Fréttablaðið - 15.02.2012, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2012 15
Oddviti Næstbesta flokks-ins fer mikinn í fjölmiðlum
í kjölfar brotthvarfs síns úr frá-
farandi meirihluta í bæjarstjórn
Kópavogs. Hann víkur sér undan
ábyrgð og skellir skuldinni á aðra
og þá helst undirritaða. Honum er
mikið í mun að klína á mig stimpli
valdagræðgi og sverta mannorð
mitt þannig að ósekju.
Samstarf flokkanna fjögurra
var sannarlega flókið
Eftir kosningar vorið 2010 var
okkur í Samfylkingunni mikið
kappsmál að mynda meirihluta
í bæjarstjórn Kópavogs án þátt-
töku fyrri meirihlutaflokka. Ein-
ungis þannig gætum við breytt
vinnubrögðum í stjórnsýslunni til
betri vegar frá því sem áður var.
Eins og kunnugt er var það ófrá-
víkjanleg krafa Lista Kópavogs-
búa að bæjarstjóri yrði ópólitískur.
Það var og er ekkert launungar-
mál að á þeim tíma höfðu aðrir í
þeim meirihluta aðra skoðun, líka
fulltrúi Næstbesta flokks. Niður-
staðan varð samt sem áður sú að
ganga að kröfum Lista Kópavogs-
búa frekar en leita samstarfs t.d.
við Framsóknarflokk. Ef það hefði
verið mitt helsta markmið á þeim
tíma að verma bæjarstjórastólinn
þá stóð það vissulega til boða, ég
valdi hins vegar aðra leið. Sam-
starf flokkanna fjögurra var sann-
arlega flókið og ekki alltaf auðvelt.
Rauði þráðurinn í samstarfi okkar
voru þó bætt vinnubrögð og betri
stjórnsýsla. Innan okkar raða var
oftast einhugur um öll mál.
Miklar kröfur gerðar til þess
sem gegnir starfi bæjarstjóra
Bæjarstjóri situr í umboði kjör-
inna fulltrúa og þeir bera ábyrgð
á störfum hans. Gerðar eru mikl-
ar kröfur til þess sem gegnir
starfi bæjarstjóra. Hann þarf að
vera vakinn og sofinn í vinnunni,
vera trúr þeim sem hann vinnur
fyrir og fylgja vel eftir ákvörð-
unum bæjarstjórnar. Það er mik-
ilvægt að hans störf og embættis-
færslur séu hafin yfir allan vafa.
Þetta er vel launað starf einmitt
vegna þessara ríku krafna sem
til hans eru gerðar. Það hefur
verið ljóst í nokkurn tíma að bæj-
arstjóri náði ekki utan um þetta
erfiða og flókna starf sem æðsti
embættismaður stjórnsýslu Kópa-
vogs. Nokkrir fundir voru haldn-
ir í meirihlutanum á síðustu mán-
uðum þar sem störf bæjarstjóra
voru rædd. Það hefur ekki verið
ágreiningur um það innan meiri-
hlutans að rétt hafi verið að skipta
um bæjarstjóra.
Samkomulag um
ópólitískan bæjarstjóra
Eins og Hjálmar benti réttilega á
ítrekaði ég það sérstaklega að ég
sæktist ekki eftir því að taka við
starfi bæjarstjóra á fundi í sept-
ember þegar framtíð bæjarstjór-
ans var rædd innan meirihlutans.
Ég lýsti því einnig yfir í hádegis-
fréttum RÚV þann 16. janúar að ég
teldi það ekkert endilega heppilegt
í ljósi aðstæðna að ég yrði sú sem
tæki við. Á umræddum fundi þann
12. janúar var framhaldið rætt lít-
illega, þ.e. hver tæki við starfi bæj-
arstjóra. Á þeim fundi hélt oddviti
VG þeirri skoðun sinni á lofti að
næsti bæjarstjóri yrði að vera póli-
tískur, einungis þannig myndum
við ná tökum á stjórnsýslu bæjar-
ins. Á þeim fundi tjáði ég mig ekk-
ert um málið. Ég hef aftur á móti
ekki skorast undan þeirri ábyrgð
að taka að mér verkefnið en aftur
og ítrekað, hef ég aldrei gert það
að kröfu minni. Á sunnudeginum
15. janúar hittist meirihlutinn og
var sameiginleg niðurstaða þess
fundar að leita að bæjarstjóra utan
okkar raða.
Hjálmar skipti um skoðun
En eins og svo oft áður skipti
Hjálmar um skoðun á milli funda
og gekk út úr meirihlutanum
tveimur dögum seinna án þess
að um nokkurn ágreining væri að
ræða. Undangengin fjölmiðlaum-
fjöllun hafði reynt mikið á okkur
og að okkur var sótt af fjölmörgum
aðilum utan okkar raða og þá ekki
hvað síst pólitískum andstæðing-
um sem sáu sér leik á borði að reka
fleyg í okkar raðir. Það er alltaf
erfitt að segja upp starfsfólki og
ömurlegt að standa frammi fyrir
því að verða sagt upp. Reiði og
tortryggni er eðlilegur fylgifisk-
ur. Ég minnist þess ekki að mikið
fjaðrafok hafi verið innan okkar
raða þegar 13 starfsmönnum bæj-
arins var sagt upp fyrir rúmu ári
síðan vegna hagræðingar. Starfs-
menn sem höfðu ekkert til saka
unnið og almennt staðið sig vel í
starfi. Bæjarstjóri var þó í samn-
ingi sínum tryggður í bak og fyrir
og gat tekið við starfi áþekku sínu
gamla starfi. Ég hafði fullt umboð
til að nefna það við hana hvað sem
Hjálmar segir nú þar sem ráðning-
arsamningur bæjarstjóra kveður
á um að hún geti gengið að sínu
fyrra starfi láti hún af störfum
sem bæjarstjóri.
