Fréttablaðið - 15.02.2012, Page 4
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR4
NÁTTÚRA Orri Vigfússon, formaður
NASF, verndarsjóðs villtra laxa-
stofna, telur áhugavert að gera
úttekt á því hvort gera megi
Þjórsá að stangveiðiparadís með
því að minnka framburðinn í
ánni. Fyrsta skrefið yrði alltaf
að kalla til hóp sérfræðinga til að
skoða hvort um raunhæfan kost
sé að ræða. Reynist svo vera gætu
möguleikar til
verðmætasköp-
unar með stang-
veiði verið afar
miklir.
„Ef það væri
hægt að minnka
framburðinn og
hleypa sólar-
ljósinu betur að
þá myndi frum-
framleiðslan í
ánni stóraukast með tilheyrandi
áhrifum á lífríkið. Það má minna
á það að Þjórsá, eins og Blanda, á
upptök sín í Hofsjökli. Með Blöndu-
virkjun hreinsaðist áin og úr varð
sú góða veiðiá sem við þekkjum,“
segir Orri og undirstrikar að um
hugmynd sé að ræða og það liggi
fyrir að mjög erfitt sé að hreinsa
jafn mikið vatnsfall og Þjórsá. „Ég
tel þó áhugavert að gera rannsókn
á vatnasvæði Þjórsár með þetta í
huga.“
Orri segir að líklega yrði að
koma til einhvers konar mann-
virki sem myndi hreinsa jökul-
gruggið úr árvatninu, til dæmis
settjarnir. Hann minnir á að fyrir
eru virkjanir í efri hluta Þjórsár,
sem hugsanlega gætu leikið hlut-
verk við hreinsun framburðarins.
Laxastofninn í Þjórsá er lík-
lega stærsti villti laxastofn á
Íslandi og meðal þeirra stærstu
í Atlantshafi. Þess utan eru góðir
stofnar sjóbirtings, auk stað-
bundins urriða og bleikju. Veiði
í ánni hefur nær eingöngu verið
bundin við netaveiði. Ástæðan er
sú að Þjórsá er svo gruggug að
lax og annar fiskur sér lítt hefð-
bundið agn veiðimanna og tekur
það því illa eða ekki. Veiði hefur
hins vegar verið nokkur í þverám
Þjórsár þó að uppvaxtarsvæði lax-
ins séu í Þjórsá sjálfri.
Eins og kunnugt er hefur
Landsvirkjun áformað byggingu
þriggja virkjana í neðri hluta
Þjórsár; Hvamms-, Holta-, og
Urriðafossvirk jun. Áform um að
gera Þjórsá að kosti til stangveiði
fer ekki saman við þær hugmynd-
ir, að mati Orra sem hefur bent á
að líklega séu allar hrygningar-
og uppeldisstöðvar fyrir lax fyrir
ofan Urriðafoss. Mat Orra er að
verði virkjunaráform að veruleika
séu laxa- og sjóbirtingsstofnarnir
líklegir til að deyja út.
Ef hugmyndir um hreinsun
Þjórsár reyndust raunhæfar og
gengju eftir telur Orri líklegt að
úr yrði ein besta laxveiðiá við
Atlantshaf. „Þetta yrði mikil
tekjulind fyrir samfélagið, enda
hefur reynslan sýnt að hverjir 40
laxar sem eru veiddir á stöng skila
einu ársverki. Tólf hundruð störf
liggja að baki 50 þúsund laxa veiði
á stöng. Það skilar 12 milljörðum
í beinar og afleiddar tekjur fyrir
þjóðfélagið,“ segir Orri.
svavar@frettabladid.is
Þetta yrði mikil
tekjulind fyrir sam-
félagið, enda hefur reynslan
sýnt að hverjir 40 laxar sem
eru veiddir á stöng skila einu
ársverki.
ORRI VIGFÚSSON
FORMAÐUR NASF
ALÞINGI Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, líkti aðgerðum
Akureyrarbæjar vegna Snorra
Óskarssonar,
kennara við
Brekkuskóla,
við ofbeldi og
valdníðslu.
Á Alþingi í
gær sagði Árni
að málið snerist
um mannrétt-
indi, virðingu
fyrir skoð-
anafrelsi og
trúfrelsi á Íslandi. Þá harmar
hann niðurstöður bæjarstjórnar-
innar að hafa „ráðist á opinberan
starfsmann og rekið hann úr
starfi“.
Akureyrarbær hefur sett
Snorra í sex mánaða launað leyfi
frá störfum eftir að skrif hans
á bloggsíðu voru tekin fyrir. Í
skrifum sínum fordæmdi Snorri
samkynhneigð. - sv
Árni Johnsen á Alþingi:
Brotið á rétt-
indum Snorra
ÁRNI JOHNSEN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
4°
2°
3°
5°
1°
1°
1°
18°
10°
12°
10°
27°
-1°
8°
14°
-2°Á MORGUN
Sums staðar strekkingur
með ströndum, annars
hægari.
