Bændablaðið - 09.08.2012, Qupperneq 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012
Frá Evrópusambandshópi lífrænna landbúnaðarhreyfinga
Í vor fundaði Evrópu-
sambands hópur lífrænna
landbúnaðarhreyfinga (IFOAM
EU Group) í Schæffergården
í Gentofte, skammt frá
Kaupmannahöfn.
Sjálfur var fundurinn haldinn
dagana 18.-19. apríl í kjölfar 6.
Evrópuráðstefnunnar um framtíð
lífræns landbúnaðar innan CAP,
sameiginlegrar landbúnaðarstefnu
ESB. Því var þetta kjörið tækifæri
til að fá yfirsýn yfir stöðuna og heyra
m.a. sjónarmið þeirra sem starfa við
þennan málflokk í Lífrænu deildinni
hjá ESB í Brussel.
Danir sýna gott fordæmi
Þegar ég sótti Heimsráðstefnu
IFOAM í Kaupmannahöfn sumarið
1996 vakti athygli hve fjölþætt
starfsemi var í gangi í lífræna
geiranum í Danmörku. Bændur
voru farnir að fá býsna góðan
aðlögunarstuðning, háskólar
og bændaskólar tóku kennslu
og rannsóknir föstum tökum,
markaðsmálin voru í örri þróun og
verkalýðshreyfingin studdi þessa
breytingu í búskaparháttum, m.a.
vegna atvinnusköpunar. Allt hefur
þetta skilað árangri með ýmsum
hætti og Edvald Vestergård, forseti
Organic Denmark, samtaka bænda
í lífrænum búskap í Danmörku,
greindi m.a. frá jákvæðum
áhrifum lífrænna búskaparhátta
undanfarin 25 ár á framleiðslu
matvæla í hæstu gæðaflokkum,
betri frjósemi jarðvegs, bætta
velferð búfjár, aukinn líffræðilegan
fjölbreytileika og mótvægi gegn
útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Nú er staðan þannig að nær 10%
landbúnaðarframleiðslunnar
í Danmörku er lífrænt vottuð
samanborið við 15% í Austurríki
sem er lengst komið í þessari
þróun og um 1% á Íslandi sem er
meðal þeirra Evrópuþjóða sem reka
lestina. Tvennt vekur sérstaklega
athygli í Danmörku: Í fyrsta lagi
mikil fjölbreytni í framboði á lífrænt
vottuðum vörum í verslunum og
sú staðreynd að 75 % hráefnis til
matargerðar í mötuneytum opinberra
aðila í Kaupmannahöfn, svo sem á
barnaheimilum og dvalarheimilum
aldraðra, er lífrænt vottað. Í
öðru lagi hið mikla rannsókna-
og þróunarstarf sem ráðuneyti
landbúnaðarmála beitir sér fyrir
víða um land en nú eru í gangi 11
verkefni undir svokallaðri ICROFS
áætlun ( www.icrofs.org/organicrdd)
þar sem unnið er markvisst að lausn
ýmissa vandamála sem bændur í
lífrænum búskap glíma við, bæði á
sviðum jarðræktar og búfjárræktar.
Einnig taka Danir virkan þátt í
lífrænum Evrópuverkefnum undir
merkjum CORE samstarfsins (www.
coreorganic2.org).
Nýr bændahópur
Þótt Evrópusambandshópur lífrænna
landbúnaðarhreyfinga hafi það
meginhlutverk að fjalla um ESB-
reglugerðir um lífrænan landbúnað,
sem hafa verið í stöðugri þróun
síðan þær fyrstu voru settar fyrir
20 árum, er einnig fjallað um ýmis
skyld efni. Bændur innan hópsins
hafa verið að beita sér fyrir stofnun
undirhóps , eins konar vinnuhóps, og
var honum hleypt af stokkunum að
morgni 18.apríl áður en fundurinn
hófst. Bændahópurinn mun skoða
sérstaklega aðkomu lífrænna bænda
að þessu samstarfi en mörgum
þykir regluverkið vera orðið
mjög viðamikið og flókið. Sem
starfsmaður bændasamtaka skráði
ég mig strax í hann. Mikilvægt
er að neytendur geti treyst því
að vörur, sem eru kynntar og
markaðssettar sem lífrænar, séu
vottaðar í samræmi við lög og
reglur, bæði ESB-reglugerðir og
reglur vottunarstofa. Það var því
lífrænum bændum og öðrum í
lífræna geiranum mikið áhyggjuefni
þegar um komst um alvarlegt
svikamál á Ítalíu í fyrra. Reyndar
var uppruni hráefnisins frá Rúmeníu
og aðeins fáar röngu vottanirnar
voru frá ítölskum vottunarstofum.
Sem betur fer var málið upplýst að
fullu eftir umfangsmiklar rannsóknir
hjá 21 fyrirtæki, auk Sunnyland,
sem aðallega tengdist málinu.
Markaðurinn skaðaðist tímabundið
en þetta sýnir hve góður rekjanleiki
og traust eftirlit skipta miklu máli.
