Bændablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 201216
Snorri Sigurðsson segir frá belgískri landbúnaðarsýningu
Margt að sjá, skoða og smakka á Libramont 2012
Belgíska landbúnaðarsýningin
Libramont var haldin dagana 27.-
30. júlí síðastliðinn en Libramont
er lítill bær syðst í Belgíu og því
hentar sýningin afar vel fyrir
bændur í Frakklandi, Lúxemborg
og Þýskalandi auk að sjálfsögðu
heimamanna. Sýningin er hefð-
bundin sumarsýning þar sem
saman koma bæði sýnendur á
landbúnaðartækjum og –tólum,
söluaðilar á ýmsum smávörum
og mat en einnig bændur sem sína
búfénað.
Alls sóttu sýninguna í ár um 200
þúsund gestir en rétt um 650 aðilar
kynntu starfsemi sýna. Mun fleiri
tóku þátt í starfsemi sýningarinnar
enda er stór hluti hennar kynbóta-
sýningar gripa og keppni á hestum.
Samtals voru 3.500 gripir skráðir
til keppni þessa fjóra daga, allt frá
nautgripum, hrossum og sauðfé og
til asna, svína og alifugla.
Sýninguna í ár sótti hópur
Íslendinga í tengslum við fagferð í
landbúnaði um Frakkland og Belgíu
en nánar verður greint frá ferðinni
síðar hér í Bændablaðinu.
Mikil áhersla á hesta og
hestaíþróttir
Athygli vakti á sýningunni hve
mikil áhersla var lögð á hestaíþróttir
og margskonar vörur. Þannig var
alltaf eitthvað um að vera á keppnis-
svæðinu en hindrunarstökk fyllti vel
út í dagskrána enda tilkomumikið
að fylgjast með hestum og knöpum
taka þátt í þeirri íþrótt. Þá var mikill
fjöldi af sölubásum fyrir áhugafólk
á þessu sviði þar sem hægt var að
kaupa á staðnum allt frá fatnaði,
hnökkum og reiðtygjum upp í heilu
hesthúsin og allt þar á milli. Margir
voru jafnframt að kynna fóður og
fæðubótarefni fyrir hross og var
mikil fjölbreytni þar á boðstólum.
Síðast en ekki síst ber að nefna
kynbótasýningu ólíkra hestakynja
þar sem mjög gaman var að fylgjast
með því fyrirkomulagi sem notað
var við kynningu á stærri hestakynj-
unum, en tveir sýna slík hross þar
sem annar teymir en hinn hleypur
á eftir og „rekur“ hestinn áfram!
Kepptu í fegurð asna
Auk kynbótasýningar á hestum var
stórsýning á nautgripum af ýmsum
kynjum, auk þess sem nokkrir asnar
voru leiddir um og verðlaunaðir.
Ekki var keppt í fleiri gripaflokkum
en þó voru fleiri gripir til sýnis fyrir
gesti og gangandi. Afar vel var búið
að skipulagsmálum fyrir þá sem
komu með gripi á sýninguna, bæði
varðandi smitvarnarmál en einnig
aðbúnað. Þannig var sérstakt tjald
sett upp þar sem þvottur fór fram,
með góðri þurrk- og blástursað-
stöðu en á sýningum sem þessum
skiptir útlitið afar miklu máli og
ekki óalgengt að sjá hárlakksbrúsa
á lofti, gel og hárþurrkur!
Alltaf sýningar í gangi
Á miðju sýningarsvæði Libramont
er grasilagt sýningarsvæði með
stúkum svo auðveldara sé að
fylgjast með. Á þessu svæði var
skipulögð dagskrá alla dagana þar
sem kynntir voru bæði gripir og
vélar en einnig voru margskonar
skemmtilegar uppákomur, s.s. sýn-
ing á veðhlaupahundum þar sem
þeir geystust um endilangt svæðið
á hreint ótrúlegum hraða. Þá komu
fram ýmsir hópar sýnenda ólíkra
hestakynja og settu upp mikilfeng-
legar sýningar. Í næsta nágrenni var
svo annað sýningarsvæði þar sem
áhugamenn og –konur um gröfur og
sturtuvagna af ýmsum gerðum gátu
svalað forvitni sinni. Bæði var tækj-
unum ekið í hringi, í torfærur og
svo var að sjálfsögðu bæði mokað
upp á vagn og ofan í holur. Á þriðja
sýningarsvæðinu var svo boðið upp
á torfæruakstur í nokkrum jeppum
undir öruggri stjórn ökumanna
frá viðkomandi bílaumboðum.
Mikil ásókn var hjá gestum í þessa
skemmtilegu afþreyingu.
/Texti og myndir (þar sem
annað er ekki tekið fram):
Snorri Sigurðsson
Hægt var að kaupa margar ólíkar
gerðir og tegundir af dráttarkerrum
fyrir hesta.
Sýnendur lögðu margir hverjir sig
fram um að gera hesta sína afar
skraut lega.
þarfaþing sagði sölumaður í einum
að lit en svartar og hvítar.
Þessi asni vann til verðlauna en var
þó ekki alveg sáttur við að láta teyma
sig og á endanum þurfti þrjá menn
í það verk.
Mynd /Sindri Fannar Sigurbjörnsson
smávinnslum af ýmsum toga. Þar mátti sjá heimagerða osta, sælgæti og
svo ótrúlegt úrval af unnum kjötvörum, auk tækja og tóla til heimavinnslu.
en einnig saltaðar og þurrkaðar, sem rík hefð er fyrir í suðurhluta Evrópu.
Þessi skemmtilega útfærsla fyrir meðhöndlun á felldum trjám var gerð fyrir
dráttarvél og tengd við þrítengið.
Allir helstu framleiðendur dráttarvéla voru með vélar sínar á sýningunni í
nánast öllum hugsanlegum stærðum. Athygli vakti þó að þarna mátti einn-
ig sjá dráttarvélategundir sem eru ekki algengar hér á landi eins og þessi
austurríski Lindner.
konur og karlar tókust á við skeifusmíði og í járningum.
Mörg falleg tilþrif voru sýnd í íþróttakeppninni á hindrunarstökkvellinum.
Á sýningunni var mikil áhersla
upp á lausnir varðandi hauggas-
vinnslu, raforkuframleiðslu með
sólarvarma eða jarðvarma og svo
auðvitað vindmyllur. Þessi óvenjule-
ga útfærsla af vindmyllu var einnig
kynnt þarna sem nýjung.