Bændablaðið - 09.08.2012, Síða 39
Brunch á Skrúð
og gist í Latabæjarsvítunni
Veitingastaðurinn Skrúður á jarðhæð Hótel Sögu er vinsæll
í hádeginu og á kvöldin. Í Skrúði er barnahorn með Latabæjarþema
þar sem börnin geta leikið sér á meðan foreldrar þeirra njóta
matarins.
Skrúður er annar af tveimur veitingastöðum á Hótel Sögu. Á veturna er morgun-
verður í Skrúði. Virka daga er boðið upp á hádegishlaðborð fyrir gesti og gangandi
og fjölskyldubistró á kvöldin, en í sumar var breytt til og einnig boðið upp á
kvöldverðarhlaðborð. Um helgar er boðið upp á brunch, sem er afskaplega vinsæll
af fjölskyldufólki og þá ekki síst vegna barnahornsins sem er rekið í samvinnu við
Latabæ.
Björk Ormarsdóttir, sölustjóri Radisson Blu Hótel Sögu og Park Inn Ísland, segir
að í barnahorninu geti börnin leikið sér á meðan foreldarnir njóti matarins. „Þar
geta þau horft á sjónvarp, litað og meira að segja skrifað íþróttaálfinum bréf sem
við komum svo áfram til hans, ég hef satt best að segja ekki tölu á hvað bréfin eru
orðin mörg.“
Margir fastagestir
Skrúður opnaði 1987 og er veitingasala á jarðhæð Hótel Sögu. Að sögn Bjarkar
tekur Skrúður 120 manns í sæti og er aðsóknin mikil. „Hingað koma margir fast-
agestir og hópar mæta reglulega í hádeginu mismunandi daga vikunnar. Við fáum
einnig mikið af vina- og saumaklúbbum sem koma hingað til að spjalla saman,
spila á spil og fá sér kaffi og kökur um eftirmiðdaginn.“
Latabæjarsvítan
Björk segir að Hótel Saga og Latibær hafi farið í samstarf árið 2010 og að auk
barnahornsins í Skrúði sé eitt herbergi á hótelinu helgað Latabæ. „Við tókum eina
svítu og innréttuðum hana í anda Latabæjar. Svítan er afskaplega vinsæl meðal
barnafólks, bæði innlends og erlends og dæmi um að foreldrar hafi komið hingað
erlendis frá sérstaklega til að leyfa börnum sínum að gista í herberginu.
Latabæjarsvítan er skreytt með myndum af íþróttaálfinum, Glanna glæp og Sollu
stirðu á veggjunum. Þar eru Latabæjarleikföng, rúmföt og handklæði og allt í stíl.
Hugmyndin er að í framtíðinni verði boðið upp á barnamatseðil á Skrúði með
hollum og góðum mat fyrir börnin. Um síðustu jól var boðið upp á Latabæjar-
hlaðboð í Súlnasalnum tvær helgar í röð og salurinn fylltist um leið og var opnað,“
segir Björk.
Latabæjarsvítan er skreytt með myndum
af íþróttaálfinum, Glanna glæp og Sollu
stirðu á veggjunum.
Skrúður. Virka daga er boðið upp á há-
degishlaðborð fyrir gesti og gangandi og
steikarhlaðborð á kvöldin.
Björk Ormarsdóttir, sölustjóri Radisson Blu
Hótel Sögu og Park Inn.
VIÐBYGGING ÁKVEÐIN
Á áttunda áratugnum var tekin
ákvörðun um að byggja við
Bændahöllina. Viðbyggingin er að
norðanverðu og sjö hæðir. Fram-
kvæmdir við viðbygginguna hófust
árið 1982 og lauk 1987.
Árið 1964 var brotið blað í sögu veitingareksturs á Íslandi og
nútíminn hélt innreið sína í veitingahúsamenningu landsins þegar
Stjörnusalurinn á efstu hæð Hótel Sögu var opnaður. Í dag er sal-
urinn betur þekktur sem Grillið.
Hörður Sigurjónsson, sölustjóri veitingasviðs Radisson Blu Hótel Sögu, hefur
starfað við Grillið með hléum frá 1966 og þekkir sögu þess og rekstur vel. „Hótel
Saga var opnuð 1962, Stjörnusalurinn tveimur árum síðar og hefur starfað sem veit-
ingastaður óslitið frá þeim tíma. Stjörnusalurinn dregur nafn sitt af loftskreytingu
salarins, sem sýnir stjörnumerki dýrahringsins og hefur verið látin halda sér óbreytt
frá upphafi.“
Fyrsti veitingasalur hússins
Stjörnusalurinn var fyrsti veitingasalurinn á Sögu og í upphafi notaður undir alla
veitingastarfsemi hótelsins. „Hér var boðið upp á morgunmat fyrir hótelgesti í fjöl-
mörg ár. Veitingasalan var opin frá því snemma á morgnana og fram til miðnættis
og boðið upp á hádegismat, síðdegiskaffi og kvöldverð.“
Stjörnusalurinn var flaggskip veitingareksturs á Íslandi þegar hann var opnaður.
Nafnið Grillið var í fyrstu gælunafn á staðnum vegna þess að þar var eitt fyrsta grill-
ið á landinu. Smám saman festist nafnið og í dag er Stjörnusalurinn betur þekktur
sem Grillið.
Útsýnið engu líkt
Útsýnið frá Stjörnusalnum er engu líkt og þaðan er hægt að horfa yfir stóran hluta
Reykjavíkur, til Bláfjalla, og í suðri eru Bessastaðir og Keilir.
Halldór H. Jónsson arkitekt teiknaði Hótel Sögu og segir Hörður að hann hafi fylgst
vel með að allir munir innanhúss væru á sínum stað. „Í hans huga var hótelið hann-
að sem heild, bæði innanhúss og utan. Innréttingum í Grillinu hefur verið haldið
að mestu óbreyttu, að því undanskildu að upphækkun var sett í miðju salarins
til þess að gestir sem þar sitja geti horft yfir gesti sem sitja við gluggana og notið
útsýnisins.“
Matseðillinn fylgir tíðarandanum
Hörður segir að þrátt fyrir að Stjörnusalurinn hafi að mestu haldi ytra útliti sínu frá
upphafi hafi matseðillinn tekið miklum breytingum og fylgt tíðarandanum.
„Á árum áður var opið allan daginn, sem tengdist mikið fundahaldi hér á hótelinu
og mikið var lagt upp úr hádegisverðinum. Í dag er aftur á móti eingöngu opið á
kvöldin og boðið upp á hátíðarkvöldverð. Áherslan í dag er því allt önnur en áður
og meira lagt upp úr matseðlinum, sem er fyrsta flokks. Í dag sérhæfir Grillið sig í
samsettum réttum, eins konar óvissumatseðli fyrir matargesti sem er mjög vinsæll
sem slíkur.
Við leggjum gríðarlega áherslu á gott hráefni, góð vín og fyrsta flokks þjónustu.
Eins og gefur að skilja er ekki ódýrt að borða hér en fyrir vikið fá gestir einungis
það besta. Kokkarnir eru allir mjög færir og hafa margir þeirra lært sitt fag á þekkt-
um veitingahúsum erlendis.“
Fjöldi frægra gesta
„Við eigum marga fastagesti og fjöldi rótgróinna fyrirtækja hefur lengi haft fyrir
sið að bjóða erlendum gestum sínum hingað í mat. Hingað hefur líka komið fjöldi
erlendra stjarna og fyrirmanna í gegnum tíðina. Söngkonan Ella Fitzgerald hefur
borðað hér, Lyndon B. Johnson fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Charlton Heston
leikari og einnig Neil Armstrong, fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Mér
er þó breski leikarinn Alec Guinness einna minnisstæðastur. Hann kom hingað
reglulega og stundum nokkrum sinnum á ári í allmörg ár og gisti á hótelinu. Guin-
ness og eiginkonan sátu alltaf við sama borðið, með útsýni yfir Bessastaði og út á
Reykjanes, og borðuðu morgunmat. Hann sagði mér einu sinni að honum þætti
svo gott að koma til Íslands til að slaka á því að hér fengi hann að vera í friði og
óáreittur.“
Engu breytt þrátt fyrir lagfæringar
Að sögn Harðar er kominn tími til að hressa aðeins upp á salinn. „Við ætlum ekki
að breyta neinu útlitslega en það er að sjálfsögðu kominn tími til að endurnýja eitt
og annað. Það stendur til dæmis til að skipta um allt gler og pósta í salnum síðar á
árinu,“ segir Hörður Sigurjónsson að lokum.
Hörður Sigurjónsson, sölustjóri veitingasviðs Radisson Blu Hótel
Sögu, hóf nám sem þjónn í Stjörnusalnum 1966 og starfaði þar til
1980. Hann hóf aftur störf við hótelið haustið 2011.
Gul lmo lar
GEIMFARAR GISTA
Áhöfn Apollo 13 geimflaugarinnar
gisti á Hótel Sögu þegar geim-
fararnir heimsóttu Ísland ásamt
eiginkonum sínum í október 1970.
Þeir voru James A. Lovell, John L.
Swigert og Fred W. Haise.
MARGIR FRÆGIR GESTIR
Meðal frægra gesta sem gist hafa
á Hótel Sögu eru Neil Armstrong,
fyrsti maðurinn sem steig fæti á
tunglið og Lyndon B. Johnson, 36.
forseti Bandaríkjanna, leikararnir
Charlton Heston, Mia Farrow
og Alec Guinness, André Previn
píanóleikari og söngvararnir Lu-
ciano Pavarotti og Ella Fitzgerald.
ALLTAF VIÐ SAMA BORÐIÐ
Alec Guinness leikari gisti reglu-
lega á Sögu í nokkur ár ásamt
eiginkonu sinni, Merula Sylvia
Salaman. Guinness og Salaman
sátu alltaf við sama borðið þegar
þau borðuðu morgunmat.
MÓTMÆLI VIÐ SÖGU
Ráðherrafundur Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) var í fyrsta sinn
haldinn á Íslandi árið 1968. Tölu-
verð mótmæli voru við Hótel Sögu
vegna fundarins enda gisti fjöldi
fundargesta á hótelinu.
SKRIFSTOFUR RÝMDAR
Allar skrifstofur á þriðju hæð
Hótels Sögu voru rýmdar í júní
árið 1987 vegna fundar utanríkis-
ráðherra NATO-ríkjanna. Þetta
voru skrifstofur Búnaðarfélags
Íslands, Stéttarsambands bænda og
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Starfsfólkið tók sér sumarfrí á
meðan á fundinum stóð.
SAGA GIRT AF
Hótel Saga var fullbókuð
vegna fundar utanríkisráðherra
aðildarþjóða Atlantshafsbandalags-
ins og samstarfsríkja þess, sem
haldinn var í Háskólabíói árið
2002. Hótelið var girt af með öfl-
ugri öryggisgirðingu og þar fengu
ekki aðrir gestir að dvelja en þeir
sem tengdust fundinum.
Stjörnusalurinn – Grillið