Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGApótek MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5429.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Á Grenivík við rætur Kald-baks í Eyjafirði eru fram-leiddar ilm- og litarefna-
lausar snyrtivörur og krem undir
heitinu APÓTEK. Vörurnar eru
framleiddar hjá íslenska lyfja-
og snyrtivörufyrirfyrirtækinu
Pharmarctica sem stofnað var
fyrir tíu árum. Í dag starfa átta
manns hjá fyrirtækinu og er vöru-
línan seld í lyfjaverslunum um allt
land.
„Lyfjafræðingarnir Torfi Rafn
Halldórsson, Jónína Freydís
Jóhannesdóttir og Bergþóra Stef-
ánsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur áttu hugmyndina að fyrirtæk-
inu og fengu Sænes, dótturfélag
Grýtubakkahrepps, með sér í lið
við að koma þessu á koppinn.
Fyrirtækið var stofnað árið 2002
og hófst framleiðsla ári síðar,“
segir Sigurbjörn Þór Jakobsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
APÓTEK lyfjalínan saman-
stendur af mixtúrum, lausnum og
kremum og olíum sem framleiddar
eru eftir forskriftum lækna. Vör-
urnar eru allar ilm- og litarefna-
lausar. „Við höfum bætt við lín-
una gegnum árin og spönnum nú
breytt svið, allt frá hægðamixtúr-
um og sótthreinsandi efnum sem
notuð eru við skurð aðgerðir, yfir
í húðvörur fyrir börn og andlits-
línu,“ útskýrir Sigurbjörn. „Vinsæl-
ustu vörurnar okkar inn á heimil-
in eru hýdrofíl rakakrem, vase-
lín og karbamíðkrem. Barnalínan
okkar er einnig vinsæl en í henni
er barnaolía, barnakrem og barna-
púður. Þá erum við einnig í stöð-
ugri vöruþróun og nú stendur til
að bæta norskum brjóstdropum
við mixtúrulínuna okkar. Þeir hafa
ekki verið til hér á landi í mörg ár
en voru mjög vinsælir á sínum
tíma,“ útskýrir Sigurbjörn.
Hann segir að ekki ósvipaðar
vörur megi finna á markaðnum en
APÓTEK línan sé vel samkeppn-
ishæf þegar kemur að gæðum.
„APÓTEK vörurnar eru töluvert
ódýrar miðað við gæðin. Verð-
lagning á snyrti-
vörum almennt
er að stór u m
h l u t a v e g n a
markaðssetning-
ar. Hjá okkur er
lögð meiri áhersla
á gæði en á mark-
aðssetninguna og
því getum við boðið
lágt verð. Við miðum þó auðvitað
alltaf hærra og stefnum á að ná
frekari markaðshlutdeild. Mark-
aðssetning erlendis er á byrjun-
arstigi en við erum að þreifa fyrir
okkur í Færeyjum.“
Auk eigin vörulínu starfar
Ph a r m a r c t ic a s e m f r a m-
leiðsluverktaki fyrir ýmis fyrir-
tæki. Pharmarctica framleiðir
meðal annars v ítamín f yrir
lyfjafyrirtækið Icepharma.
„Við framleiðum vítamínin Bio
Mega og Ein á dag. Sú framleiðsla
er orðin umfangsmikill þáttur af
okkar vinnslu í dag og sér Icep-
harma um dreifingu á vörum
okkar í apótek um allt land.“
Nánari upplýsingar á www.
pharma.is.
Áhersla lögð á gæði vörunnar
APÓTEK er heiti íslenskrar lyfjalínu sem framleidd er í litlu bæjarfélagi fyrir norðan. Línan er ilm- og litarefnalaus og inniheldur mixtúrur, lausnir,
olíur og krem, bæði fyrir börn og fullorðna. Fyrirtækið heitir Pharmarctica og var sett á fót fyrir tíu árum.
LÖNGUNIN SEGIR SITT
Löngun í tilteknar fæðutegundir getur bent til þess að mataræðið sé ófull-
nægjandi og að líkamann vatni ákveðin vítamín og steinefni. Hér er listi af
fæðutegundum sem algengt er að fólk sækist í ef um skort er að ræða.
Hnetur: Ef þig langar oft í hnetur er líklegt að þig vanti prótín, B-vítamín
og fitu í matinn. Fólk sem er undir miklu álagi þarf meira B-vítamín en
aðrir.
Bananar: Ef þú sækir í banana getur verið að þig
vanti kalíum en í meðalstórum banana eru
555 mg af kalíum.
Ostur: Ef þú ert sólginn í ost
getur þig skort kalk og fosfór.
