Bændablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012
Smíðum glugga, hurðir og opnanleg fög í
þeim stærðum og gerðum sem henta þér.
www.kemi.is • Sími: 544 5466 • Tunguhálsi 10 , 110 Reykjavík
UMHVERFISVÆNT BÆTIEFNI FYRIR ELDSNEYTI
ALLT AÐ 20%
ELDSNEYTISSPARNAÐUR
YFIR 50%
MINNI MENGUN
Verið velkomin á sýningarsvæði okkar
á vélasýningunni Hrafnagili 10-13 ágúst
Vélasýning Hrafnagili
VERKIN TALA
FR
U
M
Heyskapur hefur gengið
vel í brakandi þurrki
„Heyskapur hefur heilt yfir
gengið mjög vel, enda viðrað
einstaklega vel til að þurrka og
rúlla,“ segir Ólafur G. Vagnsson,
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar. Brakandi þurrkur
hefur verið nánast um land allt
undanfarnar vikur.
Hann segir sprettu misjafna eftir
svæðum, þar sem grunnt sé niður á möl
sé hún lakari og eins á sauðfjárbúum
þar sem bændur beittu tún fram eftir
sumri. „Annars er að því er ég best
veit ágætis spretta víða og margir eru
komnir vel áleiðis með seinni slátt, sem
þó er aðeins seinni á ferðinni en oft
áður, menn byrjuðu slátt í seinna lagi
þetta sumarið,“ segir Ólafur.
Heyskapartíð hefur almennt verið afbragðsgóð að sögn Ólafs Vagnssonar og uppskera víðast hvar í góðu meðallagi.
Hér er verið að slá tún við Skútustaði í Mývatnssveit, Skjólbrekka í baksýn, á milli gömlu og nýju prestbústaðanna.
Mynd: MÞÞ