Reglur um alifugla, gróðurhús
o.fl. í endurskoðun
Vottunarstofan Tún ehf., sem vottar
lífræna framleiðsluhætti hér á
landi, er með ESB-viðurkenningu
en Ísland , sem aðili að Evrópska
efnahagssvæðinu, miðar við þann
ramma sem reglugerðir ESB setja
( EC nr 834/2007, 889/2008 og
1235/2008). Á þessum grundvelli
kem ég fram í hópnum sem fulltrúi
Íslands og hef gert síðan 2003. Að
vanda voru mörg efni á dagskránni.
Miklum tíma var varið í nýjar reglur
um alifugla , bæði til eggja- og
kjötframleiðslu, en þær hafa verið í
undirbúningi um árabil. Vinnuhópur
lagði fram tillögur í mörgum liðum
sem fóru í atkvæðagreiðslu er
tekið verður mið af við endanlega
afgreiðslu. Þarna voru á ferðinni
ýmis álitamál en þess er vænst
að hinar nýju reglur fái jákvæðar
móttökur hjá Lífrænu deildinni í
Brussel og sjái brátt dagsins ljós
eftir frekari umfjöllun þar og í hinni
fjölþjóðlegu SCOF staðlanefnd ESB
fyrir lífrænan landbúnað. Annar
stór liður á dagskránni voru nýjar
gróðurhúsareglur sem hafa verið til
meðferðar um árabil en þær hefur
sérstakur hópur sérfræðinga frá
ýmsum löndum samið. Enn eru miklar
umræður um ýmis atriði og ljóst er að
þær reglur, sem hingað til hefur verið
unnið eftir í hinum ýmsu löndum,
eru nokkuð breytilegar. Í stuttu máli
sagt fylgja bresku Soil Association-
reglurnar best grundvallarmarkmiðum
lífrænnar ræktunar og er gott
samræmi á milli þeirra og nýlegra
reglna Vottunarstofunnar Tún
ehf um lífræna gróðurhúsarækt.
Sérfræðingahópurinn vinnur áfram
í málinu og er þess vænst að farsæl
niðurstaða náist áður en langt um
líður. Nokkuð var rætt um ýmsar
skilgreiningar í landbúnaði, svo
sem á hugtökunum "verksmiðjubú"
og "smábýli" en þær eru nokkuð
breytilegar eftir löndum. Kallað var
eftir samræmingu.
Erfðabreyttri ræktun hafnað
Að vanda var rætt um erfðabreyttar
lífverur (GMOs) sem eiga ekki heima
í lífrænni ræktun og hefur verið lýst
yfir algjöru banni á ræktun þeirra
á stórum svæðum í Evrópu. Um
þau mál verður fjallað á sérstakri
ráðstefnu í september í haust (www.
gmo-free-regions.org). Það er nú að
koma æ betur í ljós í þeim löndum, þar
sem ræktun erfðabreyttra nytjajurta er
stunduð, að eiturefnanotkun hefur
ekki minnkað og hvorki bændur
né neytendur njóta góðs af slíkum
breytingum, aðeins líftæknifyrirtækin,
flest með aðsetur í Norður -
Ameríku. Þau fylgja greinilega
eins konar heimsvaldastefnu
í matvælaframleiðslu undir
einkaleyfavernd og að mínum dómi
ættu bændasamtök allra landa að
vera betur á verði því að sporin
hræða, t.d. í Bandaríkjunum. Þar
eru samtök lífrænna framleiðenda í
harðri baráttu, og einnig bændur í
hefðbundnum búskap, gegn ofurvaldi
fjölþjóðafyrirtækisins Monsanto o.fl.
sem hafa komið ár sinni vel fyrir
borð, m.a. hjá Obama forseta (www.
organicconsumers.org). Að mínum
dómi þurfa íslensk stjórnvöld að vera
miklu betur á verði því að eins og
staðan er í dag myndi t.d. dreifing
erfðabreytts byggs um sveitir landsins
geta stórskaðað hreinleikaímynd
íslensks landbúnaðar og jafnframt
takmarka eða útiloka eðlilega þróun
lífrænnar ræktunar í framtíðinni.
Þess má geta að núverandi
forseti Evrópusambandshóps
lífrænna landbúnaðarhreyfinga er
Christopher Stopes frá Bretlandi og
Marco Schluter frá Þýskalandi veitir
skrifstofu hópsins í Brussel forstöðu.
Aðstaðan á Schæffergården var
til fyrirmyndar og sömuleiðis
skipulagning fundarins.
S: 567-8888
WM-NANO
Stálgrindarhús
Til sölu stálgrindarhús, 7 Sperrur, B 19.6 H 4,
verð 3.400.000.- + vsk
Hús 2 er 200 m2 með 5 tonna hlaupaketti
verð 5.000.000.- + vsk
Uppl. í síma 699-7666, Siggi
landsráðunautur í lífrænum búskap
og landnýtingu
Bændasamtök Íslands
ord@bondi.is
Lífrænn landbúnaður
Ólafur R. Dýrmundsson
Framleiðum
Vélboða mykjudreifara
í mörgum stærðum
Heimasíða. www.velbodi.is