Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 23
KYNNING − AUGLÝSING Prentsmiðjur15. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR 3
Fyrirtækið Vörumerking ehf. að Bæjarhrauni 24 í Hafnar-firði leggur áherslu á vöru-
og umbúðamerkingar með prent-
un á límmiða, pappír, plastefni og
álfólíu. Karl M. Karlsson, stjórnar-
formaður f yrirtækisins, segir
áherslu lagða á vandaða vöru og
góða þjónustu. „Starfsemin er í sí-
felldri þróun og starfsmenn vak-
andi fyrir nýjungum sem tengjast
umbúðum og merkingum. Það er
auðvitað í takt við prenttækni sem
tekur stöðugum framförum auk
þess sem enn eru að koma fram á
sjónarsviðið nýjar gerðir hráefn-
is fyrir sérhæfða notkun á þessu
sviði. Okkar hlutverk er að skapa úr
þessu virðisauka fyrir viðskiptavini
okkar,“ upplýsir Karl.
Vörumerking ehf. hóf starfsemi
sína undir nafninu Karl M. Karlsson
& Co árið 1962 í bílskúr við heim-
ili Karls Jónassonar við Melgerði
í Kópavogi. Stofnandi félagsins
var Karl Jónasson, sem rak félagið
ásamt syni sínum Karli M. Karls-
syni allar götur síðan eða þar til
hann lét af störfum árið 2000. Í dag
er félagið í rúmlega 2.600 fermetra
húsnæði og hjá því starfa 40 manns.
Karl M. Karlsson er stjórnarformað-
ur félagsins en framkvæmdastjóri
er Sigurður Grendal Magnússon.
„Fyrstu árin snerist framleiðsla
fyrirtækisins um áprentuð lím-
bönd en fljótlega var hafin fram-
leiðsla á límmerkimiðum, sem var
nýlunda á þeim tíma,“ segir Karl.
Límmiðar hvers konar skipa enn
stóran sess í framleiðslu. Vöru-
merkingar eru aðrar meginstoðir
framleiðslunnar, það eru merking-
ar á drykkjarvörum, framleiðsla á
viðskiptakortum hvers konar (inn-
eignarkort, bensínkort og svo fram-
vegis) og merkingar á umbúðum,
sér í lagi áprentaðar álfilmur fyrir
lyfjaiðnað og áprentuð állok fyrir
mjólkuriðnaðinn og f leira. Karl
segir að viðskiptavinir Vörumerk-
ingar séu þannig í f lestum grein-
um atvinnulífsins, svo sem fyrir-
tæki í matvælaframleiðslu, lyfja-
framleiðslu og lyfsölu, heildsölu,
smásölu, sjávarútvegi, almennum
iðnaði, þjónustu, bankastarfsemi,
fjarskipta- og upplýsingatækni.
„Saga Vörumerkingar er saga
fyrirtækis sem ávallt hefur þrifist
á nýsköpun og vöruþróun og hefur
verið brautryðjandi á markaði allt
frá stofnun. Óhætt er að fullyrða
að styrkleikar fyrirtækisins sem og
sérstaða á markaði helgist mjög af
þessu. Styrkleikar fyrirtækisins fel-
ast í langri sögu og góðu orðspori,
mikilli þekkingu og reynslu starfs-
manna, öflugri vöruþróun og ný-
sköpun og fjölbreyttum tækjabún-
aði með tilheyrandi sveigjanleika.
Sérstaða Vörumerkingar byggir á
þessum styrkleikum og felst í þeim
gæðum á vörum og þjónustu sem
við veitum og svo þeirri fjölbreyttu
þekkingu sem við búum yfir og
þeim vélbúnaði sem við höfum
yfir að ráða, sem gerir okkur kleift
að mæta ólíkum og síbreytileg-
um þörfum viðskiptavina okkar og
veita þeim fullnaðarþjónustu.“
Frekari upplýsingar um vörur
og þjónustu Vörumerkingar má
nálgast á heimasíðu fyrirtækisins
www.vorumerking.is. Fyrirspurnir
í tölvupósti má senda á pantanir@
vorumerking.is eða hringja í síma
414-2500.
Saga Vörumerkingar er saga fyrirtækis sem
ávallt hefur þrifist á nýsköpun og vöruþróun
og hefur verið brautryðjandi á markaði allt frá
stofnun.
Leggjum megináherslu á gæði
Vönduð vara, fyrsta flokks þjónusta og skjótur afhendingartími eru aðalsmerki fyrirtækisins Vörumerking ehf. að Bæjarhrauni 24 í Hafnarfirði.
Starfsemi fyrirtækisins tekur mið af því að nýta stöðugar framfarir í prenttækni og nýjar gerðir hráefnis til að skapa virðisauka fyrir viðskiptavini sína.
Starfsmenn eru vakandi fyrir nýjungum sem tengjast umbúðum og merkingum.
Styrkleikar fyrirtækisins felast meðal annars í fjölbreyttum tækjabúnaði með tilheyrandi
sveigjanleika. MYND/STEFÁN