Fréttablaðið - 15.02.2012, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGPrentsmiðjur MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20122
Ísafoldarprentsmiðja er elsta starf-
andi prentsmiðja landsins, stofn-
uð árið 1877 og heldur því upp á
135 ára afmæli sitt 16. júní næst-
komandi. Á síðustu árum hefur
prentsmiðjan vaxið jafnt og þétt,
enda mikil áhersla verið lögð á að
auka vöruframboðið, sem hefur
leitt til mikillar fjölgunar við-
skiptavina. „Með samstilltu átaki
starfsmanna hefur tekist að láta
félagið vaxa í kreppunni og er Ísa-
fold í dag önnur stærsta prent-
smiðja landsins. Síðustu þrjú ár
hefur velta félagsins aukist um
20% og var á síðasta ári 1,5 millj-
arðar. Ísafoldarprentsmiðja stend-
ur því traustum fótum til að tak-
ast á við þá krefjandi og skemmti-
legu tíma sem eru framundan.
Ætlunin er að að halda áfram að
vaxa og vinna með viðskiptavin-
um við að bæta þjónustuna enn
og finna hagkvæmustu lausnirn-
ar,“ segir sölu og markaðsstjórinn
Haraldur Jónsson.
Umhverfismál – Svansvottun
Umhverfismál hafa ávallt skip-
að stóran sess hjá Ísafoldarprent-
smiðju.
Árið 2010 sótti Ísafoldarprent-
smiðja um vottun Norræna um-
hverfismerkisins og fékk Svans-
vottun í nóvember það sama ár.
„Það kom skemmtilega á óvart hve
litlu þurfti að breyta til að hljóta
þessa vottun. Sérstaklega í ljósi
þess að prentsmiðjur sem prenta
dagblöð þurfa að uppfylla mun
strangari kröfur en aðrar prent-
smiðjur,“ segir Haraldur en Ísa-
foldarprentsmiðja er eina dag-
blaðaprentsmiðjan hér á landi sem
er með Svansvottun.
Hæsta einkunn
í útboði fyrir rammasamning
Ísafoldarprentsmiðja tók þátt í
rammasamningsútboði Ríkis-
kaupa fyrir öll ríkisfyrirtæki og
stofnanir haustið 2010. Bjóðend-
ur voru metnir bæði út frá verðum
og umhverfisþáttum. Niðurstað-
an varð sú að Ísafoldarprentsmiðja
var eini bjóðandinn sem fékk
hæstu einkunn, sem var 100. Hún
var með hagkvæmustu verðin,
ásamt því að uppfylla allar kröf-
ur sem gerðar voru um umhverf-
isskilyrði. „Með aukinni áherslu
á umhverfismál hjá opinberum
aðilum vonumst við til að æ fleiri
stofnanir og fyrirtæki sjái sér hag í
að eiga viðskipti við fyrirtæki sem
ekki eingöngu býður hagkvæmt
verð, heldur er einnig umhugað
um umhverfið“
Öll almenn prentun
fyrir fyrirtæki
Prentun á nafnspjöldum, umslög-
um, bréfsefnum, greiðsluseðlum,
reikningum, bæklingum, kynn-
ingarmöppum og öllu öðru sem
þörf er á við daglegan rekstur hjá
litlum og stórum fyrirtækjum, er
sá hluti sem hefur vaxið hvað mest
hjá Ísafoldarprentsmiðju síðustu
ár. Prentsmiðjan hefur skapað sér
gott orð fyrir gæði, góða þjónustu
og hagkvæmar lausnir.
Fjölpóstur
Hjá Ísafoldarprentsmiðju er prent-
að gríðarlegt magn af bækling-
um sem dreift er inn á öll heimili
á landinu. Í hverri viku eru þetta
mörg hundruð þúsund bæklingar
frá ýmsum fyrirtækjum. Á tiltekn-
um tímabilum, svo sem í kringum
jól og páska, fer þessi fjöldi vel yfir
milljón eintök á viku.
Dagblaðaprentun – Fréttablaðið
Fréttablaðið er stærsta einstaka
prentverkefni prentsmiðjunn-
ar. „Fáir gera sér grein fyrir um-
fanginu sem fylgir því að prenta
dagblað sem fer inn á 90.000 heim-
ili sex daga vikunnar. Á síðasta ári
voru prentuð um það bil 27 milj-
ón eintök af Fréttablaðinu. Einn-
ig prentar Ísafoldarprentsmiðja
mörg önnur verkefni á dagblaða-
pappír,“ upplýsir Haraldur.
Bókaprentun
Fyrir þremur árum hófst þróunar-
vinna hjá Ísafoldarprentsmiðju í
þeim tilgangi að geta búið til há-
gæða bókakiljur á hagkvæmu
verði. „Sú vinna hefur skilað sér ,
því í dag er prentsmiðjan leiðandi
í kiljuframleiðslu á Íslandi, ásamt
því að framleiða kiljur fyrir er-
lendan markað. Ef þú hefur lesið
kilju nýlega, þá eru miklar líkur
á því að hún hafi verið framleidd
af okkur. Sem dæmi má nefna að
metsölubókin Gamlinginn var
prentaður hjá Ísafoldarprent-
smiðju í kiljuformi í hátt í 20.000
eintökum,“ segir Haraldur.
Útflutningur
Fyrir rúmu ári síðan var sú
ákvörðun tekin hjá Ísafoldar-
prentsmiðju að skoða möguleika
á að prenta fyrir erlenda mark-
aði. „Í þessu augnamiði vorum
við meðal annars með kynninga-
stand á bókamessunni í Frank-
furt. Í dag hefur prentsmiðjan flutt
út kiljur og bæklinga í gámavís, til
nokkurra landa, þar á meðal er
vikulegt tímarit sem gefið er út á
Grænlandi.“
Nýjungar fyrir
einstaklinga og fjölskyldur
Undanfarið ár hefur verið unnið
að nýjum vörum fyrir einstak-
linga. „Það má segja að Ísfoldar-
prentsmiðja fari með því í sam-
keppni við bleksprautuprentarana
sem finna má á flestum heimilum
og geta reynst æði kostnaðarsam-
ir vegna kaupa á bleki og pappír. Á
næstu vikum fer í loftið nýr vefur
fyrir þessar vörur. Þar verður hægt
að velja vörur sem ætlunin er að
búa til, velja mismunandi form,
setja inn eigin myndir og texta
og hanna þannig sitt eigið prent-
verk. Hægt verður að búa til boðs-
kort fyrir barnaafmælið, dagatöl,
myndabækur, plaköt til að skreyta
herbergið, tækifæriskort og margt
fleira skemmtilegt,“ segir Harald-
ur en nýjungarnar verða kynntar
betur þegar þar að kemur.
Starfsfólk Ísafoldarprentsmiðju
Hjá Ísafoldarprentsmiðju starf-
ar að sögn Haraldar samheldinn
hópur fólks, sem hefur mikinn
metnað til að standa sig í starfi.
Þar eru fagmenntaðir starfsmenn
í öllum deildum, sem leggja sig
fram á hverjum degi við að fram-
leiða hágæða prentverk. „Í þeim
efnahagslegu þrengingum sem
hafa gengið yfir á síðustu árum,
hefur það skipt sköpum að hafa á
að skipa öflugum hópi starfsfólks,
sem hefur verið tilbúinn að leggja
á sig mikla vinnu og fórnir til að
aðlagast breyttum aðstæðum,“
segir Haraldur. Hann segir starfs-
fólk prentsmiðjunnar hafa tekið á
sig bæði launalækkanir og skert
vinnuhlutfall í kjölfar kreppunn-
ar. „Þær aðgerðir gengu sem betur
fer til baka á nokkrum mánuðum.
Að undanförnu höfum við verið að
bæta við starfsfólki vegna aukinna
verkefna og stefnum að því að gera
það áfram. Í dag er prentsmiðjan
85% í eigu starfsmanna félagsins.“
„Við höldum því fram að Ísa-
foldarprentsmiðja hafi verið
vel geymt leyndarmál í þessum
iðnaði,“ segir Haraldur. „Fyrir
nokkrum árum vorum við ein-
göngu í stórum verkefnum eins
og að prenta Fréttablaðið, viku-
dagskrána Birtu, bæklinga fyrir
Rúmfatalagerinn, Húsasmiðj-
una, tímarit eins og Myndir mán-
aðarins og fleiri stærri verkefni. Í
dag erum við að leysa allar prent-
þarfir fyrirtækja, stofnana og ein-
taklinga. Það er ansi mikil upplif-
un fyrir viðskiptavini sem koma
til okkar og skoða prentsmiðjuna
og sjá alla þá framleiðslu sem er í
gangi hjá okkur á 7.000 fermetrum
í Suðurhrauni 1 í Garðabæ.“
Við horfum bjartsýn fram á veginn
Hjá Ísafoldarprentsmiðju er stefnt að því að árið 2012 verði besta rekstrarár félagsins síðan fyrir hrun.
Hjá Ísafoldarprentsmiðju starfar samheldinn hópur fólks. Þar eru fagmenntaðir starfsmenn í öllum deildum sem leggja sig fram við að
framleiða hágæða prentverk. MYND/GVA
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, s. 512-5432 sverrirbs@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Suðurhraun 1
Garðabæ
Sími: 59 50 300
www.isafold.is
UM
HVE
RFISMERKI
Prentgripur
141 825
VIÐ PRENTUM
Dagur leikskólans var haldinn
hátíðlegur sl. mánudag.
Af því tilefni færðu leikskóla
-
börn úr Marbakka þeim Sess
-
elju Hauksdóttur, deildarstjór
a
leikskóladeildar Kópavogsbæ
j-
ar, og Önnur Birnu Snæbjörns
-
dóttur, sviðsstjóra menntasvið
s
plakat með upplýsingum um
leikskólastarfið. Á plakatinu er
u
16 spakmæli leikskólabarna o
g
eiga leikskólabörn í Kópavog
i
hvorki fleiri né færri en tíu spak
-
mæli. Þetta er í fimmta sin
n
sem dagur leikskólans er hald
-
inn hátíðlegur en tilgangurin
n
er að auka jákvæða umræð
u
um leikskólann, vekja athygli
á
hlutverki hans og starfi leik
-
skólakennara og kynna starf
-
semina út á við. Sjá myndir fr
á
Degi leikskólans á bls. 8 og 9.
Upplag 12.500 eintök
5. tbl. 18. árg. Fimmtudagur 9. febrúar.
2012 Kemur út annan hvern fimmtudag o
g er dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrir
tæki í Kópavogi
Ó H Á ‹ F R É T T A B L A ‹ K Ó
P A V O G S B Ú A
B Æ J A R B L A Ð I Ð fi
I T T !
S: 554 4444
Mikils metið
framtak
Nýbýlavegi 10 - Kópav
ogi - S ími 554 2510
- 554 2590 - www.b
i lasprautun. is
Safnanótt á
föstudagskvöldið
Flottur árangur Blika
í frjálsum íþróttum
Dagur leikskólans
Dagur leikskólans haldinn hátíðleg
ur 6. feb. sl.
Anna Birna Snæbjörnsdóttir
og Sesselja Hauksdóttir
ásamt leikskólabörnum frá
leikskólanum Marbakka.
Öll almenn
snyrting
heitsteinanudd
og brasilískt
súkkulaðivax
Kópavogspósturinn
næst 23. febrúar
Hlýtt og kósý
hjá okkur
alla daga
-------------------------------
-----------------------
Tökum á móti hópum,
stórum sem smáum.
Kynntu þér málið
í síma 554-1070
-------------------------------
-----------------------
Opnum kl. 08:00 alla virka da
ga
Hamraborg 3
Sími 554 1070
Bæjarlind 4 Kópavogi
CM
Þingholt
Fasteignasala
Bæjarlind 4
býður öllum
Kópavogsbúum
í söluhugleiðingum
FRÍTT VERÐMAT
Þú getur pantað verðmat
á www.verdmat.is
eða síma 512 3606
VIKUDAGSKRÁIN
dagskrá vikunnar 15.-21
. feb. 2012 7. tbl. 2. árg.
Sjónvarps- og viðburð
ardagskrá í Kópavogi,
Garðabæ, Álftanesi o
g Hafnarfirði
Miðvikudagur 15. feb. 2012
Bæjarlind 4 Kópavogi
CM
Þingholt
Fasteignasala
býður öllum bæjarbúum
í söluhugleiðingum
FRÍTT VERÐMAT
Þú getur pantað verðmat
á www.verdmat.is
eða síma 512 3606
Smurolíur
SMUR
ÞJÓNUSTA
BREMSU- OG
SMÁVIÐGERÐIR
568 2020 SÍMI
HJALLAHRAUNI 4
HFJ
RAUÐHELLU 11 HF
J
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Lau frá kl. 11-17
Sun frá kl. 13-16
Pöntunarsími
512 6800
eða dorma.is
Kr. 25.900,-
Kr. 139.900,-
Þetta er ekki útsala,
heldur Dormaverð.
Gerðu samanburð !
Kr. 78.900,-
Kr. 159.900,-
NÝTT!
Shape
by Nature bedding
10. FEB. – 16. FEB.
6
.
tb
l.
2
0
1
2 Gullkistan
FRAKKASTÍG 10 – SÍMI 551 3160
thjodbuningasilfur.is