Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2012 11
FERÐAÞJÓNUSTA Könnun Ferða-
málastofu meðal innlendra ferða-
manna sýnir að 12,7% keyptu sér
golfhring á ferðalagi um Ísland.
Sama könnun sýnir að 90%
Íslendinga 18 ára og eldri ferðuð-
ust um landið og því má ætla að
27 þúsund Íslendingar hafi farið í
golf á ferðalagi um landið.
Golf er ein mest keypta afþrey-
ing á ferðalögum Íslendinga
innanlands. Þó hefur þeim sem
kaupa sér golfhring fækkað á
milli ára.
GSÍ leikur sér með tölur í
fréttatilkynningu og áætlar að
hópurinn hafi varið 160 millj-
ónum í vallargjöld utan heima-
klúbbs. Þá segir að 16,2% karla
sem voru á ferðinni á síðasta
ári keyptu golfhring, en 9,2%
kvenna. - shá
Golfsumarið 2011:
Þúsundir spila
golf á ferðalagi
Á VELLINUM Golf virðist ein vinsælasta
afþreying ferðafólks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DANMÖRK Rétt tæpur þriðjungur
Dana yfir 17 ára aldri er ógiftur
og hefur aldrei gifst, að því er
fram kemur í úttekt dönsku töl-
fræðistofnunarinnar. Rétt tæpur
helmingur er í hjónabandi sem
stendur.
Talsverður munur er á hlutfall-
inu eftir búsetu. Rúmur helm-
ingur Kaupmannahafnarbúa
hefur aldrei gifst, en hlutfallið er
lægst á Norður-Sjálandi þar sem
aðeins um 24% hafa aldrei gengið
í hjónaband. Í skýrslunni kemur
jafnframt fram að um 10% full-
orðinna Dana eru fráskilin og um
7% eru ekkjufólk. - þj
Ný könnun á hjúskaparstöðu Dana:
Þriðjungur hefur aldrei gifst
Í HNAPPHELDUNA Um þriðjungur Dana
hefur aldrei gengið í hjónaband. Tæpur
helmingur er giftur sem stendur.
VIÐSKIPTI Gunnur Helgadóttir
hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri Vistor hf., sem vinnur
að markaðssetningu á lyfjum,
heilsuvöru og dýraheilbrigðis-
vöru á Íslandi. Hún tekur við
starfinu af Guðbjörgu Alfreðs-
dóttur sem lét af störfum í byrj-
un árs eftir 35 ár hjá fyrirtæk-
inu. Vistor er dótturfélag Veritas
Capital hf. og systurfélag fyrir-
tækjanna Distica hf., Artasan
ehf. og Medor ehf. Hjá Vistor
vinna um 60 manns og velta
fyrirtækisins í fyrra var um átta
milljarðar króna.
Gunnur hefur starfað hjá
Vistor frá árinu 2003, síðastliðin
fimm ár sem markaðsstjóri. - þsj
Breytingar hjá Vistor hf.:
Gunnur tekur
við taumunum
DANMÖRK Kristian Heilmann,
sem er grunaður um að hafa
orðið starfskonu á sambýli í
Viborg að bana í síðustu viku er
enn haldið sofandi á sjúkrahúsi
vegna meiðsla sem hann hlaut á
flóttanum.
Heilmann var vistmaður á
sambýlinu, sem hýsir menn með
geðræn vandamál, en fór með
konunni í bílferð fyrir réttri viku.
Leit hófst þegar þau skiluðu sér
ekki á settum tíma og fannst lík
konunnar daginn eftir illa leikið á
víðavangi. Heilmann fannst loks,
mikið slasaður eftir bílslys. Hann
hefur verið úrskurðaður í fjög-
urra vikna gæsluvarðhald. - þj
Morðmál í Danmörku:
Grunaða enn
haldið sofandi
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
Spry tyggjó
með 100% xylitoli
Spry minnkar hættuna
á tannsteini.
Spry lækkar sýrustig í munni.
Spry styrkir tannglerunginn
og seinkar eyðingu hans.
Spry kælir og minnkar munnþurrk.
Spry heldur munninum hreinum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
50
56
9
Endurbótum er nú lokið á Vínbúðinni Dalvegi og við
bjóðum ykkur velkomin í nýja og glæsilega búð.
vinbudin.is
Höfum opnað nýja
og betri Vínbúð
á Dalvegi