Bændablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | fimmtudagur 29. mars 2012
Það er algengt viðhorf að telja líf-
ræn matvæli betri en önnur fyrir
heilsuna. George W. Bush, fyrr-
verandi forseti Bandaríkjanna,
neytti lífrænna matjurta úr garði
Hvíta hússins á sama tíma og
hann mælti fyrir erfðabreyttri
ræktun. Meðan Tony Blair mælti
fyrir erfðatækni í Bretlandi eld-
aði eiginkona hans lífræna rétti
fyrir fjölskylduna. Leiðtogar Kína
borða lífræna fæðu en leyfa erfða-
breyttum hrísgrjónum að menga
matvælabúskap landsins. M.a.s.
Hugh Grant framkvæmdastjóri
Monsanto, stærsta líftæknifyrir-
tækis heims, viðurkenndi neyslu
lífrænna matvæla. Ein af mat-
stofum þess tilkynnti reyndar
starfsmönnum að erfðabreytt soja
og maís yrðu fjarlægð úr mat sem
þar yrði á boðstólum og að „við
höfum gert þessar ráðstafanir
til að þið neytendur getið treyst
matvælum sem við framreiðum“.
En svo virðist sem fleiri en hinir
ríku og valdamiklu treysti best líf-
rænum matvælum, því talið er að
þrátt fyrir efnahagskreppu hafi
sala á lífrænum matvælum aukist
á heimsvísu um 8% milli áranna
2010 og 2011.
Sífellt bætist í sjóð ritrýndra vís-
indagagna sem styðja trú neytenda
á næringargildi lífrænna matvæla.
Niðurstöður eins umfangsmesta
rannsóknarverkefnis á þessu sviði
– Quality Low Input Food – sem
ESB fjármagnaði og stýrt var frá
Newcastle-háskóla, birtust árið
2007. Þær fólust m.a. í samanburði
á næringargildi matvæla sem fram-
leidd voru með lágmarks aðföngum
áburðar og fóðurefna (lífrænum
eða næstum lífrænum aðferðum –
LI-kerfi) eða með miklum aðföngum
(hefðbundnum aðferðum – HI-kerfi).
Í rannsóknum þessum var m.a.
kannað næringarinnihald mjólkur frá
25 breskum kúabúum. Í niðurstöðum
kom fram að mjólk frá LI-búum, þar
sem kúm var beitt í ríkum mæli á
haglendi grass og smára, var umtals-
vert auðugri af andoxunarefnum,
vítamínum og æskilegum fitusýrum
(ein- og fjölómettuðum) en mjólk úr
kúm sem aldar voru í HI-kerfinu.
Einn umsjónarmanna rannsóknar-
innar, Gillian Butler, sagði veiga-
mestu skýringuna á þessum mun
felast í því að kýr á lífrænum eða
næstum lífrænum búum séu fyrst
og fremst fóðraðar á gróffóðri og
náttúrulegri beit. (Butler, Nielsen
et al., J.Sci.Food Agric. 2008 (88):
1431-1441)
Eiturefni rýra jarðveg og skaða
heilsufar
Hefðbundinn landbúnaður byggir
mjög á eiturefnum. Bændur hafa
aðgang að 440 virkum eiturefnum
í formi a.m.k. 4000 vara sem á boð-
stólum eru. Opinber gögn í Bretlandi
sýna að á árunum 1998-2001 inni-
héldu a.m.k. 40% grænmetis og
ávaxta í breskum stórmörkuðum
eiturefnaleifar. Eiturefnaleifar í mat-
vælum ógna heilsufari.
Almenn efnanotkun skaðar jarð-
vegsörverur og dregur úr steinefna-
og vítamíninnihaldi matvæla. Bent
hefur verið á að í athugun breska
landbúnaðarráðuneytisins kom fram
að hlutfall hinna ýmsu snefilefna
í ávöxtum og grænmeti hafi á 50
ára tímabili (1940-1991) lækkað á
bilinu 12-76% (mismunandi eftir
tegundum).
Erfðabreytt ræktun leiðir til
meiri eiturefnanotkunar - sem
stuðlar að uppskerubresti og
búfjársjúkdómum
Líftækniiðnaðurinn lofaði því
að erfðabreyttar plöntur myndu
minnka eiturefnanotkun í hefð-
bundnum landbúnaði, en farið hefur
á annan veg. Dr. Charles Benbrook
notaði gögn bandarískra stjórnvalda
(USDA) til að sýna að eftir 13 ára
ræktun eb-plantna í Bandaríkjunum
(1996-2008) hafði árleg meðaltals-
notkun á illgresiseyðinum glýfosat
aukist í bómullarrækt (18,2%), soja-
rækt (9,8%) og maísrækt (4,3%).
Aukningin stafar einkum af ræktun
erfðabreyttra Ht-plantna, en þeim
hefur verið erfðabreytt til að þola
glýfosat, sem bændur geta þá notað
til að uppræta allar aðrar plöntur.
Eftir þriggja ára úðun glýfosats
fer „illgresið" að mynda ónæmi og
breytast í ofurillgresi sem bændur
verða að eyða með enn sterkara eitri
á borð við Atrazine (nú bannað í
Evrópu) eða hið öfluga 2,4-D eitur.
Glýfosat virkar þannig að það nán-
ast umlykur mikilvæg næringar-
efni (ferli sem nefnt er chelation)
og sveltir því plöntur um steinefni
á borð við sínk, kopar, mangan,
magnesíum, kalsíum og bór. Þessi
steinefni ráða miklu um heilbrigði
plantna og ekki síður heilbrigði
manna og dýra.
Talið er að úðun glýfosats á
erfðabreyttar plöntur ár eftir ár
dragi úr steinefnainnihaldi þeirra,
sem aftur veikir plöntur og gerir þær
næmari fyrir sjúkdómum.
Í Bandaríkjunum eru Ht-plöntur
(plöntur sem erfðabreytt var til
að þola illgresiseitur) ræktaðar í
miklum mæli og þar eru plöntusjúk-
dómar orðnir alvarlegt vandamál,
t.d. SDS (Sudden Death Syndrome)
í erfðabreyttu soja og GWD (Gross
Wilt Disease) í erfðabreyttum maís.
Bændur hafa einnig orðið varir við
aukna tíðni ófrjósemi og snemm-
fósturláts í svínum og nautgripum
sem fá erfðabreytt fóður, og minnk-
andi frjósemi í kjúklingum sem fá
erfðabreytt korn. Fréttir berast af
því að algeng ófrjósemi í kvígum í
Bandaríkjunum sé yfir 20% og að
skyndifósturlát í nautgripahjörðum
nemi allt að 45%.
Nokkrir kunnir vísindamenn
hafa bent á að aukin tíðni plöntu-
sjúkdóma og frjósemisvandamála
í búfé kunni að stafa af sóttkveikju
sem þróast hafi og margfaldast
vegna notkunar á glýfosati í ræktun
erfðabreyttra plantna.
Tilbúinn áburður dregur úr
næringarinnihaldi matvæla
Hefðbundinn landbúnaður er
mjög háður tilbúnum áburði um
köfnunarefni þar sem ekki er beitt
sáðskiptum matjurta og niturbindandi
plantna á borð við smára. Hátt hlutfall
köfnunarefnis í tilbúnum áburði
stuðlar að hröðum vexti grænmetis
og ávaxta, sem eykur vatnsupptöku.
Hraður vöxtur og mikil vatnsupptaka
þynna í senn næringargildi og draga
úr bragðgæðum afurða. Tilbúinn
áburður skaðar einnig vistkerfið.
