Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 21
PRENTSMIÐJUR
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012 Kynningarblað Tækninýjungar, fjölbreytni, umhverfismál, sagnfræði og fróðleikur.
Það sem einkennir Odda umfram aðrar prentsmiðj-ur á Íslandi er að við erum
með afar breiða vörulínu og stór-
an kúnnahóp með mismunandi
þarfir,“ segir Jón Ómar Erlingsson,
framkvæmdastjóri prentsmiðj-
unnar Odda ehf. sem er stærsta og
fjölbreyttasta prentsmiðja lands-
ins þar sem starfa um 240 manns.
Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi
„Við þurfum í raun að geta gert
allt enda verkefnin af mismun-
andi stærðum og gerðum,“ segir
Jón Ómar en Oddi afgreiðir um
fimmtán þúsund mismunandi
verkefni á ári eða um fimmtíu á
dag. „Á sama degi getum við verið
að prenta hundrað nafnspjöld og
afgreiða hundrað þúsund pappa-
kassa,“ lýsir hann.
Hjá Odda er boðið upp á allt
það sem viðkemur prentun. „Enda
þjónustum við íslenska markað-
inn eins og hann leggur sig,“ segir
Jón Ómar og bendir á að vel hafi
tekist að aðlaga prentsmiðjuna að
fjölbreyttum verkefnum til að geta
sem best sinnt þörfum breiðrar
flóru viðskiptavina.
Sem dæmi um verkefni Odda
má nefna prentun á bókum en
Oddi er stærsti bókaframleið-
andi á Íslandi auk þess sem fyr-
irtækið prentar bækur fyrir er-
lendan markað. „Þá framleiðum
við mjög mikið af umbúðum og
erum eini framleiðandinn á land-
inu á umbúðum úr bylgjupappa og
stærsti framleiðandinn í öðrum
umbúðum.“
Oddi prentar einnig bæklinga,
sk ý rslur og t ímarit á borð
við Vikuna, Séð og heyrt og
Gestgjafann. Þá er mikið að gera
í rekstrarprentverki við að prenta
umslög, reikningseyðublöð, nafn-
spjöld og þess háttar.
Stafræn prenttækni er framtíðin
Síðustu þrjú árin hefur Oddi
rekið Myndavöruvef þar sem
einstaklingar geta búið til eigin
ljósmyndabækur, kort, daga-
töl og ýmislegt f leira. „Mynda-
vöruvefurinn er dæmi um hvert
prentbransinn er að þróast,“ segir
Jón Ómar og bendir á að stafræna
tæknin sé alltaf að koma sterk-
ar inn. „Stafræna tæknin kom til
fyrir nokkrum árum en er allt-
af að þróast og taka yfir stærri og
stærri hluta af þessu hefðbundna
offsetprenti. Upphaf lega voru
minni gæði í stafrænni tækni en
sá munur er nú úr sögunni. Nú
ræðst valið aðallega af hagkvæm-
ustu leiðinni,“ segir Jón Ómar en
stafræna prentunin þykir yfirleitt
hagkvæmari í smáum upplögum.
Þjónustan mikilvæg
Þjónustan er forsvarsmönnum
Odda afar mikilvæg líkt og þjón-
ustuloforð Odda á vefsíðunni
www.oddi.is gefa til kynna. Þar er
lögð áhersla á að öllum viðskipta-
vinum, stórum sem smáum, sé
veitt full athygli, að starfsmenn
komi hreint fram, gefi raunhæf
loforð og sýni frumkvæði. Þá er
stefnan að svara öllum fyrirspurn-
um strax og leysa öll vandamál
farsællega ef þau koma upp.
Oddi þjónustar allan
íslenska prentmarkaðinn
Prentsmiðjan Oddi byrjaði smátt árið 1943 en hefur vaxið og dafnað og er í dag í hópi fullkomnustu og fjölhæfustu
prentsmiðja á Norðurlöndum. Markmið fyrirtækisins er að veita góða og hraða þjónustu í miklum gæðum.
„Við þurfum í raun að geta gert allt enda verkefnin af mismunandi stærðum og gerðum,“ segir Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri
Odda. MYND/GVA
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
Prentsmiðjan Oddi hefur verið
leiðandi í umhverfismálum hér á
landi í prentiðnaði. Umhverfismál
hafa ávallt skipað stóran sess
í rekstri fyrirtækisins og hafa
eigendur Odda ávallt leitast við
að fara vel með hráefni og draga
úr umhverfisáhrifum rekstrarins á
skilvirkan hátt.
Öll framleiðsla Odda er Svans-
vottuð, bæði almenn prentun og
umbúðir. Oddi er fyrsta prent-
smiðjan í heim-
inum sem fær
Svansvottun
á sína fram-
leiðslu þar
sem bylgju-
framleiðsla er
innifalin. Svanurinn
vottar að umhverfisáhrif fram-
leiðslunnar eru í lágmarki og að
framleiðslan uppfylli kröfur um
umhverfi, heilnæmi, gæði og
virkni.
UMBÚÐAHÖNNUN 2012
Prentsmiðjan Oddi og Félag
íslenskra teiknara (FÍT) standa
að opinni hönnunarsamkeppni
umbúða úr kartoni og/eða
bylgjupappír. Keppnin er öllum
opin án endurgjalds en tillögur
skulu miða við það hráefni sem
keppnishaldarar leggja til en þátt-
takendum er frjálst að velja sér
viðfangsefni. Lokaskil á tillögum
er 23. febrúar en úrslitakvöldið
verður haldið 1. mars í Norræna
húsinu. Nánari upplýsingar á
www.oddi.is
500 bæklingar með nýju sniði.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
1.000 nafnspjöld
í startpakka til
að sigra heiminn.
María Gyoriova
Jöklaleiðsögumaður
Anton Sigurðsson
Tölvuverkfræðingur
Sigurður Kristjánsson
Verksmiðjustjóri
Oddi fyrir þig,
þegar hentar,
eins og þér
hentar.
Prentun
frá A til Ö.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
1.500 umhverfisvottaðir
bæklingar um nokkra
sleipustu jökla landsins.
19.725 pakkar fyrir
bragðgóða upplyftingu.