Bændablaðið - 09.08.2012, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 201212
Fréttir
Hrun krónunnar leiddi af sér tækifæri í innlendri framleiðslu
Ný tegund af íslenskum
steinbitum í gripahús
Jákvæður viðsnúningur hefur
orðið í ýmissi innlendri fram-
leiðslu eftir bankahrunið síðla
árs 2008. Við gengisfall íslensku
krónunnar var skyndilega orðið
raunhæft að hefja framleiðslu á
vörum sem áður fyrr voru fluttar
inn til landsins frá útlöndum.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
þurftu að breyta sinni starfsemi
í kjölfar kreppunnar er Girðir
ehf. í Mosfellsbæ. Þar á bæ voru
menn umsvifamiklir í girðingar-
vinnu bæði í sveitum og í þéttbýli
og sinntu að auki fjölbreyttum
verktakastörfum. Í júlí 2008 festi
Girðir kaup á litlum steypubíl
til þess að vera ekki upp á aðra
kominn um steypu þegar svo bar
við í girðingarvinnunni. Við fall
bankanna stöðvuðust viðskiptin á
einni nóttu og þá voru góð ráð dýr.
Hvernig átti að nýta steypuvélina
sem stóð ónotuð úti á hlaði og
skapa atvinnu fyrir verkefnalausa
starfsmenn? Lausnin var að hefja
framleiðslu á ýmsum forsteyptum
vörum, s.s. á ruslatunnuskýlum,
útigrillum, flísum, stöplum ýmis-
konar og nú nýlega steyptum
gólfbitum. Bændablaðið heim-
sótti Árna Garðar Svavarsson,
framkvæmdastjóra Girðis, og
Gunnar Má Gunnarsson, starfs-
mann Líflands, en saman leiða
þeir skemmtilegt verkefni við
framleiðslu og sölu á steinbitum
í gripahús.
„Þetta er samvinnuverkefni að því
leyti að Girðir framleiðir bitana og
við hjá Líflandi, með okkar tengsl
við bændur, sjáum um sölumálin,“
segir Gunnar Már. Hann segir að
Lífland hafi um árabil flutt inn gólf-
bita frá bæði Hollandi og Danmörku
en það hafi lengi verið draumur hjá
sér, og eflaust mörgum öðrum, að
geta framleitt þessa vöru hérlendis.
„Vandamálið var að það er mjög
erfitt að liggja með steinbita á lager
og við þurftum að flytja töluvert
magn í einu til landsins til þess að
ná flutningskostnaði niður. Það hafa
verið framleiddir bitar hérlendis
áður og við erum ekki þeir fyrstu.
Bændur hafa meira að segja steypt
þetta sjálfir í vissum tilvikum,“ segir
Gunnar.
„Í fyrrasumar var Árni á fundi
með mér og þá nefndi ég þessa hug-
mynd, hvort fyrirtækið hans gæti
ekki framleitt steypta gólfbita í fjós
og Lífland sæi um sölumálin. Hann
greip hugmyndina á lofti og áður en
ég vissi af var hann búinn að smíða
fyrsta steypumótið. Síðan tók við
þróunarvinna og töluverðum fjár-
munum er búið að verja í mótasmíði
og undirbúning.“
Lengdir að óskum kaupenda
Árni segir að steypumótin, sem
þeir félagar nota til að smíða gólf-
bitana, séu úr olíusoðnum kross-
viði og plasti. „Fyrstu mótin sem
við reyndum voru úr trefjaplasti en
þau reyndust of dýr og óhentug. Nú
eru mótin í þremur pörtum og vinna
við að setja þau saman, steypa og
losa þau utan af bitunum er orðin
viðunandi. Töluverð handavinna
er fólgin í framleiðslunni en við
steypum í nokkrum mótum í hvert
sinn. Það er ekki stórmál að breyta
lengdinni á bitunum en við bjóðum
lengdir á bilinu 1 meter og upp í 4
metra.“
Árni segir að það geti verið mjög
hagkvæmt fyrir bændur að fá bit-
ana í nákvæmlega réttum lengdum
svo að ekki þurfi að saga þá til á
staðnum, eins og oft þarf að gera
með bita í stöðluðum stærðum. „Við
það eru járnin söguð og þá standa
eftir opin sár, sem við vitum hvað
þýðir – járnin fara fljótlega að ryðga
og eftir það er lífaldur bitans ekki
langur. Hjá okkur er a.m.k. 35 mm
steypuhula í kringum öll járn.“
Hvernig eru bitarnir frábrugðnir
þeim bitum sem hingað til hafa verið
fluttir inn frá útlöndum?
