Bændablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 18
1 Fullveldisframsal
Með aðild að ESB færist vald yfir veigamiklum þáttum
fullveldis okkar til Brussel. Dæmi: 1) yfirráðin yfir 200 mílna
fiskveiðilögsögu; 2) rétturinn til að gera fiskveiðisamninga
við önnur ríki; 3) rétturinn til að gera viðskiptasamninga við
önnur ríki; 4) rétturinn til að afnema tolla eða leggja á tolla;
5) æðsta dómsvald til ESB-dómstólsins o.s.frv. ESB-aðild er
þess eðlis að hún útheimtir breytingu á stjórnarskrá Íslands í
grundvallaratriðum. Það væru mikil afglöp gagnvart komandi
kynslóðum ef við afsöluðum fullveldisréttindum þjóðarinnar
í hendur öðru ríki eða ríkjasambandi. Ákvörðun um ESB-
aðild má því ekki taka út frá skammtímasjónarmiðum, svo
sem aðsteðjandi kreppu eða vandamálum tengdum gengi
krónunnar, heldur verður að horfa áratugi fram í tímann
og minnast þess að einmitt í krafti sjálfstæðis bætti þjóðin
lífskjör sín frá því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu í það að
verða ein sú ríkasta.
2 Nýtt stórríki
Seinustu sex áratugi hefur ESB þróast hratt og fengið öll
helstu einkenni nýs stórríkis sem stjórnað er af forseta og
ríkisstjórn, þingi og æðsta dómstól og hefur sameiginlega
utanríkisstefnu og fiskveiðilögsögu, landamæraeftirlit,
stjórnarskrá, fána og þjóðsöng og stefnir að einum
gjaldmiðli. Ekkert bendir til þess að þessi þróun sé á enda
runnin. Meginmarkmiðið með framsali aðildarríkjanna á
mikilvægustu þáttum fullveldis síns til miðstjórnarvaldsins
í Brussel er að byggja upp nýtt risaveldi sem þjónar innri
þörfum Sambandsins, þ.e. þeirra hagsmuna og viðmiða sem
þar eru ríkjandi. Réttarstaða aðildarríkjanna verður hliðstæð
fylkjunum í Bandaríkjum N-Ameríku sem hafa sjálfstjórn
í vissum málaflokkum en búa við skert sjálfstæði og sterkt
alríkisvald.
3 Völd litlu ríkjanna fara minnkandi
Völd lítilla ríkja í ESB fara smám saman minnkandi en völd
hinna stóru vaxandi. Stefnt er að meiri hlutaákvörðunum í
stórauknum mæli með hliðsjón af íbúafjölda aðildarríkjanna.
Ísland fengi 3 atkvæði af 350 í ráðherraráðum, þar sem
mikilvægustu ákvarðanir eru teknar, og 5 atkvæði af 750
á ESB-þinginu. Sjálfstæð rödd Íslands myndi að mestu
þagna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Því fámennara og
áhrifaminna sem aðildarríki eru þeim mun meiri er skerðing
sjálfstæðisins og hvergi yrði sú skerðing jafn tilfinnanleg
og hér, m.a. vegna þess hve sjávarútvegur vegur þungt
í efnahagslífi okkar og orkuauðlindirnar eru miklar og
vannýttar. Hætt er við að Ísland verði eins og hreppur á jaðri
risaríkis þegar fram líða stundir.
4 Samþjöppun valds í ESB er ólýðræðisleg
Í ESB hefur mikið vald færst til embættismanna í Brussel og
til ráðherra sem taka veigamestu ákvarðanir. Þingið hefur
fyrst og fremst staðfestingar- og eftirlitsvald. Almennir
þegnar í aðildarlöndunum hafa því lítil áhrif á þróun mála og
afar dræm kosningaþátttaka til þings ESB sýnir hve framandi
og fjarlægt Brusselvaldið er þeim. Lýðræðishallinn í ESB er
ein og sér næg ástæða til að hafna ESB-aðild. Valddreifing
er tímans kall en sívaxandi valdasamþjöppun í miðstýrðum
stofnunum ESB sem að litlu leyti lúta eftirlitsvaldi kjósenda er
tilræði við þróun lýðræðis í Evrópu. Á Íslandi geta kjósendur
fellt ríkisstjórn sem þeim líkar ekki við en í ESB hefðu þeir
engin áhrif á hverjir yrðu hinir nýju yfirboðarar landsmanna.
5 Valdamiðstöðin er fjarlæg
Fjarlægð Íslands frá valdamiðstöðvum ESB og þekkingarleysi
embættismanna þar á íslenskum aðstæðum minnir okkur á
hve fráleitt er að Íslandi sé stjórnað úr 2000 km fjarlægð.
Hætt er við að brýnar ákvarðanir sem varða okkur Íslendinga
miklu velkist oft lengi í kerfinu í Brussel og það gæti
orðið okkur til mikils skaða, t.d. í sjávarútvegsmálum og á
öðrum sviðum auðlindanýtingar. Margar ESB-reglur henta
Íslendingum alls ekki vegna smæðar íslensks samfélags og
ólíkra aðstæðna í fámennu landi. Skemmst er að minnast
ESB/EES-reglnanna um bankakerfið og ábyrgð íslenskra
skattgreiðenda á glórulausum rekstri einkabanka á erlendri
grund. Það reyndist baneitrað regluverk fyrir smáþjóð eins
og Íslendinga. Við þurfum að geta sniðið okkur stakk eftir
vexti og valið það sem okkur hæfir best.
6 Atvinnuleysið er eitt helsta einkenni ESB
Stórfellt atvinnuleysi er eitt helsta einkenni á atvinnulífi ESB
og fylgifiskur aðildar vegna þess hve vinnumarkaður í ESB er
þunglamalegur og hefur lítinn sveigjanleika. Atvinnuleysið
sem skollið hefur á hér á landi hefur verið daglegt brauð
í mörgum ESB-ríkjum undanfarna áratugi. Einnig hafa
mikilvægir þættir vinnuréttar flust frá aðildarríkjum til ESB
upp á síðkastið samkvæmt dómum ESB-dómstólsins.
7 Óhagkvæmt myntsvæði fyrir Ísland
Óhagræðið af sameiginlegri vaxta- og peningastefnu á
evrusvæðinu þrátt fyrir mismunandi efnahagsaðstæður
í aðildarlöndum ýtir enn frekar undir atvinnuleysi í
jaðarríkjunum. Ýmislegt bendir til þess að ESB sé í raun ekki
hagkvæmt myntsvæði, hvað þá að svæðið sé hagkvæmt
myntsvæði fyrir Ísland. Án þeirrar aðlögunar sem fæst í
gegnum gengi krónunnar er víst að Íslendingar yrðu mun
lengur að ganga í gegnum hagsveiflur, ekki hvað síst jafn
miklar og við búum nú við. Auk þess mun líða langur tími,
jafnvel áratugur þar til við uppfyllum Maastrichtskilyrðin og
gætum tekið upp evru, ekki síst vegna mikillar skuldsetningar
ríkissjóðs eftir að ESB þvingaði okkur til að samþykkja
ICESAVE-kostnaðinn.
8 Úrslitavald yfir auðlindum
Það er grundvallarregla hjá ESB að stofnanir þess hafa
„úrslitavald um varðveislu lífríkis sjávarauðlinda í samræmi við
sameiginlegu fiskveiðistefnuna“. Allt tal um að Íslendingar
geti fengið varanlega undanþágu frá þessari meginreglu
er ábyrgðarlaus áróður. Mörg aðildarríki hafa sótt það fast
en ekkert þeirra fengið annað en tímabundna aðlögun.
Lögsaga Íslendinga yfir auðlindum sjávar umhverfis landið
er sjö sinnum stærri en landið sjálft. ESB fengi úrslitavald um
hámarksafla sem leyfður yrði, veiðitegundir, veiðisvæði og
veiðitíma. Reglum um „hlutfallslegan stöðugleika“ (hliðsjón
af veiðireynslu) getur meirihluti ráðherraráðsins breytt
þegar henta þykir og er það einmitt nú til umræðu. Rétti
komandi kynslóða til fiskimiðanna yrði stefnt í mikla hættu.
ESB er að breytast mjög hratt og sú þróun stöðvast ekki þó
að Ísland gangi inn. Líklegt er talið að reglur um sjávar- og
orkuauðlindir eigi eftir að breytast.
9 Hernaðarveldi í uppsiglingu
Í Lissabonsáttmálanum, sem verður ígildi stjórnarskrár ESB,
eru heimildir fyrir Evrópusambandsher. ESB gerir ráð fyrir að
í framtíðinni þurfi Sambandið að efla hernaðarmátt sinn og
áskilnaður er í grein 42. í Sambandssáttmálanum (The Treaty
on European Union, TEU) að stofnaður verði her til að gæta
hagsmuna ESB, bæði í Evrópu og annars staðar.
