Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 10
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Icepharm
a
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA / FÆST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT
LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA
SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR
STJÓRNSÝSLA Þorbjörn Jónsson, for-
maður Læknafélags Íslands (LÍ),
snýr út úr ummælum staðgeng-
ils skattrannsóknarstjóra ríkisins,
Gunnars Thorberg, í bréfi til emb-
ættisins á föstudaginn. Þetta er mat
Bryndísar Kristjánsdóttur skatt-
rannsóknarstjóra sem greint var frá
í fréttum Bylgjunnar í gær.
Þorbjörn segir í bréfi til skatt-
rannsóknarstjóra að í ummælum
Gunnars í Fréttablaðinu á föstudag
hafi falist alvarlegar ásakanir um
skattalagabrot allra lækna.
Gunnar sagði að það væri
„ekkert sérlega gaman að vita af
því að [læknar] séu ekki með sitt á
hreinu,“ varðandi núverandi rann-
sókn embættisins á fjármálum lýta-
læknis og hugsanlega fleiri lækna í
kjölfarið. Bryndís segir í svarbréfi
til LÍ að Gunnar sé augljóslega ekki
að vísa til allra lækna í þeim skiln-
ingi að skattsvik hvers og eins séu
athugunarverð, heldur að þetta ein-
staka mál bendi til þess að skatt-
skil atvinnugreinarinnar séu ekki
án undantekninga í samræmi við
lög. Ekki sé því annað séð en LÍ
setji annan og jafnvel andstæðan
skilning í umrædd orð Gunnars.
Vegna þessa telur Bryndís að
engar forsendur séu til að embættið
grípi til aðgerða, en LÍ fór fram á að
embættið birti leiðréttingu í Frétta-
blaðinu og á Vísi vegna ummæla
Gunnars á föstudag. - sv
Skattrannsóknarstjóri svarar gagnrýni formanns Læknafélags Íslands:
Læknafélagið snýr út úr ummælum
ÞORBJÖRN
JÓNSSON
BRYNDÍS
KRISTJÁNSDÓTTIR
VIÐSKIPTI „Ég vil fá upplýsingar
um bréf sem Landsbankinn átti í
sjálfum sér, hafði að veði og lán-
veitingar til þessara félaga,“ segir
Vilhjálmur Bjarnason, lektor og
fjárfestir, sem hefur höfðað mál
á hendur slitastjórn Landsbank-
ans og krefst þess að hún afhendi
honum gögn um stöðu bankans
fyrir og eftir hrun.
Beiðnin var lögð fyrir Héraðs-
dóm 31. janúar. Þar fer Vilhjálm-
ur fram á upplýsingar um eign
Landsbankans í sjálfum sér og
fjölda bréfa í sjálfum sér sem lágu
að veði fyrir lánum hans á þrem-
ur tilgreindum tímapunktum:
31. desember 2006, 31. desember
2007 og loks daginn sem Fjár-
málaeftirlitið tók bankann yfir, 7.
október 2008.
Þá krefst Vilhjálmur sömu-
leiðis kröfulýsinga hins fallna
banka í þrotabú Björgólfs Guð-
mundssonar og fjögurra félaga
sem voru í hans eigu, Fjárfest-
ingafélagsins Grettis, Samsonar,
Samson Global Holding og Sam-
son Properties.
„Að baki þessu býr að ef Lands-
bankinn hefur verið yfir mörkum
um eign í eigin hlutabréfum þá er
spurning hvort bankinn hefur
verið starfhæfur,“ segir Vilhjálm-
ur. Það geti bakað stjórnendum
bankans skaðabótaskyldu gagn-
vart hluthöfum eins og honum
sjálfum. Það sama eigi við ef í ljós
komi að reglur um lán til tengdra
aðila hafi verið þverbrotnar.
Fram kemur í beiðni Vilhjálms
að hann hafi í tvígang sent
slitastjórninni bréf vorið 2010 og
óskað eftir þessum upplýsingum
en hvorugu þeirra hafi verið svar-
að. Í því síðara hafi komið fram
að hann hefði fullan hug á að láta
reyna á rétt sinn gagnvart fyrrum
stjórnendum bankans og aðaleig-
endunum, Björgólfi Guðmunds-
syni og syni hans Björgólfi Thor.
Málið verður tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur á föstu-
dag. stigur@frettabladid.is
Krefst upplýsinga um
stöðu Landsbankans
Fjárfestirinn Vilhjálmur Bjarnason hefur höfðað mál gegn gamla Landsbank-
anum til að fá afhent gögn um eign bankans í sjálfum sér og lán til tengdra
aðila. Hyggur á skaðabótamál gegn stjórnendum bankans og Björgólfsfeðgum.
LANDSBANKINN Slitastjórn bankans hefur neitað
Vilhjálmi um gögnin en hann hefur nú farið með málið
fyrir dóm. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hæstiréttur veitti Vilhjálmi Bjarna-
syni aðgang að sambærilegum
gögnum frá Glitni í mars í
fyrra. Héraðsdómur hafði áður
hafnað beiðninni en Hæsti-
réttur taldi að hann ætti lögvar-
inna hagsmuna að gæta, enda
gæti hann sýnt fram á að hann
hefði orðið fyrir einstaklings-
bundnu tjóni við fall bankans í
október 2008.