Árni er til svara og segir að í
fyrsta lagi sé yfirborð þeirra hrjúft
en ekki slétt. „Nú eru menn farnir
að saga raufar í sléttu bitana til að
gera þá stama. Okkar bitar eru meira
járnabundnir en venjan er, þeir eru
16 cm þykkir og fimm bita flekar
eru 82 cm á breidd. Við notum 10
mm járn í bindinguna og það eru
þrír teinar í hverjum bita. Þeir þola
mikið álag, t.d. að keyrt sé á þeim á
þungum vélum. Því er við að bæta
að kanturinn er með 25 mm brún
sem kemur í veg fyrir að brotni úr
bitanum sem hefur verið algengt
vandamál víða og bændur þekkja,“
segir Árni.
Gunnar Már segir að yfirleitt taki
bændur minni einingar þegar verið
er að gera upp gömul fjós eða breyta
kálfahúsum. „Bitarnir eru fáanlegir
allt upp í 5 bitaraðir í hverjum fleka
en þeir eru vissulega ekki auðveldir
í meðförum sökum þungans. Það er
algengara að menn taki tveggja bita
fleka í viðbætur og viðgerðir en þeir
eru 33 cm á breiddina. Í nýrri fjósum
eru frekar teknir heilir flekar og svo
púslað saman.“
Er verið að breyta fjósum eða
byggja ný um þessar mundir?
„Já, það eru merkilega margir
bændur í framkvæmdum, ýmist
að breyta fjósum hjá sér eða að
endurnýja,“ segir Gunnar Már og
er bjartsýnn á að nýju bitarnir muni
gefast vel í íslenskum fjósum. „Við
erum þegar búnir að setja bitana upp
í einu fjósi og pantanir liggja fyrir í
tvö til viðbótar.“
Prófanir lofa góðu
„Við erum búnir að láta gera
forprófanir á bitunum hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem
komu mjög vel út. Á næstu vikum
verða þeir hins vegar teknir til
frekari rannsókna og í kjölfarið
munum við gefa út kynningarefni
um vöruna. Við höfum tröllatrú á
bitunum og erum vissir um að þeir
muni reynast vel í framtíðinni. Þetta
er íslensk framleiðsla og búið að
leggja töluverða vinnu í þróunar- og
undirbúningsstarf. Steypublandan
í bitunum er hönnuð af Karsten
Iversen, verkfræðingi hjá Ístaki,
sem hefur verið okkur innan hand-
ar í þróuninni ásamt Geir Sædal í
Keflavík. Öll hráefni eru sérvalin,
sement frá Aalborg Portland og
mölin úr Seljadalsnámum og frá
Björgun,“ segir Árni.
Erlendu bitarnir of dýrir
Gunnar Már segir að Lífland hafi
um árabil boðið upp á heildarlausnir
í fjósinnréttingum en markmiðið
með gólfbitaframleiðslunni sé ekki
síst að efla innlenda framleiðslu.
„Við höfum heimsótt bændur og
sýnt mönnum sýnishorn. Viðbrögðin
eru jákvæð og ég heyri ekki annað
en að menn séu ánægðir.“ Gunnar
Már segir að verðið sé töluvert hag-
stæðara en Lífland hafi getað boðið
á erlendu bitunum hingað til. „Við
erum hættir að flytja inn erlendu
bitana því þeir eru einfaldlega of
dýrir þegar allt er talið.“
Í lokin segist Árni vilja hvetja
bændur til þess að hafa samband
ef þeir eru með góðar hugmyndir
að forsteyptum vörum. „Við erum
tilbúnir til að gera hvað sem er
fyrir bændur! Ef þá vantar t.d.
steyptar undirstöður eða annað þá
getum við framleitt nánast hvað
sem er.“ /TB
vinna saman að því að framleiða og selja gólfbita í gripahús. Myndir TB
hverri sveit. Mynd: Girðir
kornastærð.
steypusíló.
efnum Árna G. Svavarssonar.
Bitarnir eru 16 cm þykkir og járnbentir með 10 mm steypustyrktarjárni.
gólfplötu.