10 Kvótalaust sjávarþorp?
ESB-aðild útheimtir að opnað sé fyrir fjárfestingu erlendra
fyrirtækja í sjávarútvegi. Íslensk útgerð er mjög skuldum vafin
og í erfiðu árferði gætu veiðiheimildir auðveldlega safnast á
hendur erlendra auðfélaga og arðurinn (virðisaukinn) þannig
flust úr landi. Ísland gæti því „breyst í kvótalaust sjávarþorp“,
eins og nýlega var bent á.
11 Samningsrétturinn glatast
Um þriðjungur af verðmæti sjávaraflans fæst úr svonefndum
deilistofnum sem flakka úr einni lögsögu í aðra. Hingað til
höfum við Íslendingar haft samningsrétt við önnur ríki, svo og
ESB, um veiðar úr þessum stofnum. Við ESB-aðild myndum
við framselja það vald til yfirstjórnar ESB. Nýjar tegundir
bætast við lífríkið í lögsögu Íslendinga með hækkandi
hitastigi sjávar, t.d. nú seinast makríll. Ef við hefðum afhent
ráðamönnum ESB samningsréttinn og hlýtt boðum þeirra
og bönnum væri nær ekkert veitt hér af þessum tegundum,
t.d. kolmunna sem skilað hefur tugmilljarða króna virði í
þjóðarbúið á hverju ári.
12 Þungt högg fyrir landbúnaðinn
Íslenskur landbúnaður veitir okkur öryggi í fæðuframleiðslu
af miklum gæðum auk þess sem hann styrkir jöfnuð okkar í
viðskiptum við aðrar þjóðir og heldur uppi atvinnu og byggð
í landinu. ESB-aðild yrði þungt högg fyrir landbúnaðinn
sem sviptur yrði tollvernd. Samdráttur í búvöruframleiðsu
myndi valda auknu atvinnuleysi víðs vegar um land í
sveitum og þéttbýli sem byggir afkomu sína á framleiðslu
landbúnaðarafurða. Eftir hrun fjármálalífsins er nauðsynlegra
en nokkru sinni fyrr að spara gjaldeyri og draga úr atvinnuleysi
í stað þess að auka innflutning á kostnað innlendrar
framleiðslu og hækka heildargreiðslu til atvinnuleysisbóta.w
Í sumar hafa fjögur aðildarfélög Heimssýnar verið stofnuð og stefnt er á áframhald
í því starfi nú á komandi vetri. Með félagsdeildum má tryggja aukna virkni og
baráttu um allt land. Nú eftir að ríkisstjórnin hefur lagt fram umsókn um aðild
ríður á að sem flestir leggist á árar í baráttu fyrir fullveldi og sjálfstæði landsins.
Tuttugu til fimmtíu manns mættu á hvern stofnfund en þeir voru haldnir í júnímánuði.
Eftirtaldar deildir hafa verið stofnaðar.
Skagafjarðardeild með fundi í Varmahlíð 9. júní. Þar voru kjörnir í bráðabirgðastjórn
Ingi Björn Árnason, Marbæli, formaður, Þórarinn Magnússon, Frostastöðum og Ágúst
Guðmundsson, Sauðárkróki. Til vara þeir Gísli Árnason, Sauðárkróki, Árni Gunnarsson,
Sauðárkróki og Agnar Gunnarsson, Miklabæ.
Árnessýsludeild með fundi á Þingborg í Hraungerðishreppi 9. júní. Þar voru kjörin í
stjórn Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri í Árborg, Guðni Ágústsson, fv.
ráðherra, Selfossi, Þór Hagalín, framkvæmdastjóri, Eyrarbakka, Sigurlaug B. Gröndal,
skrifstofumaður, Þorlákshöfn og Axel Þór Kolbeinsson, tölvumaður, Hveragerði.
Eyjafjarðardeild með fundi á Akureyri 13. júní. Þar voru kjörin í stjórn Þorkell Ásgeir
Jóhannsson, flugmaður, Ólafur Þ. Jónsson, fv. vitavörður og Baldvin Halldór Sigurðsson,
bæjarfulltrúi og veitingamaður.
Borgarfjarðardeild með fundi á Bifröst 13. júní. Þar voru kjörin í stjórn Óðinn Sigþórsson,
Einarsnesi, Þórólfur Sveinsson, Ferjubakka, Magnús Þór Hafsteinsson, Akranesi, Ingibjörg
Konráðsdóttir, Hýrumel og Guðbrandur Brynjúlfsson á Brúarlandi.
Heimssýn um allt land
Borgarfjarðarstjórn Heimssýnar, f.v. Óðinn, Þórólfur, Magnús Þór og Ingibjörg en á myndina vantar Guðbrand
Brynjúlfsson.
Skráning er
á vefsíðunni
www.
heimssyn.is