Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 6
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR6
VELFERÐARMÁL 300 börn deyja á
hverri klukkustund vegna vannær-
ingar. Ef stjórnvöld í heiminum
fara ekki að standa við skuldbind-
ingar um að sporna við matvælak-
reppu má áætla að 450 milljónir
barna muni líða fyrir andlegan og
líkamlegan vanþroska vegna van-
næringar á næstu fimmtán árum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Barnaheilla – Save the Children
um vannæringu barna. Skýrslan
kemur út í dag.
Vannæring er undirliggjandi
ástæða þriðjungs alls barnadauða
í heiminum, en henni hefur ekki
verið veitt sama athygli eða fjár-
magn og aðrar orsakir barna-
dauða, eins og alnæmi og malaría.
Barnaheill – Save the Children
hvetja í skýrslunni þjóðarleiðtoga
til að grípa til nokkurra aðgerða
til að takast á við vandamálið,
meðal annars að koma á raun-
hæfri aðgerðaáætlun og fjárfesta
í félagslegum aðgerðum sem ná til
þeirra fjölskyldna sem verst eru
settar. - þeb
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör
stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón að framansögðu tilkynnist hér með að
framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 12.00
þriðjudaginn 28. febrúar 2012 og ber að skila
tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á
skrifstofu félagsins.
Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg
meðmæli minnst 179 fullgildra félagsmanna
Reykjavík 27. janúar 2012.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
ALÞINGI Oddný G. Harðardóttir,
sitjandi iðnaðarráðherra, mælti
fyrir heildstæðri orkustefnu
Íslands á Alþingi í gær. Þar kemur
fram að þegar er búið að virkja
helming af nýtanlegri raforku í
vatnsafli og jarðvarma.
Skýrslan er unnin af stýrihópi
sem iðnaðarráðherra skipaði árið
2009 og var hún lögð fyrir þingið
til umræðu í gær. Iðnaðarráðherra
mótar síðan endanlega tillögu um
orkustefnu Íslands.
Í tillögunni segir að velja eigi
orkunýtingu af kostgæfni og með
hámarks arðsemi að leiðarljósi.
Komið verði á fót sérstökum auð-
lindasjóði sem bjóði út nýting-
arsamninga til ákveðins tíma í
senn, 25 til 30 ára „eða eftir eðli
hvers virkjunarkosts að teknu til-
liti til upphafsfjárfestingar og
afskriftartíma“.
Iðnaðarráðherra sagði stefnt að
því að draga úr notkun jarðefna-
eldsneytis.
„Þó svo að nær öll raforkufram-
leiðsla hér á landi eigi uppruna
sinn í endurnýjanlegum orku-
lindum og það sama megi segja
um þá orku sem
nýtt er til hús-
hitunar, eða um
67%, þá á um
33% af heildar-
orkunotkun hér
á landi uppruna
sinn úr jarð-
efnaeldsneyti,
sem nýtt er á
fiskiskipaflot-
ann og til sam-
gangna á landi.
Hlutfall endurnýjanlegrar orku í
samgöngum hér á landi er innan
við 1%.“
Árið 2010 var flutt inn jarðefna-
eldsneyti fyrir 44 milljarða króna
í gjaldeyri og sagði Oddný því til
mikils að vinna í þjóðhagslegum
sparnaði ef hægt væri að nota inn-
lenda orkugjafa í stað erlendra.
Skýrslan fjallar einnig um
möguleikann á útflutningi raf-
orku um sæstreng. Oddný lagði
til, þegar hún fylgdi skýrslunni
úr hlaði, að gerð yrði „heildstæð
hagkvæmnikönnun á lagningu
sæstrengs til Evrópu, þar sem lagt
verði mat á samfélagslegan ábata
við slíka framkvæmd að frádregn-
um samfélagslegum kostnaði“.
Stjórnarandstæðingar fögnuðu
margir hverjir tilkomu skýrslunn-
ar, en höfðu þó ýmislegt við hana
að athuga. Einar K. Guðfinnsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
spurði hvort hún fæli í sér hærra
raforkuverð. Hann gaf lítið fyrir
þau orð ráðherra að skýrslan væri
til umræðu; um gríðarlega mikil-
vægt mál væri að ræða og ekki
hægt að henda fram hálfköruðum
hugmyndum.
Nokkur umræða varð um hve
mikil orka væri nýtanleg og hve
hratt ætti að ganga í nýtingu
hennar. kolbeinn@frettabladid.is
Auðlindasjóður og
nýting í 25 til 30 ár
Stofna á auðlindasjóð og leigja orkuauðlindir í 25 til 30 ár samkvæmt orku-
stefnu Íslands. Auka á vægi endurnýjanlegra orkugjafa. Flutt var inn jarðefna-
eldsneyti fyrir 44 milljarða 2010. Gæti hækkað raforkuverð til almennings.
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
JARÐVARMI Samkvæmt skýrslu stýrihóps iðnaðarráðherra segir að búið sé að virkja um helming af nýtanlegri raforku í vatnsafli
og jarðvarma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FASTEIGNAMARKAÐUR Alls var 90
kaupsamningum þinglýst á höfuð-
borgarsvæðinu á milli þriðja til
níunda febrúar.
Á vef Þjóðskrár segir að 63
samningar hafi verið um eignir
í fjölbýli, þrettán um sérbýli og
fjórtán um aðrar eignir en íbúðar-
húsnæði. Heildarvelta var 2.527
milljónir króna og meðalupphæð á
samning 28,1 milljón króna. Þetta
er svipað og á sama tíma í fyrra.