Vilhjálmi var þó neitað um
upplýsingar um starfslok Bjarna
Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra,
hjá bankanum og sátt milli
Bjarna og bankans
um 650 milljóna
króna endur-
greiðslu Bjarna
vegna hlutabréfa-
viðskipta.
Vann sambærilegt mál gegn Glitni
HEILBRIGÐISMÁL Inflúensutilvikum
sem greinast fjölgar enn, að sögn
sóttvarnalæknis. „Og er líklegt að
tilfellum haldi áfram að fjölga á
næstunni,“ segir á vef Landlækn-
is. Útbreiðsla flensunnar er sögð
mjög svipuð og í fyrravetur.
„Inflúensan hefur verið staðfest
í öllum aldurshópum og í flest-
um landshlutum,“ segir þar jafn-
framt, en flensan hefur öll verið af
inflúensu A (H3) stofni. Enn hefur
enginn greinst með svínainflúensu
(H1N1) eða inflúensu B.
Þá segir sóttvarnalæknir nokk-
uð hafa greinst af RS-veiru og
metapneumóveirum í börnum síð-
ustu vikur. „Flest börnin eru eins
árs eða yngri.“ - óká
Smábörn hafa verið lasin:
Flensutilvikum
fjölgar enn þá
SÚKKULAÐISKÚLPTÚR Nemandi við
listaháskólann í Zagreb í Króatíu
vann að því að búa til höggmynd úr
250 kílóa þungum súkkulaðiklumpi.
NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAMÁL Um níu af hverjum tíu
Íslendingum ferðuðust innanlands
í fyrra, samkvæmt könnun sem
MMR vann fyrir Ferðamálastofu.
Hlutfallið er svipað og síðustu ár.
„Tæplega tveir þriðju aðspurðra
ferðuðust til útlanda á árinu 2011,
eða 63,3 prósent, en var 56,3 pró-
sent í sambærilegri könnun fyrir
ári síðan,“ segir á vef Ferðamála-
stofu. Ekki munu vera greinan-
legar miklar breytingar í ferða-
áformum fólks fyrir nýbyrjað ár.
Langflestir hafa ferðalög af ein-
hverju tagi á stefnuskránni. - óká
Flestir ferðast innanlands:
Tveir þriðju til
útlanda í fyrra
BRETLAND, AP „Ég óttast að herská
veraldarhyggjuvæðing sé að ná
völdum í þjóðfélögum okkar,“
segir Sayeeda Warsi, ráðherra í
bresku ríkisstjórninni, og hvet-
ur til þess að trúin fái að gegna
stærra hlutverki í stjórnmálum.
„Evrópa þarf að öðlast meiri
fullvissu um kristna trú,“ segir
hún. Ummæli hennar hafa vakið
töluvert umtal í Bretlandi.
Hún er múslími og barónessa,
hefur ævilangt sæti í öldunga-
deild þingsins, er annar tveggja
framkvæmdastjóra breska
Íhaldsflokksins og hefur óskil-
greint ráðherraembætti í ríkis-
stjórn Davids Cameron. - gb
Breskur ráðherra:
Vill verjast her-
skáu trúleysi
SAYEEDA WARSI Ummæli hennar hafa
vakið umtal í Bretlandi. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL „Kynferðislegur áhugi
á börnum á ekkert sammerkt
með samkynhneigð,“ segir í
ályktun frá Samtökunum ´78 í til-
efni dóms sem féll í Héraðsdómi
Vesturlands fyrir helgi vegna
barnavændis.
Í málinu var fyrrverandi fram-
haldsskólakennari dæmdur fyrir
að kaupa vændisþjónustu af
fjórtán ára dreng og sérstaklega
tekið fram að hann hefði átt erfitt
með að koma út úr skápnum.
Í ályktuninni segir að það sé
„mjög varhugavert að tengja
erfiðleika við að koma út úr
skápnum við þá hegðun sem hér
hefur verið dæmt fyrir“. - sh
Dómur vegna barnavændis:
Ekkert tengt
samkynhneigð
ÍRAN, AP Írönsk eftirlitsskip og
herþotur fylgdu eftir bandarísk-
um herskipaflota þegar honum
var siglt um Hormús-sund í gær
með flugmóðurskipið Abraham
Lincoln í fararbroddi.
Íranar hafa hótað því að loka
sundinu, láti Vesturlönd ekki af
refsiaðgerðum og hótunum vegna
kjarnorkuáætlunar Írana. Um
það bil fimmtungur af allri þeirri
olíu, sem seld er í heiminum, er
fluttur um Hormús-sund frá olíu-
framleiðsluríkjum við Persaflóa.
Þrátt fyrir hótanir sínar hafa
Íranar til þessa ekki gert neinar
tilraunir til að hindra siglingar
olíuskipa um sundið. - gb
Íranar minna á sig:
Bandarískum
herflota fylgt
ABRAHAM LINCOLN Bandaríska flug-
móðurskipið fékk íranska fylgd.
NORDICPHOTOS/AFP