Plöntur eru ekki mjög virkar við
upptöku köfnunarefnis úr áburði og
þessvegna vill það berast úr jarðvegi
í grunnvatn og ár með skaðlegum
afleiðingum fyrir vatnavistkerfi
og stuðlar að myndun og losun
nituroxíðs, sem er meðal hættulegra
gróðurhúsalofttegunda.
Erfðabreyttar afurðir auka
notkun á tilbúnum áburði
Engum plöntum hefur verið
erfðabreytt til þess að draga úr
áburðarþörf. Þvert á móti er
líklegt að t.d. erfðabreytt soja auki
áburðarþörf. Ht-soja er belgjurt og
ætti því að geta bundið köfnunarefni
í jarðvegi – en glýfosat sem úðað
er á ræktunarlönd erfðabreytts soja
kemur í veg fyrir að niturbinding
verði. Glýfosat tefur niturbindingu
í ungum Ht-sojaplöntum og dregur
úr vexti róta og sprota sem leiðir til
minni uppskeru, sem getur numið
allt að 25% í þurrkatíð. Þetta gerist
þannig, ef marka má rannsókn frá
árinu 2003, að glýfosat kemst inn
í rótarhnúða og dregur úr virkni
jákvæðra jarðvegsbaktería sem
hjálpa til við niturbindingu; glýfosat
minnkar lífmassa rótarhnúða um
allt að 28% og veldur allt að 10%
samdrætti í magni súrefnisflytjandi
próteins (leghaemoglobin) sem
einnig hjálpar til við niturbindingu
í rótum sojaplöntunnar. Einræktun
rýrir stórlega frjósemi jarðvegsins
og kallar á æ meiri notkun tilbúins
áburðar, sem getur aftur dregið úr
næringarinnihaldi matvæla og fóðurs.
Erfðabreytt (Ht-) soja er ræktað
í miklum mæli í Bandaríkjunum,
Kanada, Argentínu og Brasilíu, þar
sem einræktun er alsiða, þ.e. sama
tegund er ræktuð ár eftir ár á sömu
ökrunum.
Skiptiræktun og lífrænn áburður í
stað eiturefna og tilbúins áburðar
Í Bretlandi eru eingöngu fjögur
varnarefni af náttúrulegum uppruna
eða úr einföldum efnaformúlum
leyfð í lífrænni ræktun og voru
aðeins 10 tonn af þeim efnum notuð
árið 2003 þar í landi, meðan 31.000
tonn af venjulegum eiturefnum voru
notuð í hefðbundnum landbúnaði.
Í lífrænni ræktun eru notuð
náttúruleg áburðarefni s.s.
búfjáráburður og grænáburðarplöntur
(smári o.þ.h.) sem binda köfnunarefni.
Búfjáráburður er notaður skv.
ákveðnum leiðbeiningum og
niturbindandi plöntur eru ræktaðar á
víxl við matjurtir og þær plægðar ofan
í jarðveginn til að fá köfnunarefni
og stuðla að vexti jarðvegsörvera.
Þessi náttúrulegu áburðarefni
stuðla að eðlilegum vaxtarhraða og
vökvaupptöku sem skapar matjurtir
með þétta frumubyggingu sem
þjappar næringargildi (vítamín og
steinefni) og bragð. Í lífrænni ræktun
er ræktað á víxl til þess að hvíla og
endurnýja jarðveginn. Skiptiræktun
og notkun náttúrulegra áburðarefna
auðga jarðveginn sem stuðlar að
hærra vítamín- og steinefnainnihaldi
matvæla og fóðurs.
Erfðabreyttar lífverur bannaðar
í lífrænni ræktun
Landbúnaðartækni, allt frá
grænu byltingunni á sjöunda
áratugnum til genabyltingarinnar
á tíunda áratugnum, hefur lagt
ofuráherslu á tæknilegar lausnir
sem áttu að halda náttúrunni í
skefjum eða „endurhanna“ hana.
Þessi hátækniræktun hefur spillt
jarðveginum, rýrt næringargildi
matvæla og fóðurs og skilið eftir
sig efna- og erfðamengun.
