Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 2
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2
HÖNNUN „Tillagan snýst um lág-
marks rask í gjánni og hefur það
sjónarmið að maðurinn skuli halda
sig til hlés á þessum helgum stað,“
segir í tillögu Studio Granda og
verkfræðistofunnar Eflu sem fékk
fyrstu verðlaun í samkeppni Þing-
vallanefndar um gönguleið niður í
Almannagjá eftir að sprunga opnað-
ist þar óvænt í fyrra.
„Framkvæmdin er hugsuð eins
einföld og hægt er þar sem tíminn
er naumur og áhersla er lögð á að
auðvelt verði fjarlægja mannvirkið
án þess að nokkur ummerki sjáist,“
segja höfundar tillögunnar sem fá
400 þúsund krónur í verðlaun. Átta
tillögur bárust.
Gólf brúarinnar verður úr sitka-
greni úr Skorradal og á að hvíla á
langbitum úr rekaviði og laga sig að
sprungunni. Handriðið verður úr
ryðguðum efnispípum sem net úr
basalttrefjum verður strengt á milli.
„Stígurinn liggur þétt við klapp-
ir og annað undirlag í sprungunni
og lagar sig að nokkru leyti að legu
hennar án þess þó að þekja hana eða
draga athygli að henni um of,“ segir
í umsögn dómnefndar sem kveður
verðlaunatillöguna áreynslulausa.
- gar
Átta tillögur bárust í samkeppni Þingvallanefndar um nýjar gönguleiðir yfir óvænt jarðfall í þjóðgarðinum:
„Maðurinn haldi sig til hlés á þessum helga stað“
Á KÁRASTAÐASTÍG
„Göngubrúin er upp-
haf gönguleiðarinnar
um þinghelgina,“
segja höfundar
tillögunnar sem
hlaut fyrstu verðlaun
dómnefndar
Þingvallanefndar.
MYND/STUDIO GRANDI - EFLA
SKIPULAGSMÁL „Það er ekki hægt
að vera með hálfbyggt hús, sem
er í raun slysagildra, utan á einni
glæsilegustu verslunarmiðstöð
landsins,“ segir Sturla Eðvarðs-
son, framkvæmdastjóri Eignar-
haldsfélagsins Smáralindar ehf.
Sturla hefur skrifað bæjaryfir-
völdum í Kópavogi vegna svokall-
aðs Norðurturns sem hefur setið
hálfkláraður utan á vesturenda
Smáralindar frá því á árinu 2008.
Hann kveðst ósáttur við að verk-
ið hafi verið stopp í mörg ár hjá
skiptastjóra og kröfuhöfum.
„Það er enginn skilningur –
menn fara á sínum hraða og ég
veit ekki hvað þeir ætla sér. Það
eru ekki fyrirliggjandi neinar
breytingar á því þannig að ég ósk-
aði eftir því við Kópavogsbæ að
hann myndi hlutast til um þessa
eign. Menn verða að axla ábyrgð
á því að vera með svona eignir í
þrotabúi. Annað hvort klára menn
bygginguna eða ekki. Það er ekk-
ert annað að gera,“ segir Sturla.
Að sögn framkvæmdastjórans
hefur tilvist Norðurturnsins
slæm áhrif á einn megininnganga
Smáralindar sem orðið hafi fyrir
gríðarlegu fjárhagslegu tapi. Sjálf
hafi Smáralind meðal annars lagt
tugi milljóna króna í lagfæringar
á innganginum. „Við óskum eftir
skýrari svörum um framtíð þessa
húss því það er náttúrulega ekki
hægt að búa við að það sé með
þessum hætti næstu árin,“ undir-
strikar Sturla.
Fasteignafélag Íslands var
móðurfélag bæði Smáralindar og
Norðurturnsins. Meðal kröfuhafa
í bú Norðurturnsins eru Trygg-
ingamiðstöðin, lífeyrissjóðir og
Íslandsbanki. Heildarkrafan er
um 5,5 milljarðar króna. Stærstu
kröfuhafarnir eiga veðkröfu á
sjálfa bygginguna. Skotið hefur
verið á að verðmæti hennar sé
á bilinu einn til tveir milljarðar
króna.
Helstu lausnir fyrir kröfuhafana
er að selja mannvirkið í núverandi
mynd eða leggja fé í að ljúka bygg-
ingu þess. Kaupendur bíða ekki í
röðum og mikil áhætta fylgir því
að verja fjármagni í bygginguna
sem á að verða fimmtán hæðir.
Það flækir málin frekar að þrota-
bú Norðurturnsins krefst þess að
eigendur Smáralindar greiði búinu
1,3 milljarða króna. Það sé sam-
kvæmt samkomulagi sem meðal
annars tengist afnotum Smára-
lindar af bílakjallara í turninum.
Smáralind segir samkomulag um
það ekki hafa legið fyrir og það
verður því verkefni dómstóla að
skera úr um réttmæti kröfunnar.
gar@frettabladid.is
Smáralind heimtar
turn upp eða niður
Eigendur Smáralindar vilja að Kópavogsbær þvingi kröfuhafa Norðurturnsins
til að ljúka við að reisa turninn eða rífa hann. Þrotabú turnsins telur Smáralind
hins vegar skulda því 1,3 milljarða króna. Lausn virðist ekki í augsýn á næstunni.
STURLA EÐVARÐSSON Framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Smáralindar segir
kröfuhafana sem eru eigendur Norðurturnsins verða að sýna ábyrgð og annaðhvort
ljúka við byggingu skrifstofuhússins eða rífa það sem komið er. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jónas Halldór Haralz, hag-
fræðingur og fyrrverandi
bankastjóri, er látinn á 93. ald-
ursári. Hann fæddist í Reykja-
vík 6. október árið 1919.
Jónas lauk
stúdents-
prófi frá MR
1938. Hann
nam efna-
verkfræði,
hagfræði,
tölfræði,
stjórnmála-
fræði og
heimspeki í Stokkhólmi. Jónas
starfaði meðal annars sem
hagfræðingur hjá Alþjóða-
bankanum í Washington og
var bankastjóri Landsbanka
Íslands frá 1969 til 1988.
Fyrri kona Jónasar var Guð-
rún Erna Þorgeirsdóttir. Hún
lést árið 1982. Sonur þeirra er
Jónas Halldór Haralz. Síðari
kona hans var Sylvía Haralz.
Hún lést árið 1996.
Jónas H.
Haralz látinn
SJÁVARÚTVEGUR Þess er nú freistað
að ná samkomulagi um stjórn
makrílveiðanna á þessu ári,
meðal annars um skiptingu kvóta
milli Íslands, Noregs, Evrópu-
sambandsríkja og Færeyja, auk
Rússlands. Fundur ríkjanna hófst
í Reykjavík í gær og gæti staðið
út þessa viku.
Þegar framgangur viðræðna
til þessa er hafður í huga má full-
yrða að nú sé lokatækifærið til að
ná samkomulagi um makrílveiðar
þessa árs.
Ráðgjöf Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins (ICES) hljóðaði upp á 646
þúsund tonna heildarafla á síð-
asta ári. Veiðin var samtals rúm-
lega 900 þúsund tonn, þar sem
ekkert samkomulag náðist.
- shá
Makrílviðræður í Reykjavík:
Lokatilraun um
kvóta þessa árs
NEYTENDUR Fimmtán stærstu
sveitarfélögin hafa öll hækkað
stakt gjald í sund milli ára. Þetta
kemur fram í verðlagseftirliti
ASÍ. Lægst er gjaldið í Reykja-
nesbæ, eða 370 krónur, en hæst
í Árborg og Kópavogi þar sem
kostar 550 krónur í sund. Mesta
hækkun var í Hafnarfirði, eða
um 23 prósent, en minnst á
Akureyri eða fjögur prósent.
Af 15 stærstu sveitarfélög-
unum hafa aðeins Reykjavík,
Reykjanes, Árborg og Seltjarnar-
nes ekki hækkað árskort að sund-
stöðum á milli ára. Árskort full-
orðinna hafa hækkað í hinum
11 sveitarfélögunum um 3 til 23
prósent. - kóp
Dýrara í sund en í fyrra:
Dýrast í Árborg
og Kópavogi
Gyða, er þá hægt að kaupa
sér ást?
„Nei, ástin er ókeypis. Það er þó
hægt að verja peningum til að gera
leitina að ást auðveldari.“
Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur stendur,
ásamt Sóleyju D. Davíðsdóttur, fyrir nám-
skeiði fyrir fólk í makaleit.
FJÁRMÁL Fjárfestirinn Róbert Guð-
finnsson áskilur sér allan rétt
vegna tjóns sem hann telur sig
geta orðið fyrir vegna breytinga
á útboði Seðlabankans á íslensk-
um krónum sem
fram fer í dag.
Róbert, sem
kveðst hafa
stundað við -
skipti erlendis
frá árinu 2005
meðal annars
í Mexíkó, Síle
og Eystrasalts-
löndunum, seg-
ist vilja flytja
erlendan gjaldeyri til Íslands og
kaupa 800 milljónir króna. Féð
ætli hann meðal annars að nota
í uppbyggingu ferðaþjónustu á
Siglufirði. Þar rekur hann Kaffi
Rauðku og fleira.
Að sögn Róberts samþykkti
Seðlabankinn félag hans, Salen-
der Holdings Ltd., sem þátttak-
anda í krónuútboðinu. Skilyrðið
er að nota jafnháa upphæð á móti
til að kaupa krónur á opinberu
gengi Seðlabankans.
Í bréfum lögmanns Róberts til
Seðlabankans og Umboðsmanns
Alþingis segir að þó að útboðs-
lýsing hafi legið fyrir 12. janúar
hafi Seðlabankinn tilkynnt það
10. febrúar að lífeyrissjóðir njóti
sérstakra skattaívilnana í útboð-
inu. Tilboðsgjöfum sé því mis-
munað og verulegur vafi leiki á
lögmæti útboðsins.
„Þetta hefði verið í lagi ef þetta
hefði verið tekið fram í útboðs-
gögnunum svo menn vissu að
hverju þeir gengju en í þessu
ráðstjórnarríki sem við búum í í
dag virðist það ekki skipta máli,“
segir Róbert Guðfinnsson.
- gar
Ætlaði að kaupa 800 milljónir í útboði en er ósáttur við sérkjör lífeyrissjóða:
Telur útboð Seðlabankans ólöglegt
SEÐLABANKINN Róbert Guðfinnsson
ætlaði að bjóða í krónur hjá Seðla-
bankanum en telur útboð Seðlabankans
hygla lífeyrissjóðum og vera ósanngjarnt
gagnvart öðrum.
RÓBERT
GUÐFINNSSON
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, var í gærkvöldi
kjörinn bæjarstjóri í Kópavogi.
Bæjarstjórn-
arfundur var
haldinn í gær-
kvöldi þar sem
nýr meirihluti
sjálfstæðis-
manna, fram-
sóknarmanna
og lista Kópa-
vogsbúa tók við
völdum. Mar-
grét Björns-
dóttir, bæjar-
fulltrúi sjálfstæðismanna, var
kjörin forseti bæjarstjórnar.
Guðrún Pálsdóttir, sem hefur
verið bæjarstjóri frá því í júní
2010, hefur látið af störfum. Hún
verður sviðsstjóri hjá bænum á
ný, en hún gegndi því starfi einn-
ig áður en hún var ráðin bæjar-
stjóri. - þeb
Stjórnarskipti í Kópavogi:
Ármann orðinn
að bæjarstjóra
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
SPURNING DAGSINS