Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 19
APÓTEK
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012
Kynningarblað
Lyf
Vítamín
Fæðubótarefni
Hjúkrunarvörur
Snyrtivörur
Fróðleikur
Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar þótt að við aug-lýsum ekki mikið. Það
kemur til af því að við höfum alltaf
komið mjög vel út úr verðkönnun-
um á lyfjum, hvort sem um er að
ræða lyfseðilsskyld lyf eða lyf sem
eru seld án lyfseðils,“ segir Hauk-
ur Ingason, apótekari í Garðs Apó-
teki.
Hann segir æ fleiri komast að
raun um að hægt sé að gera góð
kaup á f leiru en lyfjum í Garðs
Apóteki.
„Margir koma gagngert til að
kaupa fæðubótarefni og vítam-
ín sem fást í úrvali, hjúkrunar-
vörur, snyrtivörur og næringar-
drykki, því verð er almennt lágt í
apótekinu.“
Að sögn Hauks kunna við-
skiptavinir því einkar vel að Garðs
Apótek sé einkarekið.
„Eftir bankahrunið er fólk
orðið meðvitaðra um við hvern
það verslar og virðist hafa feng-
ið nóg af lyfjakeðjum, hvort sem
þær heita Lyf og heilsa, Lyfja, Apó-
tekið, Apótekarinn eða Skipholts
Apótek,“ upplýsir Haukur.
Í Garðs Apóteki er notalegur
kaffikrókur þar sem hægt er að
setjast niður með ilmandi kaffi,
te eða vatnsglas í boði hússins.
„Hverfisbúar koma hingað oft
og tíðum og stundum er apótek-
ið eins og hverfismiðstöð þar sem
íbúarnir hittast og spjalla saman,“
segir Haukur ánægður.
„Við erum í leiðinni f yrir
íbúa stærstu hverfa borgarinn-
ar og með tilkomu rafrænna lyf-
seðla finnst mörgum þægilegt
að hringja á undan sér, láta taka
til lyfin sín og sækja þau á heim-
leiðinni upp í Breiðholt, Árbæ
eða Grafarvog og nágrannasveit-
arfélögin Mosfellsbæ, Kópavog,
Garðabæ, Hafnarfjörð og víðar,“
segir Haukur.
Það sem gerir Garðs Apótek
að fyrsta vali viðskiptavina er þó
fyrst og fremst fyrirmyndarþjón-
usta og hlýlegt viðmót starfsfólks-
ins, í kaupauka við lága verðið.
„Nýverið jukum við þjónustu
í kringum stómavörur og þvag-
leggi, og nú geta þeir sem nota
slíkar vörur snúið sér til okkar
og fengið þær afhentar í apótek-
inu eða sendar heim til sín, hvert
á land sem er,“ segir Haukur og
bætir við:
„Svo eru alltaf einhverjir sem
segjast koma bara af því að hér
starfi flottustu afgreiðslustúlkur
bæjarins, en ég sel það ekki dýrara
en ég keypti það; eins og svo margt
annað,“ segir Haukur og brosir.
Garðs Apótek er á horni Soga-
vegs og Réttarholtsvegs, við brúna
yfir Miklubraut. Sími 5680990.
Opið er virka daga frá kl. 9-18 en
lokað um helgar. Sjá nánar á www.
gardsapotek.is.
Viðskiptavinum fjölgar bara og
fjölgar í Garðs Apóteki á Sogavegi
Garðs Apótek er vel þekkt meðal landsmanna fyrir lágt lyfjaverð og úrvals þjónustu. Meðal nýjunga í apótekinu eru stómavörur, þvagleggir og
næringardrykkir. Garðs Apótek er í alfaraleið í miðju borgarinnar og rómað fyrir notalegt andrúmsloft og lipura þjónustu í hvívetna.
Haukur Ingason apótekari með fríðum flokki starfskvenna sinna, en glaðlegt viðmót þeirra og einstök þjónustulipurð er rómuð meðal
viðskiptavina Garðs Apóteks. MYND/GVA
Garðs Apótek er staðsett í miðju borgarinnar, á horni Sogavegs og Réttarholtsvegs.
MYND/GVA