Fréttablaðið - 15.02.2012, Page 24
KYNNING − AUGLÝSINGPrentsmiðjur MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20124
PRENTAÐ Í VIÐEY
Prentsmiðja, Viðeyjarprent, var
starfrækt í Viðey í aldarfjórðung,
eða á árunum 1819 til 1844.
Klausturpósturinn var meðal
þess fyrsta sem hún prentaði,
en hann innihélt innlent og
erlent frétta- og fræðsluefni.
Hann var fyrsta mánaðarritið
sem kom út á íslensku og var
fyrst prentaður á Beitistöðum
1818. Magnús Stephensen
dómstjóri gaf hann út. Viðeyjar-
prent prentaði líka mánaðarritið
Sunnanpóstinn árið 1835-36 og
5. árgang af ársritinu Fjölni árið
1839-1840.
Prentvélar leika stærra hlut-verk í kvikmyndum en fólk almennt gerir sér grein fyrir.
Vestrarnir riðu á vaðið og ótölu-
legur fjöldi þeirra inniheldur at-
riði þar sem reynt er að koma rit-
stjóra dagblaðs fyrir kattarnef og
eyðileggja prentvélarnar. Sjón-
varpsþáttaraðir héldu sig við þessa
hefð og meðal kvikmynda og þátta
fyrri tíma þar sem prentsmiðj-
ur leika stórt hlutverk eru: Bon-
anza, Liberty Valance, Have Gun
Will Travel, Cimarron, Penny Sere-
nade, Harry & Walter Go To New
York, The Rockford Files, og The
Twilight Zone.
Einna lengst gengur þó kvik-
myndin The Paper frá 1994 þar
sem stór hluti myndarinnar á sér
stað í prentsmiðju dagblaðsins
sem titillinn vísar til. Glenn Close
og Michael Keaton berjast bók-
staflega ofan á prentvélinni þegar
hann, sem hinn samviskusami,
sannleikselskandi blaðamaður
sem við þekkjum úr fjölda kvik-
mynda, reynir að stöðva prentun
blaðsins sem hefur ranga frétt á
forsíðunni.
Annað minnisstætt prentvélar-
atriði er í kvikmyndinni Catch Me
If You Can frá 2003 þar sem Leon-
ardo DiCaprio og Tom Hanks eru í
stjörnuhlutverkum. Þar sést falsar-
inn prenta sín eigin ávísanaeyðu-
blöð í stærðarinnar prentvél. Þeir
sem þekkja prentvélar hafa reynd-
ar bent á að það sé ekki mögu-
leiki að blöðin þeytist úr slíkri vél
eins og sýnt er í kvikmyndinni en
Hollywood hefur aldrei látið raun-
veruleikann standa í vegi fyrir
áhrifamikilli kvikmyndatöku.
Nýjasta myndin þar sem prent-
vélar eru notaðar á áhrifamikinn
hátt er Inception og aftur er það
DiCaprio sem er í stjörnuhlutverk-
inu auk prentvélarinnar. Spurning
hvort hann sé farinn að setja það í
samninga sína að fá að leika á móti
prentvél.
Prentvélarnar skyggja
stundum á stjörnurnar
Prentvélar eru oft notaðar á áhrifamikinn hátt í kvikmyndum. Oftast tengist notkun þeirra prentun dagblaða sem þarf
að stöðva útgáfu á, en á seinni árum hafa þær þó haft víðtækari hlutverk í kvikmyndum frá Hollywood.
Michael Keaton. Glenn Close. Leonardo DiCaprio.
Tom
Hanks.