Þremur kaupsamningum þinglýst
á Suðurnesjum, fimmtán á Akur-
eyri og átta á Árborgarsvæðinu. - þj
Fasteignamarkaðurinn:
90 samningum
þinglýst á viku
ALÞINGI Skattahækkanir ríkis-
stjórnarinnar og gjaldbreyting-
ar hafa hækkað verðtryggð lán
íslenskra heimila um 23 milljarða
króna frá 1. febrúar 2009 til 1.
janúar 2012. Þetta kemur fram í
svari efnahags- og viðskiptaráð-
herra við fyrirspurn Margrétar
Tryggvadótt-
ur, þingmanns
Hreyfingar-
innar.
Alls námu
verðtryggð lán
íslenskra heim-
ila 1.409,6 millj-
örðum króna
í árslok 2011.
Verðtryggð
lán fyrirtækja
námu 282,2
milljörðum króna og hafa aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar hækkað þau
um 4,6 milljarða á tímabilinu.
Þessar hækkanir þýða 1,63 pró-
sent hækkun á vísitölu neyslu-
verðs. Þá eru ekki talin almenn
vörugjöld, en Hagstofan greinir
áhrif þeirra á vísitölu ekki með
beinum hætti. - kóp
Skattahækkanir hækka lán:
Lánin 23 millj-
örðum hærri
MARGRÉT
TRYGGVADÓTTIR
Vilja inn á samgönguáætlun
Byggðaráð Skagafjarðar segir furðu-
legt að sveitarfélagsins sé hvergi getið
í samgönguáætlun allt til ársins 2022.
Ráðið vill endurskoðun á áætlunni
enda blasi fjöldi verkefna við.
SKAGAFJÖRÐUR
Kaust þú í símakosningu
Eurovision?
JÁ 24,4%
NEI 75,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hélst þú upp á Valentínusar-
daginn með einhverjum hætti?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
SJÁVARÚTVEGUR Brýnt er að knýja á
um frekari fullvinnslu afla hér á
landi, að því er fram kemur í til-
kynningu Samtaka fiskframleið-
enda og útflytjenda (SFÚ). Skorað
er á Steingrím J. Sigfússon sjávar-
útvegsráðherra að beita sér fyrir
því að aðgerðir úr samstarfsyfir-
lýsingu ríkisstjórnarflokkanna til
að knýja á um frekari fullvinnslu
komist til framkvæmda.
Samtökin segjast um leið fagna
þeim áhuga sem Steingrímur hafi
sýnt fiskmörkuðum með því að
hafa á föstudag verið viðstaddur
opnun fiskmarkaðar í Grimsby í
kjölfar endurbóta á aðstöðu þar.
„Vel á fjórða tug þúsunda tonna
af ferskum bolfiski eru flutt
frá Íslandi óunnin ár hvert án
þess að íslenskir fiskverkendur
hafi raunverulegt tækifæri til
að bjóða í hráefnið til jafns við
erlenda kaupendur,“ segir í til-
kynningu samtakanna og bent
er á að um tveir þriðju hlutar
fari til Bretlands. „Þar skap-
ast þúsundir starfa við fullverk-
un hráefnisins með tilheyrandi
verðmætaaukningu.“
SFÚ hafa óskað eftir fundum
með öllum þingflokkum til að
skýra betur sjónarmið sín. Að því
er segir í tilkynningu hefur sá
fyrsti þegar verið bókaður í þess-
ari viku. Til að skýra betur mark-
mið SFÚ hafa samtökin óskað
eftir fundi með öllum þingflokk-
um og er fyrsti fundur staðfestur
nú í viku sjö. - óká
Fagna áhuga sjávarútvegsráðherra á endurbættum fiskmarkaði í Grimsby:
Knýja á um fullvinnslu hérlendis
LÖNDUN Helsta baráttumál SFÚ er að
allur ferskur bolfiskur fari á innlendan
fiskmarkað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mun í dag lýsa yfir stuðningi
íslenskra stjórnvalda við sameiginlega yfirlýsingu félagasamtaka um allan
heim um hvernig skuli binda enda á hungur í heiminum.
Þá verður vannæring barna á dagskrá á málþingi sem haldið verður á
Facebook í dag klukkan tvö. Viðburðurinn heitir Málþing á Facebook – Af
hverju eru milljónir barna í heiminum vannærð?
Halda málþing á Facebook
450 milljónir barna munu líða fyrir næringarskort og 300 deyja á klukkustund:
Þroskast ekki vegna vannæringar
VÍSINDI Vilhjálmur Steingrímsson
læknanemi hlaut Nýsköpunar-
verðlaun forseta Íslands í gær.
Vilhjálmur vann að áhættu-
reikni sem aðstoðar við mat á
áhættu á hjarta- og kransæða-
sjúkdómum hjá öldruðum.
Áhættureiknirinn gefur tækifæri
til markvissra forvarna.
Það var mat dómnefndarninar
að verkefni Vilhjálms hefði alla
eiginleika til að bera. Það gæti
leitt til nýsköpunar, hagnýtingar-
möguleikar þess væru miklir og
það stuðlaði að samstarfi háskóla,
stofnana og fyrirtækja. - þeb
Fékk nýsköpunarverðlaun:
Reiknar hættu
á hjartaáföllum
VIÐURKENNING VEITT Forseti Íslands
afhenti Vilhjálmi verðlaunin á Bessa-
stöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN