Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 8
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR8
1. Hvaða trúfélagi stýrir kennarinn
Snorri Óskarsson, sem hefur
verið sendur í launað leyfi vegna
ummæla sinna um samkynhneigð?
2. Hvert er Tobba Marinósdóttir
að flytja?
3. Hver hlaut flest verðlaun á nýaf-
staðinni Grammy-verðlaunahátíð?
SVÖR
1. Betel 2. Ránargötu í Reykjavík 3. Adele
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi mældist 7,2 pró-
sent í janúar og lækkaði um 0,1 prósentustig
frá því í desember. Þetta kemur fram í nýjum
tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnu-
markaði.
Atvinnulausir voru að meðaltali 11.452 í janú-
ar og fækkaði um 308 frá desember. Atvinnu-
lausum körlum fjölgaði um 61 að meðaltali
í mánuðinum en konum fækkaði um 369. Þá
fækkaði atvinnulausum á höfuðborgarsvæðinu
um 313 en fjölgaði um fimm á landsbyggðinni.
Mest atvinnuleysi er sem fyrr á Suðurnesj-
um, 12,5 prósent, en minnst á Norðurlandi
vestra þar sem það er 2,8 prósent. Atvinnuleysi
er 7,5 prósent meðal karla en 6,8 prósent meðal
kvenna.
Fram kemur í tilkynningu Vinnumálastofn-
unar að atvinnuleitendum fjölgi yfirleitt nokkuð
á milli desember og janúar. Fækkunin nú skýr-
ist aðallega af tvennu.
Annars vegar því að flestir þeirra ríflega 900
einstaklinga sem tóku þátt í námsátakinu „Nám
er vinnandi vegur“ halda áfram námi í vor og
fóru því af atvinnuleysisskrá um áramótin.
Hins vegar rann út um áramótin bráðabirgða-
ákvæði um minnkað starfshlutfall en sam-
stundis afskráðust af atvinnuleysisskrá nærri
500 manns sem höfðu fengið greiddar atvinnu-
leysisbætur með hlutastarfi.
Þá telur Vinnumálastofnun líklegt að atvinnu-
leysi aukist í febrúar og verði á bilinu 7,1 til 7,4
prósent. - mþl
Vinnumálastofnun birti nýjar tölur um ástand á vinnumarkaði í gær:
Atvinnuleysi minnkaði lítillega í janúar
GISSUR PÉTURSSON, FORSTJÓRI VINNUMÁLASTOFN-
UNAR Meirihluti þeirra 900 sem tóku þátt í náms-
átakinu „Nám er vinnandi vegur“ hélt áfram í námi
eftir áramót og fór því af atvinnuleysisskrá.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GRIKKLAND, AP Efnahagur Grikk-
lands dróst saman um sjö prósent
á tímabilinu frá fjórða ársfjórð-
ungi 2010 til fjórða ársfjórðungs
2011. Þetta er meiri samdráttur
en reiknað hafði verið með, þrátt
fyrir harðan niðurskurð á fjár-
lögum, skattahækkanir og ýmsar
sparnaðarráðstafanir.
Gríska þingið samþykkti nýj-
ustu niðurskurðaráformin á
sunnudag, en í dag ætla fjármála-
ráðherrar evruríkjanna að hittast
til að leggja blessun sína yfir þau
áform, sem eru skilyrði þess að
Grikkir fái 130 milljarða aðstoð
frá ESB og AGS.
Kröfurnar, sem ESB og AGS
gera til Grikkja, sýna að grískum
stjórnvöldum er varla treyst til að
standa við fögru áformin um nið-
urskurð í ríkisfjármálum. Und-
anfarin ár hefur grískum stjórn-
völdum gengið illa að standa við
loforð um niðurskurð og hagræð-
ingu. Meðal annars hafa áform
um stórfellda sölu ríkiseigna og
einkavæðingu ekki skilað þeim
tekjum í ríkissjóð sem stjórnin
gekk út frá í áætlunum sínum.
Í þetta skiptið vilja því ESB og
AGS sjá áþreifanlegar niðurstöð-
ur áður en frekari fjárhagsaðstoð
er veitt.
