Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 16
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR16
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Þróunin sem á sér stað í þessum
málum hér á landi er mjög skemmti-
leg. Við getum horft aftur til ársins
2009, þegar breski Íslandsvinurinn
Tom Burnham, sem er sérfræðingur
í hjólaferðamennsku í dreifbýli, hélt
morgunfund á Hótel Sögu. Þá héldum
við að enginn væri að hjóla á Íslandi
en það var pakkfullur salur og allt að
gerast,“ segir Sesselja Traustadóttir,
verkefnastýra Hjólaleiða á Íslandi,
samvinnuverkefnis fjölmargra aðila
sem á einn eða annan hátt koma að
uppbyggingu og skipulagi hjólaleiða
á Íslandi. Markmið verkefnisins er að
skipuleggja og byggja upp heildrænt
hjólaleiðanet um Ísland, með upplýs-
ingum um þjónustu við hjólreiðamenn
og stendur samstarfshópurinn fyrir
málþingi í sal Eflu verkfræðistofu
24. febrúar næstkomandi.
Tækifæri í hjólaferðamennsku á
Íslandi er yfirskrift málþingsins,
þar sem meðal annars verður rætt
um stöðuna á Íslandi í dag í þessum
málum og hvað þarf að gera til að nýta
þau tækifæri sem í boði eru. Á meðal
fyrirlesara eru téður Tom Burnham,
sem fjallar um hjólalandið Ísland, og
Jens Erik Larssen, sem hefur unnið
ötullega að uppbyggingu hjólaferða-
mennsku í Danmörku og einnig að
EuroVelo-verkefninu, sem er Evrópu-
net hjólaleiða.
„EuroVelo er risavaxið verkefni
sem hefur verið að mótast innan
Evrópusambandsins,“ segir Sesselja
og útskýrir að um sé að ræða þróun
og merkingar fjórtán hágæða hjóla-
leiða sem tengja saman meginlandið.
„Lengsta leiðin er frá Nordkap í Nor-
egi og alla leið suður til Möltu. Sjálf
var ég inni á einni leiðinni þegar ég
hjólaði frá Kaupmannahöfn til Berl-
ínar í sumar og auðvitað eigum við
Íslendingar að vera með í þessu verk-
efni. Til að mynda eru hugmyndir
uppi um að búa til nýja hjólaleið sem
gæti þess vegna byrjað í Reykjavík.
Svo yrði tekinn smá hringur í Færeyj-
um, Bergen, Ósló, Helsinki og endað í
Moskvu. Þetta er framtíðarmynd sem
gæti skipt máli, en það má ekki van-
meta þörfina á að búa til hjólaleiðir til
að komast út úr Reykjavík. Það virð-
ist allt hjólafólk sammála um. Það er
hrikalegt að komast ekki upp á Kjal-
arnes, til Hveragerðis og Keflavíkur.“
Auk ofantalinna mun fjöldi íslenskra
fyrirlesara miðla þekkingu sinni og
meðal annars segja frá hjólaleiðum við
Mývatn, skipulagi leiða og því hvernig
hjólaferðamennska gengur á Íslandi.
Sesselja segir eitt helsta baráttumál-
ið að fá hjólaleiðir heim í hérað. „Það
virkar svo hvetjandi fyrir fólk að fara
í dagshjólaferðir í stað þess að fara
á jeppanum og fá sér ís í Hrafnagili.
Kannski þurfum við að fara að huga
að því að opna landið okkar, passa
upp á að ekki sé gaddavír út um allt
í sveitum landsins. Þeir sem fara á
eigin orku, gangandi og hjólandi, eiga
að geta komist um án þess að lenda í
stríðsástandi,“ segir Sesselja.
Skráning á málþingið stendur til
hádegis 23. febrúar á vefsíðunni http://
lhm.is/taekifaeri2012.
kjartan@frettabladid.is
HJÓLALEIÐIR Á ÍSLANDI: HALDA MÁLÞING UM TÆKIFÆRI Í HJÓLAFERÐAMENNSKU
Vilja hjólaleiðir heim í hérað
VERKEFNISSTÝRA Á málþinginu verður meðal annars rætt um EuroVelo-verkefnið sem gengur
út á þróun hjólaleiða sem tengja saman Evrópulöndin. Sesselja Traustadóttir telur að Ísland
eigi að taka þátt í verkefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hin geysivinsæla YouTube-vefsíða fór í loftið á
þessum degi fyrir sjö árum. Á síðunni geta not-
endur hlaðið inn, horft á og deilt myndböndum.
YouTube-síðan var stofnuð af þremur fyrrum
starfsmönnum greiðslusíðunnar PayPal, þeim
Chad Hurley, Steve Chen og Jawed Karim.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í borginni San
Bruno í Kaliforníuríki.
Tímaritið Time valdi YouTube nýjung ársins
2006. Í nóvember það sama ár keypti Google
YouTube fyrir hlutabréfaeign í Google að
verðmæti 1,65 milljarðar Bandaríkjadollara.
Mörg dæmi eru um að höfundarréttur hvíli á
því efni sem sent er inn á YouTube-síðuna, til að
mynda tónlistarmyndbönd. Við þessu er reynt að
bregðast með að fjarlægja slíkt efni sem finnst,
en ógerningur er að halda öllu óæskilegu efni frá
síðunni. YouTube hefur meðal annars dregið úr
fjölda þessara tilfella með því að gera samning
við stór útgáfufyrirtæki um að birta tónlistar-
myndbönd þeirra á vefnum til kynningarauka.
ÞETTA GERÐIST: 15. FEBRÚAR 2005
YouTube hefur göngu sína
JANICE DICKINSON, fyrirsæta og leikkona, er 57 ára í dag.
„Ég er háð lýtaaðgerðum.“
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Sigrún S. Hafstein
lést miðvikudaginn 8. febrúar á Landspítalanum,
Fossvogi.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
17. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á að láta björgunarsveitir landsins njóta.
Stefán Jón Hafstein Guðrún K. Sigurðardóttir
Þórunn Júníana Hafstein
Sigrún Soffía Hafstein Snæbjörn Jónsson
Hildur Björg Hafstein Stefán B. Mikaelsson
Hannes Júlíus Hafstein Hrafnhildur B. Haraldsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Íris Jónsdóttir
Arnartanga 35, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
11. febrúar. Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju
mánudaginn 20. febrúar kl. 13.00.
Kristján Þór Valdimarsson
Hrafnhildur Gísladóttir
Ósk Kristjánsdóttir
Lúðvík Aron Kristjánsson Lis Ruth Klörudóttir
barnabörn.
Ástkær vinur okkar, eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Magnús Þórarinn
Daníelsson
skipstjóri, Mávatjörn 17, Njarðvík,
fórst með Hallgrími SI-77 þann 25. janúar sl.
Minningarathöfn fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 17. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta
Slysavarnaskóla sjómanna njóta þess.
Eyrún Sveinbjörg Jónsdóttir
Jón Ragnar Magnússon Edda Svavarsdóttir
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir Arnar Svansson
Bryndís Harpa Magnúsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Sæmundsdóttir
frá Ólafsfirði, Hraunvangi 3,
Hafnarfirði,
andaðist þriðjudaginn 7. febrúar á Landakotsspítala.
Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00.
Áslaug Jónsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir Sigþór Jóhannesson
Ari E. Jónsson Anna Þórey Sigurðardóttir
Jóhanna Jónsdóttir Steinþór Ómar Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína S. Einarsdóttir
Norðurbrún 1,
lést föstudaginn 10. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðgeir Einarsson Sjöfn Stefánsdóttir
Sólrún Einarsdóttir
Sigrún Einarsdóttir Hallur Kristvinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR