Bændablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012
Sama ættin hefur búið að Teigi 1
síðan 1918. Frá árinu 1955 bjuggu
með foreldum Jens bróðir hans
Ágúst Jóhannsson og Sigrún
Runólfsdóttir. Var þá búið með
kýr og kindur. Jens tók við þeirra
hlut árið 1972 en tók þá eingöngu
við fénu og kúabúskap var hætt á
jörðinni. Árið 1978 tóku Jens og
Auður við hlut foreldra Jens og
hafa rekið búið síðan.
Býli? Teigur 1.
Staðsett í sveit? Fljótshlíð.
Ábúendur? Jens Jóhannsson og
Auður Ágústdóttir, Guðni Jensson
og Arna Dögg Arnþórsdóttir,
Tómas Jensson (einbúi í ham-
ingjuleit).
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Jens og Auður eiga 4 syni og 6
barnabörn.
Stærð jarðar? Jörðin er um 700
ha og þar af er ræktað land um
60 ha.
Tegund býlis? Sauðfjárbú. Einnig
hefur Jens keyrt skólabílinn í
Fljótshlíðinni í 38 ár með
bús kapnum.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
700 fjár og 10 hestar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Á veturna er byrjað að keyra
skólabílinn og svo taka við gegn-
ingar þegar heim er komið. Ánum
er svo gefið aftur seinni part dags.
Á sumrin fer svo mestur tíminn
í heyskap, girðingar og viðhald
útihúsa.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Ef fólk hefur áhuga á búskap
þá eru öll bústörf skemmtileg.
Árstíðirnar hafa allar sína kosti
en líklega er vorið mest spenn-
andi því þá fer gróður af stað og
sauðburður hefst. Það er nú samt
alltaf viss söknuður að horfa á
eftir lömbum á sláturbíl á haustin.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur eftir 5 ár? Yngra fólkið
verður jafnvel farið að spreyta sig.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þau eru bara í
ágætis málum. Mætti stundum huga
meira að samstöðu og heildarhags-
munum bænda.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Vonandi vel. Huga þarf samt að því
að nýliðun í greininni geti átt sér
stað. Því það er fátt skemmtilegra
en að keyra um blómlegar sveitir
landsins og sjá að þar sé stundaður
almennilegur búskapur en ekki að
þar séu eintómir sumarbústaðir eða
hobbíjarðir.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Í lambakjötinu, unnum mjólkur-
afurðum og ullarafurðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, skyr, smjör og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt að sjálf-
sögðu með nýjum kartöflum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Ætli það hafi ekki
verið þegar fénu var hleypt í nýju
fjárhúsin á sínum tíma.
Nú er grilltíminn í hámarki og
því nauðsynlegt að nýta tímann
til hins ítrasta á meðan hann er.
Að þessu sinni er uppskrift eftir
landsliðskokkinn Hrefnu Sætran
að grísakótilettu með hvítlauks-
limesósu og í eftirrétt er mildur og
góður brasilískur kaffibúðingur.
Grísakótiletta með hvítlauks-limesósu
– fyrir fjóra
800 g úrbeinaðar grísakótilettur
2 lime
4 stk. hvítlauksrif
1/2 tsk. chili-flögur
60 ml ólífuolía
1/4 búnt kóríander
salt
pipar
Aðferð:
Setjið safann úr limeinu, fínt saxaðan
hvítlaukinn og chili-kryddið í skál
og bætið olíunni rólega út í. Saxið
kóríander gróft niður og setjið út í.
Penslið svínakjötið og kryddið það
með salti og pipar. Grillið á rjúkandi
heitu grilli í 6 mínútur á hvorri hlið.
Brasilískur búðingur
– fyrir fjóra
60 g smjör
30 g hveiti
60 g sykur
250 g rjómi
1/2 bolli mjólk
1 espresso bolli
2 msk. kaffilíkjör
Aðferð:
Bræðið smjörið í sósupotti og bætið
sykri saman við. Látið verða að
léttri karamellu og bætið því næst
nýlöguðu kaffinu og líkjörnum
saman við. Hrærið hveiti saman
við mjólk í skál og blandið síðan
saman við smjörblönduna í pottinum
og þeytið vel. Blandið rjóma því
næst varlega saman við allt, hitið
aftur upp og látið blöndu þykkna
um stund yfir vægum hita og hrærið
stöðugt í á meðan. Fjarlægið pott af
hita og hrærið áfram í blöndunni í
3-4 mínútur. Komið svo blöndunni
fyrir í fjórum litlum hringlaga mótum,
annaðhvort ál eða silikon. og frystið
í tvo tíma. Losið ísbúðing úr mótum
á eftirréttardiska og skreytið með
súkkulaðitaumum úr dökku bræddu
súkkulaði. /ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Þegar búið er að gæða sér á girnilegri grillaðri grísakótilettu með hvítlauks-limesósu að hætti Hrefnu Sætran jafnast
Grísakótiletta
– með hvítlauks-limesósu
Teigur
MATARKRÓKURINN