Bændablaðið - 09.08.2012, Síða 38
FYRSTI BÓNDINN SEM
GISTIR
Fyrsti bóndinn sem gisti á hinu
nýja hóteli Bændasamtakanna var
Sigmundur Sigurðsson frá Syðra-
Langholti í Árnessýslu. Eftir að
hann hafði skráð sig á gestalista var
honum tjáð að hann væri boðs-
gestur.
FYRSTU LÉTTADRENGIRNIR
Fréttamaðurinn Óli Tynes heitinn
og Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
gerðarmaður voru fyrstu „picco-
loarnir“ á Hótel Sögu.
FYRSTU STARFSMENN
Í STJÓRNUNARSTÖÐUM
Þorvaldur Guðmundsson var fyrsti
hótelstjórinn, Ragnar Ragnarsson
aðstoðarhótelstjóri, Gunnar Óskars-
son var móttökustjóri, Valur Jóns-
son yfirþjónn, Halldór Vilhjálms-
son yfirmatreiðslumaður og Bertha
Johansen gjaldkeri.
UMSJÓN HERBERGJA
Ingibjörg Guðmundsdóttir hafði
yfirumsjón með herbergjastúlkum,
en fyrirliðar þeirra voru þær Anna
Guðmundsdóttir og Hulda Davíðs-
dóttir.
JOHNSON HARÐUR
Í PRÚTTINU
Þegar Lyndon B. Johnson, þáver-
andi varaforseti Bandaríkjanna,
gisti á Sögu voru uppi miklar
varúðarráðstafanir. Haukur Gunnars-
son í Rammagerðinni var fenginn
til að koma með minjagripi í
hótelið til þess að spara varafor-
setanum og fylgdarliði hans það
ómak að fara út að kaupa minja-
gripi. Johnson var harður við að
prútta en Haukur kunni ekki við að
þrátta við varaforsetann og hafði
því lítið upp úr krafsinu.
GLEYMDI ÖLLUM
MANNASIÐUM
Sagan segir að í veislu sem haldin
var Lyndon B. Johnson til heiðurs í
Súlnasalnum hafi hann setið á milli
Ásgeirs Ásgeirssonar forseta og
Ólafs Thors. Johnson féll prýðilega
við Ólaf, gleymdi þess vegna öllum
mannasiðum og snéri bakhlutanum
að Ásgeiri allan tímann.
Margar góðar minningar frá Sögu
Sigrún Kristín Ægisdóttir hárgreiðslumeistari hefur rekið hárgreiðslu-
stofuna Hársögu á Hótel Sögu frá 1982. Hún kann vel við sig á
Sögu og segist hafa eignast marga góða vini þar.
Sigrún byrjaði á Sögu sem nemi í hár-
greiðslu árið 1978, sextán ára gömul.
Hún tók við Hársögu tvítug og hefur
rekið stofuna allar götur síðan eða í
34 ár. „Ég veit hreinlega ekki hvaða
tryggð þetta er en það er greinilega
eitthvað við húsið sem ég kann við og
sem heldur mér hér. Okkur sem vin-
num hér líður svo vel og það er góður
vinnuandi í húsinu.“
„Hér vinnur mikið af góðu fólki“
„Ég hef verið hér síðan litla Saga
var og horft upp á mikla stækkun
og gríðarlegar breytingar. Hér hef
ég kynnst mörgu góðu fólki, eignast
marga góða vini og á því margar góðar
minningar frá Sögu.“
Að sögn Sigrúnar er stór hluti viðskipta-
vina Hársögu fólk sem kemur utan úr
bæ, mest Vesturbæingar, en inn á milli
eru alltaf hótelgestir. „Ég er stolt af því
að eiga minn fasta kúnnahóp en um
leið er alltaf sjarmerandi að fá hingað
hótelgesti og gaman að kynnast nýju
fólki.“
Túperað hár í tísku um 1970
Sigrún segir að fyrst eftir að Hótel Saga
opnaði hafi Hársaga orðið mjög vinsæl
hárgreiðslustofa og þótt fínt að koma í
lagningu þangað. „Í kringum 1970 var
túperað hár í tísku og allir stólar upp-
teknir frá morgni til kvölds af konum í
lagningu. Hártískan hefur breyst mikið
frá þeim tíma og allt mikið léttara
í dag. Í dag eru viðskiptavinirnir af
báðum kynjum, mikið verið að lita og
klippa hár og minna um þessar stífu
greiðslur.“
Á ball eftir vinnu
„Einn af rómönsunum við að starfa hér
er að hafa skemmt sér í Súlnasalnum
og á Mímisbar í gegnum árin. Stundum
hlustaði ég á hljómsveitirnar á meðan
þær voru að æfa og stundum áttum við
stelpurnar það til að skella okkur beint
á Mímisbar og jafnvel á ball í Súlna-
salnum efir vinnu,“ segir Sigrún.
Hárgreiðslukona Evu Joly
Eins og búast má við hefur Sigrún
greitt ýmsu þekktu fólki sem hefur gist
á Hótel Sögu. „Ég sá um hárgreiðsluna
fyrir Silvíu Svíadrottningu þegar hún
gisti hér ásamt Karli Gústafi. Í gegnum
árin hef ég oft verið pöntuð upp á svít-
una og meðal annars greitt eiginkonu
forsætisráðherra Finnlands nokkuð oft,
auk þess sem ég sé um hárgreiðsluna
fyrir Evu Joly þegar hún heimsækir
Ísland,“ segir Sigrún Kristín Ægisdóttir
hárgreiðslumeistari að lokum.
Heimsóknir erlendra þjóðhöfðingja og háttsettra ráðamanna
hafa verið tíðar á Hótel Sögu í gegnum árin. Sigríður Ingvars-
dóttir, hótelstjóri á Park Inn Ísland, starfaði lengi á Sögu og þar
á meðal sem forstöðumaður gistisviðs. Hún segir skipulag
í kringum opinberar heimsóknir oft umfangsmikið.
Opinberar heimsóknir
„Í mínum huga er alltaf jafn gaman að taka á móti gestum en formið og
siðavenjurnar í kringum opinberar heimsóknir er ólíkt því sem maður á
að venjast á venjulegum vinnudegi,“ segir Sigríður.
Mikil undirbúningur vegna Hillary Clinton
„Sumar þessara heimsókna voru undirbúnar með margra vikna fyrirvara
og í samstarfi við erlendar undirbúningsnefndir og öryggisverði, sem
voru hér jafnvel í nokkrar vikur og fundað með á hverjum degi. Mér
er minnisstætt þegar Hillary Clinton var boðið til landsins árið 1999
vegna ráðstefnu sem kallaðist Konur og lýðræði. Undirbúningurinn
fyrir þá heimsókn var mikill og öryggisgæslan einnig. Það var farið
vandlega yfir herbergjaskipan, hver gisti hvar og hvernig skyldi haga
öllum sköpuðum hlutum. Hvaða bílastæði skyldi taka frá og um tíma
var hótelið girt af.
Við sem stóðum í þessu sváfum lítið nóttina fyrir þessar heimsóknir,
enda allt gert til að gera þær sem glæsilegastar. Verkefnið var samt sem
áður skemmtilegt og stressið sem fylgdi því líka.“
Tívolí í Súlnasalnum
Útgáfutónleikar Stuðmanna vegna hljómplötunnar Tívolí voru haldnir í
Súlnasal Hótel Sögu árið 1976. Tómas Tómasson bassaleikari segir mikið fjör
hafa verið á Sögu það kvöld enda salurinn troðfullur af fólki.
„Ástæðan fyrir því að við völdum Súlnasalinn fyrir útgáfutónleikana var ein-
faldlega sú að á þessum tíma stóðu engir aðrir staðir á sama kalíberi til boða og
okkur fannst það líka grand. Tónleikarnir tókust líka frábærlega og fólk skemmti
sér greinilega vel, alveg eins og við. Meira að segja móðir mín mætti með Imbu
frænku.“
Klæddir í stíl við umslagið
„Við klæddum okkur upp fyrir tónleikana í stíl við myndina á umslagi plötunnar,
sem var hönnuð af Önnu Björnsdóttur. Ég var klæddur upp eins og fjallkonan, Egill
var í hlutverki Hveitibjörns og Jakob var Frímann flugkappi, sem eru allt persónur
sem koma líka fram í textunum á plötunni. Aðrir í hljómsveitinni, Ragnar Sig-
urðarson trommari og Þórður Árnason gítarleikari, voru svo aftur á móti í óræðari
hlutverkum. Hjalti Hafsteinsson rótari var kynnir á tónleikunum og gaf gestum
forsmekk af því sem koma skyldi þegar hann mætti á sviðið grænn í framan.“
Ætluðum að lifa af sölunni
Tómas segir aðdragandann að útgáfu Tívolí hafa verið erfiðan. „Við tókum plötuna
upp í London, áttum ekki fyrir mat og hreinlega sultum á tímabili. Sumar á Sýrlandi
seldist mjög vel og við ætluðum að lifa af sölunni á henni en peningarnir skiluðu
sér bæði seint og illa.
Platan er að mörgu leyti merkileg, til dæmis fyrir þær sakir að
trommuleikarinn Simon Phillips, sem síðar spilaði með The Who, Toto og fjölda
annarra, lék á henni fimmtán ára gamall sem session-leikari.“
Sviðið lítið annað en sylla
„Útgáfutónleikar vegna Tívolí voru fyrsta sinn sem við spiluðum á Hótel Sögu
en við áttum eftir að gera það nokkrum sinnum eftir það, bæði á böllum og
árshátíðum. Hótel Saga er með eindæmum fallegt hús og glæsilegt, þrátt fyrir að
sviðið í Súlnasalnum hafi verið glatað á þessum tíma og nánast ekki annað en sylla.
Ég man líka eftir hávaðasúlunni, sem sló út rafmagninu ef tónlistin fór yfir ákveðinn
styrk og hún sló öllu út þegar Þórður var að stilla gítarinn sinn í hljóðprufu fyrir
tónleikana. Við töluðum við Konráð hótelstjóra eftir það og hann tók súluna úr
sambandi fyrir okkur, enda lipur maður og góður,“ segir Tómas Tómasson bassa-
leikari að lokum.
Fjallkona, Tómas Tómasson bassaleikari.
Hveitibjörn, Egill Ólafsson söngvari.
Frímann flugkappi, Jakob Frímann
Magnússon hljómborðsleikari.
Heimsóknin sem aldrei varð
„Öryggisgæslan í kringum kínverska ráðamenn er einnig mjög mikil og
engu síðri en vestrænna ráðamanna. Árið 2002 átti Jiang Zemin, forseti
Kína, að gista hér og undirbúningurinn gríðarlegur. Á síðustu stundu
var svo skipt yfir á annað hótel vegna mótmæla við Háskólabíó í tilefni
heimsóknarinnar,“ segir Sigríður.
Allt verður að ganga upp
Sigríður segir stemninguna í kringum opinberar heimsóknir mikla. „Það
verður allt að ganga upp og á réttum tíma og gaman að sjá þegar bíla-
lestin kemur að húsinu. Pikkalóarnir tilbúnir í sínum fínasta búningi til
að opna dyrnar. Hótelstjórinn og fleira starfsfólk á sínum stað til að taka
á móti gestunum.
Starfsfólkið mætti alltaf snemma og biðin því oft löng. Svo kom kallið
yfir talstöðina, „við erum hjá Þjóðminjasafninu“, og þá fór allt í gang,
alveg eins og í leikhúsi.“
Hjólin upp
„Eftir brottför erlendu þjóðhöfðingjanna og þegar verki undirbúnings-
nefndanna og öryggisvarðanna var lokið var stundum haldin veisla.
Innan bandarísku leyniþjónustunnar kallast þessar veislur „wheels up
party“, því um leið og flugvél þjóðhöfðingjans tekst á loft er vakt öryggis-
varðanna lokið og aðrir taka við,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir.
Hársaga Hótel SöguSigrún Kristín Ægisdóttir, hárgreiðslumeistari.
Gul lmo lar
M
yn
di
r:
A
nn
a
B
jö
rn
sd
ót
ti
r
Sigríður Ingvarsdóttir,
hótelstjóri á Park Inn Ísland.