Þá er ráð að borða meira
spergilkál en í því er mikið af
þessum efnum en mun minna af
hitaeiningum.
Smjör: Grænmetisætur langar oft í
smjör því þær fá lítið af mettaðri fitu úr
fæðunni.
Mjólk: Ef þig langar oft í mjólk gætir þú þurft á kalki að halda. Þú gætir
líka verið að sækjast eftir amínósýrunumum tryptófan, lýsín og levsín.
Taugaveiklað fólk leitar oft eftir tryptófaninu í mjólkinni þar sem það
hefur róandi áhrif.
Epli: Langi þig oft í epli gæti þig vantað kalk,
magnesíum, fosfór og kalíum auk þess sem
epli eru góð uppspretta pektíns sem lækkar
blóðfituna. Borðir þú mikið af mettaðri fitu
gæti það útskýrt löngun þína í epli.
Kók og súkkulaði: Þessi löngun merkir
oftast sykurþrá og koffínfíkn. Drykkirnir hafa
ekkert næringargildi.
Heimild: Ný og betri bætiefnabiblía
A
Af litlum neista…
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast „prótónpumpuhemlar“ og verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans. Omeprazol
Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Frábendingar: Ofnæmi fyrir ómeprazóli eða öðru innihaldsefni lyfsins.
Ofnæmi fyrir lyfjum sem innihalda aðra prótónpumpuhemla. Ef þú tekur lyf sem inniheldur nelfinavír (við HIV sýkingu). Varúð: Ekki taka Omeprazol Actavis lengur en í 14 daga án samráðs við
lækni. Ef einkennin minnka ekki, eða ef einkennin versna, skaltu ræða við lækninn. Omeprazol Actavis getur dulið einkenni annarra sjúkdóma. Því skaltu ræða strax við lækninn ef eitthvað af
eftirfarandi kemur fyrir þig áður en þú tekur eða meðan þú tekur Omeprazol Actavis: Ef þú léttist að ástæðulausu og átt í erfiðleikum með að kyngja, færð magaverk eða meltingartruflanir, kastar
upp mat eða blóði, hefur svartar hægðir (blóðlitaðar hægðir), ert með alvarlegan eða langvarandi niðurgang (ómeprazól hefur verið tengt við lítillega aukningu á smitandi niðurgangi), hefur verið
með magasár eða gengist undir skurðaðgerð á meltingarfærum, ert á samfelldri meðferð við einkennum meltingartruflana eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, þjáist stöðugt af
meltingartruflunum eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, ert með gulu eða alvarlegan lifrarsjúkdóm, ert eldri en 55 ára með ný eða nýlega breytt einkenni. Sjúklingar skulu ekki nota ómeprazól í
fyrirbyggjandi tilgangi. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga og brjóstagjöf: Segðu lækninum frá því ef þú ert barnshafandi eða ert að reyna að verða barnshafandi áður en þú tekur
Omeprazol Actavis. Læknirinn mun ákveða hvort óhætt sé fyrir þig að nota Omeprazol Actavis ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti. Skömmtun: Sýruþolnu hylkin má taka fyrir máltíð
(t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Mælt er með að hylkin séu tekin inn að morgni dags. Venjulegur skammtur er eitt 20 mg hylki eða tvö 10 mg hylki einu sinni á sólarhring í 14
daga. Hafðu samband við lækninn ef einkennin hafa ekki horfið á þessum tíma. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2-3 daga samfellt
áður en einkennin réna. Hylkin á að gleypa með glasi af vökva. Ekki má tyggja eða mylja hylkin. Aukaverkanir: Hafðu samband við lækni
strax ef eftirfarandi einkenni koma fram: Öndun verður skyndilega hvæsandi, þroti í vörum, tungu og hálsi eða líkama, útbrot, yfirlið eða
kyngingarörðugleikar (alvarleg ofnæmisviðbrögð). Roði í húð með blöðrum og húðflögnun. Einnig getur verið um að ræða verulega
blöðrumyndun og blæðingar í vörum, augum, munni, nefi og kynfærum. Þetta getur verið „Stevens-Johnsons heilkenni“ eða „eitrunardrep
í húðþekju“. Gul húð, dökkt þvag og þreyta sem geta verið einkenni lifrarsjúkdóms. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur. Áhrif á maga eða
þarma (niðurgangur, magaverkur, hægðatregða, vindgangur). Ógleði eða uppköst. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið
vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2011.
APÓTEK
Lyfjalínan
samanstendur
af mixtúrum,
lausnum og
kremum og
olíum sem
framleidd eru
eftir forskriftum
lækna.
Lína fyrir konur.Lína fyrir börn.