Vísinda- og tækniþróun
hefðbundins og erfðabreytts
landbúnaðar er stýrt af
risafyrirtækjum sem hafa
markaðsyfirráð og gróða að
höfuðmarkmiðum – ekki
endilega hollari og sjálfbærari
matvælaframleiðslu. Lífrænar
aðferðir viðurkenna vísindi
náttúrunnar og mikilvægi þess að
vinna með þeim í stað þess að vinna
gegn þeim.
Almenningur treystir lífrænum
matvælum, enda er nú ljóst að
lífrænn landbúnaður getur ekki
bara framleitt þau matvæli sem
heimurinn þarf, heldur einnig tryggt
þau matvælagæði sem við þurfum
til að tryggja lýðheilsu.
I King et al., „Plant Growth
and Nitrogenase Activity of
Glyphosate-Tolerant Soybean in
Response to Foliar Glyphosate
Applications“. Agronomy Journal
2001 (93): 179-186.
II Reddy et al., „Glyphosate-
Resistant soybean response to
various salts of glyphosate and
glyphosate accumulation in
soybean nodules“. Weed Science
2003 (51): 496-502.
Í vísindayfirliti Dr. C. Benbrook
hjá bandarísku rannsóknarstöðinni
The Organic Center frá 2005
kemur fram að lífrænar aðferðir
auki andoxunar- og pólýfenólefni
í matvælum. Framleiðslugeta
á andoxunarefnum reyndist að
jafnaði 30% meiri í lífrænum
matvælum en hefðbundnum og
einstök andoxunarefni fundust í
allt að 50% meira magni.
Tíu ára rannsókn við Kaliforníu-
háskóla (2007) þar sem borin
voru saman saman lífrænir og
hefðbundnir tómatar og komist
að því að lífrænir tómatar hefðu
tvöfalt meira af andoxunarefnum
(flavoníðum) sem vinna gegn
háum blóðþrýstingi og draga
með því úr hjartasjúkdómum og
-áföllum. Rannsóknin sýndi hærri
gildi flavoníðanna quercetin (79%)
og kaempferol (97%) í lífrænu
tómötunum (A. Mitchell et al,
J.Agri.Food Chem.).
Þrjár rannsóknir við Hohenheim
háskólann í Þýskalandi (2007)
sýndu að lífrænir tómatar, ferskjur
og unnin epli hefðu öll hærra
næringargildi en sambærilegar
hefðbundnar afurðir. Sú fyrsta
sýndi að lífrænir tómatar væru
ríkari af þurrefni, total & reducing
sykri, C-vítamíni, beta-karótíni
og flavoníðum (Hollmann o.fl.).
Önnur sýndi að lífrænar ferskjur
hefðu hærra pólýfenól við uppskeru
(Fauriel o.fl.). Þriðja rannsóknin
sýndi að lífrænt eplamauk hefði
meira af lífvirkum efnum (fenólum,
flavoníðum og C-vítamíni) en
mauk úr hefðbundnum eplum
(Rembialkowska o.fl.)
Lífrænir ávextir og grænmeti eru auðugri
af vítamínum og steinefnum
Sandra B. Jónsdóttir sjálfstæður ráðgjafi:
Lífrænar aðferðir skila næringarríkari matvælum
Sandra B. Jónsdóttir. Mynd / Anna Fjóla Gísladóttir.
Kýr á lífrænum eða næstum lífrænum
búum eru fyrst og fremst fóðraðar
á gróffóðri og náttúrulegri beit. Er
mjólkin úr þeim sögð umtalsvert auð-
ugri af andoxunarefnum, vítamín-um
Bændablaðið
á netinu...
www.bbl.is
Smáauglýsingar
56-30-300
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Vatnafegurð Alpanna
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
Verð: 163.600 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og
íslensk fararstjórn.
7. - 14. júní.
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
SUMAR 3
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar