Bændablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 7
7 Bændablaðið | fimmtudagur 27. ágúst 2009 Mikill bjöllukonsert hljóm- aði frá Alþingi fyrr í sumar. Forseti Alþingis, Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir, mátti hafa sig alla við í stjórn á Fram- sóknarforystunni. Þetta minnti á talsvert uppnám forðum daga þegar fyrrum forseti þingsins, Halldór Blöndal, mundi ekki glöggt nafn eins þingmannsins. Eftir allnokkra umhugsun nefndi hann þingmanninn Ragnheiði Ástu Stefánsdóttur. Nokkuð fjarri réttu lagi að vísu, en vissu þó allir við hvern var átt. Nú á dögunum orti Pétur Stefánsson um nýjasta bjöllukonsertinn: Við Austurvöll er Alþingshöll, þar óma köll um hauður. Stjórnar öllu inni snjöll, Ásta bjöllusauður. Það var einnig í júlímánuði að við, prestar og kirkjuverðir Dómkirkjunnar, sátum fyrir dyrum úti í blíðskaparveðri. Útför var afstaðin og undirbún- ingur næsta dags framundan. Þar sem við sátum í blíðunni og leyndum ekki vellíðan okkar ók upp að ráðherrabíll. Þar var fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, fölur nokkuð en allhress að vanda sínum. Enn væri brekka eftir í þingstörfum og ekki þýddi annað en halda sig við efnið svo lengi sem þurfa þætti. Að loknu nokkru spjalli kvaddi Steingrímur J. með vísu: Leikur sól við laufið grænt sem ljúft í blænum kliðar. Sumrinu öllu af mér rænt, utan nokkurs friðar. Magnús Sigurðsson á Gilsbakka lést fyrr á þessu sumri. Hann var bændahöfðingi, hann var glöggur og víðlesinn maður sem stóð föstum fótum á íslenskri jörð og í mennt og menningu þjóðarinnar. Magnús var einnig góður hagyrðingur. Hann orti t.d. er hann var gestur þáver- andi landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústssonar, og Margrétar konu hans, í Jórutúni á Ölfusárbökkum. Þar var hann ásamt borgfirskum sauðfjár- bændum og skildi vísu eftir í gestabók heimilisins: Á Selfossi gerði ég stuttan stans, stirndi á ánni í sólarglans. Nú hef ég komið mér til manns og migið í klósett ráðherrans. Og kominn á slóðir Guðna og Margrétar hlýðir til að rifja upp vísu Péturs Ingva Péturssonar læknis frá Höllustöðum. Norðanmenn riðu suður undir forystu Guðmundar Birkis Þorkelssonar frá Laugarvatni. Guðni tók á móti þeim. Guðni er bæði prestlega og spámannlega vaxinn. Hann skenkti ferðalöng- um viskístaup og kvaðst fyr- irgefa þeim syndir fyrir sitt leyti. Pétur læknir mælti þá þessa vísu af munni fram: Indæl gerist ævin mín er ég fullur loksins. Skenkir okkur skíra vín skásti maður flokksins. Mál að linni. Umsjón: Hjálmar Jónsson hjalmar@domkirkjan.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM löndum bænda eða aðrar virkjanir til framleiðslu á orku. Megnið af þeim endurnýjanlegu orkulindum sem gætu leyst olíu og kol af hólmi eru í höndum bænda. Í öðru lagi geta bændur lagt fram ýmiss konar mótvægisaðgerð- ir gegn losun gróðurhúsaloftteg- unda. Þar hefur verið bent á aukna skógrækt, breytta landnotkun, land- græðslu og endurheimt votlendis. Í þriðja lagi geta bændur breytt búskaparháttum sínum að ein- hverju leyti til þess að draga úr þeirri losun sem landbúnaðurinn veldur. Reiknað hefur verið út að sú losun sé allt að 12% heildarlosun ar gróðurhúsalofttegunda. Þar eru þó ákveðnir hnökrar á því stór hluti losunarinnar á sér upptök í lífræn- um ferlum, svo sem gasmyndun í iðrum búfjár, sem erfitt getur reynst að breyta svo nokkru nemi. En vissulega má laga ýmislegt, svo sem fóður- og áburðarnotkun, rækt- unaraðferðir og fleira. Í því samhengi er athyglis vert að skoða hver niðurstaðan varð í með- förum fulltrúadeildar Banda ríkja- þings á áðurnefndu lagafrumvarpi um loftslagsmál. Roger Johnson for seti National Farmers Union greindi fundarmönnum NBC frá því að náðst hefði samkomulag um að sú losun sem verður í bandarísk- um landbúnaði, um 7% heildarlos- unarinnar, verði ekki talin með þegar kröfur um samdrátt losunar verða hertar. Ástæðan fyrir því er sú, að sögn Johnson, að búrekstur er dreifður um allt land og rekstr- areiningar iðulega smáar. Þess vegna yrði eftirlit með því hver raunveruleg losun væri mjög erfið í framkvæmd. Eðlilegt rekstrarumhverfi Á hinn bóginn er gert ráð fyrir því að bændur séu virkir þátttakend- ur á markaði fyrir losunarheim- ildir, það sem í Bandaríkjunum er kallað Cap and Trade. Þá geta þeir sem ekki eiga hægt með að draga úr losun keypt sér losunarheim- ildir í formi mótvægisaðgerða, svo sem skógrækt eða framleiðslu líf- eldsneytis. Hingað til hefur vafist fyrir mönnum að koma upp slíku kerfi sem nær til alls heimsins. Evrópusambandið hefur sett upp eitt kerfi og Bandaríkin annað, en eins og Jan Laustsen nefndi á NBC- fundinum er mikilvægt að koma sem fyrst upp alþjóðlegu kerfi sem byggist á því að sama verð sé á los- unarheimildum um allan heim. Slíkt kerfi er í raun forsendan fyrir því að bændur geti tekið þátt í viðskiptum með losunarheimildir og mótvægisaðgerðir. Sumir hafa túlkað þetta á þann veg að þarna sé bændum rétt lýst, þeir séu bara að koma sér upp enn einum ríkis- spenanum. Viðbrögð danska mat- væla ráðherrans við fundi IFAP í vor voru einmitt á þessa lund en Michael Brockenhuus-Schack, for- seti dönsku bændasamtakanna, er þessu ekki sammála. Í viðtali við Bænda blaðið svaraði hann þessu: „Það er eftirspurn eftir því að draga úr losun, en það kallar á framkvæmdir og aðgerðir sem ein- hver verður að borga fyrir, hvort sem það er aukin framleiðsla á lífeldsneyti eða öðrum endurnýj- anlegum orkugjöfum eða skógrækt. Þetta geta bændur boðið fram en að sjálfsögðu þarf einhver að greiða fyrir það. Þess vegna þarf að búa til eðlilegt rekstrarumhverfi utan um þessar viðskipti. Á þann hátt er hægt að virkja hugmyndaauðgi og framtak einstaklinganna til þess að setja fram hugmyndir að nýjum lausnum. Við megum ekki líta á hlutina einangrað heldur verðum við alltaf að hafa heildamynd- ina í huga. Við búum ekki bara til tækni sem leysir loftslagsvandann, hún þarf einnig að takast á við allt hitt, auka matvælaframleiðsluna og tryggja nægt framboð á hollum mat sem framleiddur er í anda dýraheil- brigði og umhverfisverndar. Þetta er mjög flókið verkefni og verð- ur ekki leyst nema í samstarfi við bændur. Það er ekki verið að búa til nýtt styrkjakerfi fyrir bændur. Þeir eru hluti af lausninni og ef við ætlum að ná árangri verður að komast á gott samstarf bænda og stjórnmálamanna.“ Danir metnaðarfullir Af þessum umræðum má draga þá ályktun að afskipti bænda af loftslagsmálum séu rétt að hefjast. Brockenhuus-Schack sagði að nú væri brýnt að samtök bænda um allan þrýstu á ríkisstjórnir sínar til þess að hleypa bændum að samn- ingaborðinu í Kaupmannahöfn. Bændur verði að vera hluti af þeirri lausn sem þar verður reynt að ná. Greinilegt er að Danir taka þessa ráðstefnu mjög alvarlega og leggja metnað sinn í að hún skili raunverulegum og áþreifanlegum árangri í baráttunni við hlýnun and- rúmsloftsins. Í máli Jan Laustsen kom fram að auðvitað myndi koma upp ágreiningur, bæði við samn- ingaborðið og ekki síður þegar nýr sáttmáli kemur til framkvæmda. Menn muni deila um hver eigi að axla hvaða byrðar, hvaða land eigi að nota til matvælaframleiðslu og hvað skuli tekið til annarra hluta. Í Kaupmannahöfn verður hins vegar reynt að ná undirskrift sem allra flestra þjóða undir sáttmála semleysir Kýótó-bókunina af hólmi. Þar verður hlutur landbún- aðarins eflaust mikill og bændur þurfa að vera undir það búnir að bretta upp ermarnar á þessu sviði þegar fram í sækir. –ÞH Norrænir bændur á Íslandi Dagana 12.-14. ágúst sl. héldu samtök norrænna bænda, NBC, aðalfund sinn í Reykjavík. Að því tilefni komu hingað til lands rúmlega 100 gestir sem nýttu tímann vel til fundahalda en einnig til þess að skoða land- ið. Samtökin héldu upp á 75 ára afmæli sitt hér á landi og setti það hátíðlegan brag á fundinn að þessu sinni. Fyrsti dagurinn var að verulegu leyti miðaður við áhrif efnahags- kreppu og loftslagsbreytinga í heiminum á bændur og landbún- aðarstefnu. Roger Johnson, for- maður National Farmers Union í Bandaríkjunum, var gestur fundarins og hélt erindi um loftslagsbreyting- ar sem fjallað er um hér á opnunni. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra talaði um efnahagskrepp- una og áhrif hennar hér á landi og allir formenn norrænu bændasam- takanna tóku til máls og greindu frá stöðunni í sínu heimalandi. Um kvöldið var hópnum boðið í móttöku á Bessastaði þar sem Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti hópnum. Síðar um kvöldið var hátíðarkvöldverður á Hótel Sögu þar sem Jóni Eiríkssyni bónda á Búrfelli voru veitt menn- ingarverðlaun NBC en á bls. 12 er viðtal við verðlaunahafann. Á öðrum degi var farið í skoð- unarferð um Borgar fjörðinn þar sem gesti m.a. heimsóttu Landnámssetrið í Borgarnesi, Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri, Reykholt, Barnafossa, hrossaræktarbúið Skáney og fjárræktarbúið á Hesti. Þriðja og síðasta daginn var m.a. greint frá starfi vinnuhópa og gengið frá stjórnarskiptum í samtökunum. Haraldur Benediktsson, formaður BÍ lét, af starfi forseta NBC en við keflinu tóku Svíar sem fara með formennsku næstu tvö árin. /TB Jón Eiríksson tók við menn- ingarverðlaunum NBC úr hendi Haraldar Benediktssonar í hátíð- arkvöldverði sem haldinn var að tilefni 75 ára afmælis samtak- anna. Í þakkarræðu Jóns sagði hann að mikil líkindi væru með starfi listamannsins og bóndans - bæði störfin fælu í sér mikla vinnu en lítið kaup! » » Unnsteinn Snorri Snorrason starfs- maður BÍ að leiðbeindi helstu for- vígismönnum dansks landbúnaðar um sviðaát á Hesti. Í þrautakóngi sem Unnsteinn stjórnaði kepptu Norðurlandaþjóðirnar m.a. í sviða- og hákarlsáti, neftóbaksfimi, girðingar- vinnu og sönglistum. Það var þröng á þingi í móttöku sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hélt á Bessastöðum fyrir fundargesti. Erna Bjarnadóttir og Haraldur Benediktsson stjórnuðu fundi NBC en sl. tvö ár hefur Ísland farið með formennsku í samtökunum. Rúmlega 100 manns tóku þátt í fundi NBC en hér er hópurinn saman kominn á tröppunum við kirkjuna í Reykholti. Gestirnir voru frá öllum Norðurlöndunum, Noregi, Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.