Hjálmari er tíðrætt
um trúnaðarbrest
Það er rétt að einn fulltrúi okkar
hóps hafði verið í sambandi við
fulltrúa Framsóknarflokks með
hugsanlegt samstarf í huga. Sjálf-
ur lagði Hjálmar það til í desemb-
er að Framsóknarflokki yrði boðið
inn í meirihlutann og hann þannig
styrktur. En það var niðurstaðan að
samstarf þessara fjögurra flokka
héldi áfram út kjörtímabilið þótt
einn og einn villiköttur ýfði sig af
og til. Þannig er það nú bara, við
erum öll misjöfn og langt því frá
fullkomin.
Við höfum öll gert mistök
Það voru mistök að rita ekki
fundar gerðir á þeim fundum þegar
störf bæjarstjóra voru rædd. Ég
gerði klárlega mistök að ganga ein
á fund bæjarstjóra að ræða hennar
starfslok. Eftir á að hyggja hefð-
um við átt að fara fjögur, oddvitar
allra flokka. Þannig hefði enginn
getað vikið sér undan ábyrgð. Ég
gerði mistök þegar ég lagði til að
bæjarstjóri Kópavogs yrði valinn
úr röðum starfsmanna. Þá hefði
ég átt að vita að það myndi reyn-
ast okkur erfitt að gera kröfu um
breytt vinnubrögð með starfsmann
bæjarins til áratuga í brúnni. Ég
gerði mistök þegar ég lét Hjálmar
Hjálmarsson ganga út úr meirihlut-
anum án þess að leggja mig meira
fram um að leiða honum fyrir sjón-
ir hverjar afleiðingar þess gætu
orðið og ég gerði mistök að treysta
fólki sem var ekki traustsins vert.
Þetta var dýrkeypt fyrir Kópa-
vog. Gamli meirihlutinn sem við
lögðum öll kapp á að fella er nú
kominn til valda aftur. Meirihluti
sem vann það ótrúlega afrek að
hækka skuldir bæjarins um tutt-
ugu milljarða frá 2006 -2008. Hann
nýtti sér þá upplausn sem varð í
okkar röðum sér í hag. Ég skorast
ekki undan ábyrgð en ég axla hana
ekki ein, við vorum sex í gamla
meirihlutanum. Hjálmar á sinn þátt
í því hvernig fór.
Það voru mistök að rita ekki fundar-
gerðir á þeim fundum þegar störf bæjar-
stjóra voru rædd.
Kópavogskrónikan heldur áfram
Stjórnmál
Guðríður
Arnardóttir
bæjarfulltrúi
landsbankinn.is 410 4800Landsbankinn
jl
.i
s
S
ÍA
Þessi kjör gilda til 1. mars.
8,55%
vextir Ekkertlántökugjald
Grænir bílar eru skilgreindir sem
bílar með minnsta mögu legan
útblástur sem eru flokkar A, B eða
C og losa 0-120 g af koltví sýring
á hvern ekinn kílómetra.
Stefna Landsbankans um sam-
félagslega ábyrgð hefur sett
bankanum þau mark mið að tengja
starfshætti sína við efnahags-,
samfélags- og umhverfismál.
Skilmála, gjaldskrár og nánari upplýsingar má finna á landsbankinn.is
eða hjá Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans í Sigtúni 42.
Græn bílafjármögnun
AF NETINU
Vinstri stjórnin græðgis-
væðir auðlindirnar
Með hjálp lífeyrissjóða heldur
Magma-braskið með HS Orku
áfram. Ríkisstjórnin, sem
hafði lofað að „vinda ofan af“
græðgisvæðingu orkuauð-
lindanna hefur milligöngu um
að peningar almennings í líf-
eyrissjóðum verði notaðir til að
fleyta HS Orku á markað.
Markaðsvæddar orkuauðlindir
leiða ávallt til þess að almenn-
ingur er blóðmjólkaður og því
meira sem einokunarstaðan er
sterkari.
Til hvers að hafa vinstristjórn
sem fattar ekki grundvallarlög-
mál markaðseinokunar?
http://pallvil.blog.is
Páll Vilhjálmsson
Réttur Snorra
til rangra skoðana?
Ég hef hikað við að tjá mig
um orð Snorra Óskarssonar
og viðbrögð bæjaryfirvalda á
Akureyri við þeim. Ástæðan er
ekki að ég hafi ekki skoðanir
á þeim, heldur vegna þess
hversu eldfimt þetta mál er.
Ég hef verið hrædd við að
skoðanir mínir séu hugsanlega
ekki í samræmi við pólitískan
rétttrúnað.
Ég er nefnilega ósammála
bæði Snorra og bæjar-
yfirvöldum á Akureyri. Ég tel
samkynhneigð ekki vera synd,
ekki frekar en að vera með
stór eyru eða stuðningsmaður
L-listans.
Ég velti hins vegar fyrir mér
hvort trú kennara og skoðanir
þeirra eigi að vera tilefni til
brottrekstrar.
Hlýtur ekki eitthvað meira að
þurfa að koma til?
http://blog.eyjan.is
Eygló Harðardóttir