Gríska stjórnin vinnur meðal
annars hörðum höndum þessa
dagana við að ljúka samningum
við marga helstu lánardrottna
ríkisins, einkum gríska og
erlenda einkabanka, um niður-
fellingu skulda.
Samdrátturinn og niðurskurð-
urinn hafa bitnað harkalega á
almenningi í landinu, sem er
stjórnvöldum ævareiður fyrir að
láta undan kröfum Evrópusam-
bandsins og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins um niðurskurð.
Um hundrað og fimmtíu fyrir-
tæki skemmdust illa í óeirðum í
Aþenu á sunnudag, meðan gríska
þingið var að greiða atkvæði um
sparnaðaraðgerðirnar. Tugir
þingmanna hættu þetta kvöld
stuðningi við ríkisstjórnina og
nú hefur verið boðað til kosninga
í apríl, þegar Grikkir hafa lokið
við að greiða næstu afborganir af
ríkisskuldum sínum.
Leiðtogar Evrópusambandsins,
þeir Herman van Rompuy, forseti
leiðtogaráðs ESB, og José Manu-
el Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, heimsóttu í gær
Wen Jibao, forsætisráðherra
Kína. Hann vildi engu ákveðnu
lofa um þátttöku Kínverja í fjár-
mögnun stöðugleikasjóðs evru-
ríkjanna, gaf hins vegar almenn
loforð um að Kínverjar muni gera
sitt til þess að aðstoða evruríkin.
Evrópusambandið hefur hins
vegar áður fengið loforð af þessu
tagi frá Kínverjum, en efndirnar
hafa látið standa á sér.
gudsteinn@frettabladid.is
Treysta Grikkjum ekki til að
standa við sparnaðaráform
Efnahagur Grikklands heldur áfram að versna, þrátt fyrir strangar sparnaðarráðstafanir og fjárhagsaðstoð að
utan. Grikkjum ekki treyst til að standa við niðurskurðaráformin. Kínverjar gefa óljós loforð um aðstoð.
EFTIRLAUNAÞEGAR MÓTMÆLA Mikil reiði er meðal almennings í Grikklandi út í
stjórnvöld og sparnaðaráform þeirra. NORDICPHOTOS/AFP
VEIÐI Um 3.400 umsóknir um
leyfi til hreindýraveiða höfðu
borist til Umhverfisstofnun-
ar í gær. Umsóknarfrestur um
hreindýraveiðileyfi rennur út í
dag. Umsóknir sem berast eftir
að umsóknarfrestur rennur út
komast ekki í pottinn.
Heimilt verður að veiða allt að
1.009 dýr í ár. Það er fjölgun um
átta dýr frá fyrra ári. Leyft verð-
ur að veiða 588 kýr og 421 tarf.
Veturgamlir tarfar eru alfrið-
aðir og miðast tarfaveiði því
við tveggja vetra og eldri tarfa.
Óheimilt er að veiða kálfa. - shá
Hreindýraveiðin 2012:
3.400 hafa sótt
um 1.009 dýr
SJÁVARÚTVEGUR Góðir markaðir
eru fyrir loðnuafurðir um þessar
mundir. Á heimasíðu HB Granda
kemur fram að 5.200 tonn af
loðnuafurðum hafa verið flutt
út frá áramótum á Vopnafirði.
Áætlað er að skipa út 13 þúsund
tonnum af mjöli og lýsi á fyrsta
ársfjórðungi.
Svavar Svavarsson, markaðs-
stjóri HB Granda, segir vinnslu
ganga vel enda loðnan stór og
góð. Afskipanir eru hraðar og
birgðir litlar. Það er mikilvægt
nú þegar loðnuvertíðin er að kom-
ast á fullan skrið, eftir að loðnan
tók að ganga upp á grunnið við
suðaustanvert landið. Miklu
skiptir að afskipun séu í sam-
ræmi við framleiðsluna, að sögn
Svavars. - shá
Góður markaður fyrir loðnu:
5.200 tonn flutt
frá Vopnafirði
VEISTU SVARIÐ?