Bændablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | fimmtudagur 29. mars 2012 Mikil breidd í íslenskri þráðlist Félagssýning Textílfélags Íslands var haldin á Korpúlfsstöðum og lauk síðastliðinn sunnudag en 38 textílkonur sýndu verk sín. Þar mætti nútíminn þjóðlegum blæ í einum skemmtilegasta sýningarsal landsins sem hýsti í byrjun síð- ustu aldar stærsta kúabú lands- ins. Þóra Björk Schram og María Valsdóttir textílkonur og meðlimir í félaginu tóku á móti blaðamanni Bændablaðsins og leiddu í gegnum salarkynnin. Fjölbreytileikinn er mikill á sýningunni því þar er jafnt prjóna- og fatahönnun, veflistaverk, tauþrykk, þæfing, útsaumur, pappírsverk, ljós- myndaverk, ljósahönnun og margs- konar óhefðbundin þráðlistaverk unnin með blandaðri tækni. Sýningin var sett upp á þremur stöðum á Listasumri á Akureyri síðastliðið sumar. „Við textílkonur elskum allt sem heitir efni. Við erum alltaf að finna einhvern efnivið og þar kemur íslenskt roð og skinn sterkt inn. Það er auðvitað alltaf verið að vinna með íslensku efnin eins og ullina, enda leitum við mikið í íslenska náttúru til dæmis með jurtalituninni því mikið af því sem við gerum er náttúrutengt. Umhverfið skapar okkur. Ég er sem dæmi með gamaldags blúndur í ljósunum sem ég geri,” lýsir Þóra brosandi og María bætir við: „Við erum ofsalega ólíkar en eigum það eitt sameiginlegt að það er mikill eldmóður í okkur. Textílfélagið var stofnað árið 1974 og núna eru um 80 meðlimir í því alls staðar að af landinu og á öllum aldri en eingöngu konur. Félagið er hattur yfir ákveðna starfsemi eins og sýninguna núna og við leigjum af félaginu vinnurýmin okkar hér í húsinu. Þannig að hér er komin fín vinnuaðstaða og mikilvægt fyrir okkur að hafa sameiginlegan vett- vang að koma á, enda er andinn hérna í húsinu alveg sérstakur og mikil saga tengd Korpúlfsstöðum.” /ehg Þóra Björk Schram og María Valsdóttir textílkonur og meðlimir í Textílfélagi Íslands við verk Ólafar Einarsdóttur en í bakgrunni má sjá hvíta stranga sem búið er að skera í laufabrauðsmynstur eftir Önnu Guðmundsdóttur. Myndir / ehg Helena Sólbrá Kristinsdóttir leitar í gamlar hefðir og þrykkir gömul mynstur á verk sín en saumar einnig. Verk eftir Ragnheiði Björk Þórisdóttur þar sem koparþræði er blandað inn í verkið. Eitt verkið á félagssýningu Textílfélagsins á Korpúlfs-stöðum sýndi nálapúða í öllum sínum fjölbreytileika en það er verk Kristveigar Halldórsdóttur.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.