Bændablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | fimmtudagur 29. mars 2012 Það er algengt viðhorf að telja líf- ræn matvæli betri en önnur fyrir heilsuna. George W. Bush, fyrr- verandi forseti Bandaríkjanna, neytti lífrænna matjurta úr garði Hvíta hússins á sama tíma og hann mælti fyrir erfðabreyttri ræktun. Meðan Tony Blair mælti fyrir erfðatækni í Bretlandi eld- aði eiginkona hans lífræna rétti fyrir fjölskylduna. Leiðtogar Kína borða lífræna fæðu en leyfa erfða- breyttum hrísgrjónum að menga matvælabúskap landsins. M.a.s. Hugh Grant framkvæmdastjóri Monsanto, stærsta líftæknifyrir- tækis heims, viðurkenndi neyslu lífrænna matvæla. Ein af mat- stofum þess tilkynnti reyndar starfsmönnum að erfðabreytt soja og maís yrðu fjarlægð úr mat sem þar yrði á boðstólum og að „við höfum gert þessar ráðstafanir til að þið neytendur getið treyst matvælum sem við framreiðum“. En svo virðist sem fleiri en hinir ríku og valdamiklu treysti best líf- rænum matvælum, því talið er að þrátt fyrir efnahagskreppu hafi sala á lífrænum matvælum aukist á heimsvísu um 8% milli áranna 2010 og 2011. Sífellt bætist í sjóð ritrýndra vís- indagagna sem styðja trú neytenda á næringargildi lífrænna matvæla. Niðurstöður eins umfangsmesta rannsóknarverkefnis á þessu sviði – Quality Low Input Food – sem ESB fjármagnaði og stýrt var frá Newcastle-háskóla, birtust árið 2007. Þær fólust m.a. í samanburði á næringargildi matvæla sem fram- leidd voru með lágmarks aðföngum áburðar og fóðurefna (lífrænum eða næstum lífrænum aðferðum – LI-kerfi) eða með miklum aðföngum (hefðbundnum aðferðum – HI-kerfi). Í rannsóknum þessum var m.a. kannað næringarinnihald mjólkur frá 25 breskum kúabúum. Í niðurstöðum kom fram að mjólk frá LI-búum, þar sem kúm var beitt í ríkum mæli á haglendi grass og smára, var umtals- vert auðugri af andoxunarefnum, vítamínum og æskilegum fitusýrum (ein- og fjölómettuðum) en mjólk úr kúm sem aldar voru í HI-kerfinu. Einn umsjónarmanna rannsóknar- innar, Gillian Butler, sagði veiga- mestu skýringuna á þessum mun felast í því að kýr á lífrænum eða næstum lífrænum búum séu fyrst og fremst fóðraðar á gróffóðri og náttúrulegri beit. (Butler, Nielsen et al., J.Sci.Food Agric. 2008 (88): 1431-1441) Eiturefni rýra jarðveg og skaða heilsufar Hefðbundinn landbúnaður byggir mjög á eiturefnum. Bændur hafa aðgang að 440 virkum eiturefnum í formi a.m.k. 4000 vara sem á boð- stólum eru. Opinber gögn í Bretlandi sýna að á árunum 1998-2001 inni- héldu a.m.k. 40% grænmetis og ávaxta í breskum stórmörkuðum eiturefnaleifar. Eiturefnaleifar í mat- vælum ógna heilsufari. Almenn efnanotkun skaðar jarð- vegsörverur og dregur úr steinefna- og vítamíninnihaldi matvæla. Bent hefur verið á að í athugun breska landbúnaðarráðuneytisins kom fram að hlutfall hinna ýmsu snefilefna í ávöxtum og grænmeti hafi á 50 ára tímabili (1940-1991) lækkað á bilinu 12-76% (mismunandi eftir tegundum). Erfðabreytt ræktun leiðir til meiri eiturefnanotkunar - sem stuðlar að uppskerubresti og búfjársjúkdómum Líftækniiðnaðurinn lofaði því að erfðabreyttar plöntur myndu minnka eiturefnanotkun í hefð- bundnum landbúnaði, en farið hefur á annan veg. Dr. Charles Benbrook notaði gögn bandarískra stjórnvalda (USDA) til að sýna að eftir 13 ára ræktun eb-plantna í Bandaríkjunum (1996-2008) hafði árleg meðaltals- notkun á illgresiseyðinum glýfosat aukist í bómullarrækt (18,2%), soja- rækt (9,8%) og maísrækt (4,3%). Aukningin stafar einkum af ræktun erfðabreyttra Ht-plantna, en þeim hefur verið erfðabreytt til að þola glýfosat, sem bændur geta þá notað til að uppræta allar aðrar plöntur. Eftir þriggja ára úðun glýfosats fer „illgresið" að mynda ónæmi og breytast í ofurillgresi sem bændur verða að eyða með enn sterkara eitri á borð við Atrazine (nú bannað í Evrópu) eða hið öfluga 2,4-D eitur. Glýfosat virkar þannig að það nán- ast umlykur mikilvæg næringar- efni (ferli sem nefnt er chelation) og sveltir því plöntur um steinefni á borð við sínk, kopar, mangan, magnesíum, kalsíum og bór. Þessi steinefni ráða miklu um heilbrigði plantna og ekki síður heilbrigði manna og dýra. Talið er að úðun glýfosats á erfðabreyttar plöntur ár eftir ár dragi úr steinefnainnihaldi þeirra, sem aftur veikir plöntur og gerir þær næmari fyrir sjúkdómum. Í Bandaríkjunum eru Ht-plöntur (plöntur sem erfðabreytt var til að þola illgresiseitur) ræktaðar í miklum mæli og þar eru plöntusjúk- dómar orðnir alvarlegt vandamál, t.d. SDS (Sudden Death Syndrome) í erfðabreyttu soja og GWD (Gross Wilt Disease) í erfðabreyttum maís. Bændur hafa einnig orðið varir við aukna tíðni ófrjósemi og snemm- fósturláts í svínum og nautgripum sem fá erfðabreytt fóður, og minnk- andi frjósemi í kjúklingum sem fá erfðabreytt korn. Fréttir berast af því að algeng ófrjósemi í kvígum í Bandaríkjunum sé yfir 20% og að skyndifósturlát í nautgripahjörðum nemi allt að 45%. Nokkrir kunnir vísindamenn hafa bent á að aukin tíðni plöntu- sjúkdóma og frjósemisvandamála í búfé kunni að stafa af sóttkveikju sem þróast hafi og margfaldast vegna notkunar á glýfosati í ræktun erfðabreyttra plantna. Tilbúinn áburður dregur úr næringarinnihaldi matvæla Hefðbundinn landbúnaður er mjög háður tilbúnum áburði um köfnunarefni þar sem ekki er beitt sáðskiptum matjurta og niturbindandi plantna á borð við smára. Hátt hlutfall köfnunarefnis í tilbúnum áburði stuðlar að hröðum vexti grænmetis og ávaxta, sem eykur vatnsupptöku. Hraður vöxtur og mikil vatnsupptaka þynna í senn næringargildi og draga úr bragðgæðum afurða. Tilbúinn áburður skaðar einnig vistkerfið. Plöntur eru ekki mjög virkar við upptöku köfnunarefnis úr áburði og þessvegna vill það berast úr jarðvegi í grunnvatn og ár með skaðlegum afleiðingum fyrir vatnavistkerfi og stuðlar að myndun og losun nituroxíðs, sem er meðal hættulegra gróðurhúsalofttegunda. Erfðabreyttar afurðir auka notkun á tilbúnum áburði Engum plöntum hefur verið erfðabreytt til þess að draga úr áburðarþörf. Þvert á móti er líklegt að t.d. erfðabreytt soja auki áburðarþörf. Ht-soja er belgjurt og ætti því að geta bundið köfnunarefni í jarðvegi – en glýfosat sem úðað er á ræktunarlönd erfðabreytts soja kemur í veg fyrir að niturbinding verði. Glýfosat tefur niturbindingu í ungum Ht-sojaplöntum og dregur úr vexti róta og sprota sem leiðir til minni uppskeru, sem getur numið allt að 25% í þurrkatíð. Þetta gerist þannig, ef marka má rannsókn frá árinu 2003, að glýfosat kemst inn í rótarhnúða og dregur úr virkni jákvæðra jarðvegsbaktería sem hjálpa til við niturbindingu; glýfosat minnkar lífmassa rótarhnúða um allt að 28% og veldur allt að 10% samdrætti í magni súrefnisflytjandi próteins (leghaemoglobin) sem einnig hjálpar til við niturbindingu í rótum sojaplöntunnar. Einræktun rýrir stórlega frjósemi jarðvegsins og kallar á æ meiri notkun tilbúins áburðar, sem getur aftur dregið úr næringarinnihaldi matvæla og fóðurs. Erfðabreytt (Ht-) soja er ræktað í miklum mæli í Bandaríkjunum, Kanada, Argentínu og Brasilíu, þar sem einræktun er alsiða, þ.e. sama tegund er ræktuð ár eftir ár á sömu ökrunum. Skiptiræktun og lífrænn áburður í stað eiturefna og tilbúins áburðar Í Bretlandi eru eingöngu fjögur varnarefni af náttúrulegum uppruna eða úr einföldum efnaformúlum leyfð í lífrænni ræktun og voru aðeins 10 tonn af þeim efnum notuð árið 2003 þar í landi, meðan 31.000 tonn af venjulegum eiturefnum voru notuð í hefðbundnum landbúnaði. Í lífrænni ræktun eru notuð náttúruleg áburðarefni s.s. búfjáráburður og grænáburðarplöntur (smári o.þ.h.) sem binda köfnunarefni. Búfjáráburður er notaður skv. ákveðnum leiðbeiningum og niturbindandi plöntur eru ræktaðar á víxl við matjurtir og þær plægðar ofan í jarðveginn til að fá köfnunarefni og stuðla að vexti jarðvegsörvera. Þessi náttúrulegu áburðarefni stuðla að eðlilegum vaxtarhraða og vökvaupptöku sem skapar matjurtir með þétta frumubyggingu sem þjappar næringargildi (vítamín og steinefni) og bragð. Í lífrænni ræktun er ræktað á víxl til þess að hvíla og endurnýja jarðveginn. Skiptiræktun og notkun náttúrulegra áburðarefna auðga jarðveginn sem stuðlar að hærra vítamín- og steinefnainnihaldi matvæla og fóðurs. Erfðabreyttar lífverur bannaðar í lífrænni ræktun Landbúnaðartækni, allt frá grænu byltingunni á sjöunda áratugnum til genabyltingarinnar á tíunda áratugnum, hefur lagt ofuráherslu á tæknilegar lausnir sem áttu að halda náttúrunni í skefjum eða „endurhanna“ hana. Þessi hátækniræktun hefur spillt jarðveginum, rýrt næringargildi matvæla og fóðurs og skilið eftir sig efna- og erfðamengun. Vísinda- og tækniþróun hefðbundins og erfðabreytts landbúnaðar er stýrt af risafyrirtækjum sem hafa markaðsyfirráð og gróða að höfuðmarkmiðum – ekki endilega hollari og sjálfbærari matvælaframleiðslu. Lífrænar aðferðir viðurkenna vísindi náttúrunnar og mikilvægi þess að vinna með þeim í stað þess að vinna gegn þeim. Almenningur treystir lífrænum matvælum, enda er nú ljóst að lífrænn landbúnaður getur ekki bara framleitt þau matvæli sem heimurinn þarf, heldur einnig tryggt þau matvælagæði sem við þurfum til að tryggja lýðheilsu. I King et al., „Plant Growth and Nitrogenase Activity of Glyphosate-Tolerant Soybean in Response to Foliar Glyphosate Applications“. Agronomy Journal 2001 (93): 179-186. II Reddy et al., „Glyphosate- Resistant soybean response to various salts of glyphosate and glyphosate accumulation in soybean nodules“. Weed Science 2003 (51): 496-502. Í vísindayfirliti Dr. C. Benbrook hjá bandarísku rannsóknarstöðinni The Organic Center frá 2005 kemur fram að lífrænar aðferðir auki andoxunar- og pólýfenólefni í matvælum. Framleiðslugeta á andoxunarefnum reyndist að jafnaði 30% meiri í lífrænum matvælum en hefðbundnum og einstök andoxunarefni fundust í allt að 50% meira magni. Tíu ára rannsókn við Kaliforníu- háskóla (2007) þar sem borin voru saman saman lífrænir og hefðbundnir tómatar og komist að því að lífrænir tómatar hefðu tvöfalt meira af andoxunarefnum (flavoníðum) sem vinna gegn háum blóðþrýstingi og draga með því úr hjartasjúkdómum og -áföllum. Rannsóknin sýndi hærri gildi flavoníðanna quercetin (79%) og kaempferol (97%) í lífrænu tómötunum (A. Mitchell et al, J.Agri.Food Chem.). Þrjár rannsóknir við Hohenheim háskólann í Þýskalandi (2007) sýndu að lífrænir tómatar, ferskjur og unnin epli hefðu öll hærra næringargildi en sambærilegar hefðbundnar afurðir. Sú fyrsta sýndi að lífrænir tómatar væru ríkari af þurrefni, total & reducing sykri, C-vítamíni, beta-karótíni og flavoníðum (Hollmann o.fl.). Önnur sýndi að lífrænar ferskjur hefðu hærra pólýfenól við uppskeru (Fauriel o.fl.). Þriðja rannsóknin sýndi að lífrænt eplamauk hefði meira af lífvirkum efnum (fenólum, flavoníðum og C-vítamíni) en mauk úr hefðbundnum eplum (Rembialkowska o.fl.) Lífrænir ávextir og grænmeti eru auðugri af vítamínum og steinefnum Sandra B. Jónsdóttir sjálfstæður ráðgjafi: Lífrænar aðferðir skila næringarríkari matvælum Sandra B. Jónsdóttir. Mynd / Anna Fjóla Gísladóttir. Kýr á lífrænum eða næstum lífrænum búum eru fyrst og fremst fóðraðar á gróffóðri og náttúrulegri beit. Er mjólkin úr þeim sögð umtalsvert auð- ugri af andoxunarefnum, vítamín-um Bændablaðið á netinu... www.bbl.is Smáauglýsingar 56-30-300 www.baendaferdir.is Sp ör e hf . s: 570 2790 A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Vatnafegurð Alpanna Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir Verð: 163.600 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og íslensk fararstjórn. 7. - 14. júní. Travel Agency Authorised by Icelandic Tourist Board SUMAR 3 Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.