FÖSTUDAGUR
Strekkingur á V-fjörðum
en annars hægari.
-4 -4
-3
-3-2
0
0
0
12
4
4
4
8
8
6
6
6
3
3
1
8
10
15
10 7
10
5
12
6
5
10
KÓLNANDI
veður verður á
landinu næstu
daga og strax í
kvöld má búast við
éljum vestanlands.
Á föstudag og
laugardag verður
svo frost um allt
land. Fram undan
er dálítil snjókoma
eða él, ekki þó um
allt land á sama
tíma.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Kaupmáttur launa
hefur rýrnað um 7,5 prósent frá
árinu 2007. Launavísitalan hefur
hækkað um 33 prósent frá árinu
2007 en á sama tíma hefur almennt
verðlag hækkað um 44 prósent.
Uppsafnaður kaupmáttur ráð-
stöfunartekna hefur hins vegar
minnkað um 27,4 prósent á árun-
um 2007 til 2010, samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Hilmar Ögmunds-
son, hagfræðingur BSRB, hélt
erindi um þróun launa og ráðstöf-
unartekna á trúnaðarmannaráðs-
fundi SFR í síðustu viku þar sem
þetta kom fram.
Ástæður þessarar rýrnunar ráð-
stöfunartekna eru meðal annars
skattahækkanir og breytingar á
skattakerfinu. Persónuafsláttur
hefur ekki fylgt launahækkunum,
bætur hafa verið frystar eða lækk-
aðar og gjöld hækkuð. Útborguð
laun félagsmanna SFR rýrnuðu
um rúm 13 prósent á árunum 2007
til 2011. Rýrnun kaupmáttarins er
mismunandi eftir hópum, því fólk
sem er með börn á framfæri, leig-
ir eða skuldar húsnæði varð fyrir
kaupmáttarrýrnun upp á rúm
27 prósent en aðrir upp á rúm 12
prósent. - þeb
Launavísitalan hefur hækkað um 33% síðan 2007 en verðlagið um 44%:
Kaupmáttur rýrnaði um 27%
MINNA MILLI HANDANNA Ráðstöfunar-
tekjur fólks hafa minnkað mikið á
síðustu árum og þeir sem eru með
börn á framfæri, leigja eða skulda hús-
næði hafa 27 prósentum minna milli
handanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BAREIN, AP Fjölmennt lið öryggis-
sveita í Barein kæfði í gær mót-
mæli sjía-múslima, sem höfðu
komið saman víða um land til að
minnast þess að eitt ár var liðið
frá því að mótmæli þeirra gegn
stjórn súnní-múslíma hófust.
Stjórnvöld lofuðu umbótum
eftir að hafa barið niður mótmæl-
in síðasta vor, en staðið hefur á
efndum.
Að minnsta kosti 40 manns
hafa látist í átökum í landinu frá
því mótmælin hófust í febrúar á
síðasta ári. - gb
Fagna ársafmæli uppreisnar:
Öryggissveitir
bæla mótmæli
GENGIÐ 14.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
222,1054
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,24 122,82
192,62 193,56
161,36 162,26
21,705 21,833
21,403 21,529
18,367 18,475
1,5657 1,5749
189,19 190,31
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
við hlustum!
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
!
INNIHELDUR 100% XYLITOL
Spyr hvort hægt sé að gera
tæra laxveiðiperlu úr Þjórsá
Rannsókn á því hvort gera megi Þjórsá að veiðiparadís með minni framburði, er verðugt verkefni að mati
Orra Vigfússonar, formanns NASF. Fyrsta skref yrði mat sérfræðinga á því hvort hugmyndin sé raunhæf.
ORRI VIGFÚSSON
VÍÐA VEIÐILEG Orri segir að þrátt fyrir „þúsund spurningar“ séu tækifærin slík að rannsaka megi að hreinsa ána svo hún henti til
stangveiða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun
hefur nú sent Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins upp-
lýsingar um háa lekatíðni PIP-
brjóstafyllinga hér á landi.
Á vef velferðarráðuneytisins
kemur fram að hvergi annars
staðar hafi verið ráðist í skipu-
lega ómskoðun kvenna með PIP-
púða svo vitað sé. Því séu sam-
anburðarhæfar upplýsingar um
lekatíðni frá öðrum þjóðum ekki
fyrir hendi.
105 konur hafa verið skoðaðar
hér á landi og hefur leki greinst
hjá 71 konu, eða um 68 prósent
kvennanna. - sv
PIP-upplýsingar sendar út:
Samanburður
ekki fyrir hendi