- lands, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins. Ráðstefnan stóð í tvo daga og var hvor dagurinn helgaður sínu þema; búskaparskógrækt fyrri daginn og hinn síðari beitarstjórnun og nýting lands. Fólk öndverðra sjónarmiða var leitt til samræðu á ráðstefnunni og leitast við að fá sjónarmið kynnt og vísindaþekking tíunduð eins og í erindi Emmu Eyþórs- dóttur, sérfræðings við Landbúnaðarhá- skólann, sem fjallaði um íslenska sauð- féð, sérstöðu fjárstofns og búskapar- hætti. Þorsteinn Pétursson, formaður Félags skógarbænda á Héraði, hélt erindi um erfiðleika skógræktar vegna lausa- göngu sauðfjár á Héraði og kvað einna fastast að orði skógarbænda. Málefnaleg umræða var einkennandi fyrir ráðstefn- una. ,,Að vera sauðfjárbóndi er ákveðin lífssýn og því fylgir þetta frelsi, sem maður vill ekki vera án,“ sagði Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöð- um í Þistilfirði. Hann sótti ráðstefnuna á Núpi sem stjórnarmaður í Bændasamtökunum auk þess að vera formaður Landssamtaka sauðfjár- bænda. ,,Ég vil ekki ganga að fé mínu vísu á hausti, ég vil hafa fyrir því að finna það í göngum. Það er gjörsamlega ólýsanleg tilfinning að vera einhvers staðar inni á afrétti á vélsleða í renni- gaddi og finna allt í einu hjálparvana kind, sem þú áttir alls ekki von á. Ef þetta verður allt par- rakað inn í girðingar, þá er þetta ekkert gaman lengur. Get heldur aldrei slitið mig frá því að leggjast út á greni á vorin. Ekki af því ég hafi svo gaman af veiðunum, heldur hitt að fara í heiðina og fá þessa einstöku tilfinningu við að umgangast landið. Steingrímur bróðir minn var á sínum tíma að útlista fyrir okkur Ragnari bróður, sem einnig býr á Gunnarsstöðum, hversu Mylludalur- inn yrði nú stórkostlegur þegar hann yrði viði vaxinn og búið að græða hann upp. Þá sagði Ragnar bróðir þessa eftirminnilegu setningu: ,,Ekki sé ég nú Mylludalinn fegurri fyrir mér, en þegar þar stendur nýköstuð folaldsmeri yfir ný- bornu afkvæmi sínu.“ Fór þó svo að Mylludalur- inn, sem áður var innan hrossagirðingar, var girt- ur af og þar vex nú skógur úr grasi. Lerki hefur sýnt þar miklar framfarir en mikil sina er í skóg- inum. Þá hafa lyng og lægri plöntur fært sig upp á skaftið í Mylludal. Jóhannes Sigfússon álítur, þrátt fyrir frelsisþrá sína, að skógrækt og sauðfjárbúskapur geti ágætlega farið saman enda séu það ekki síst bændur landsins sem standi fyrir héraðsskógum eins og gerst hafi á Vestfjörðum. Það hljóti hins vegar að vera svæðis- bundið hvort hægt sé að hólfa fé niður í girðingar og hann sjái það til að mynda ekki fyrir sér í Þistilfirði. Líklega séu aðstæður ekki ósvipaðar á Vestfjörðum þar sem fé gengur á láglendisræmum og ekki um eig- inlega afrétt að ræða eins og í mörgum landshlutum. En þar sem fé er orðið fátt og landrými nóg, sér Jó- hannes Sigfússon ekkert því til fyrirstöðu að fé sé girt af og skógurinn fái að njóta sín, ef það er talið hagkvæmara fjárhagslega með tilliti til girðinga. Jóhannes Sigfússon í stjórn Bændasamtakanna: Vil ekki ganga að fé mínu vísu Sæmundur Þorvaldsson. Jóhannes Sigfússon.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.