Fréttablaðið - 15.02.2012, Side 25
15. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR
Leitaðu alltaf tilboða hjá Litróf þegar þig vantar
vandaða prentun á hagstæðum kjörum.
Það kostar ekkert en gæti margborgað sig.
HRATT OG
ÖRUGGLEGA
– litrof.is –
Í tilefni af nýrri þjónustu
bjóðum við nafnspjöld á
m/vsk1.990 kr.
150 stk., prentun öðru megin, 4 litir, 300 g silk.
Tilboðið gildir til 1. mars 2012.
Við bættum við okkur nýrri stafrænni prentvél fyrir áramótin og erum því
að stíga skrefið inn í stafræna
prentheiminn, sem við höfum
ek ki t i lheyrt áður að neinu
gagni. Ástæðan var að okkur
fannst gæði slíkra véla ekki vera
nægilega góð. Nú eru hins vegar
komnar vélar á markaðinn sem
ná offsetgæðum, eða því sem
næst,“ segir Konráð Ingi Jónsson,
framkvæmdastjóri prentsmiðj-
unnar Litrófs að Vatnagörðum
14 í Reykjavík.
„Stafræna vélin hentar vel
í minni upplög og hraða af-
greiðslu. Nú getur til dæmis við-
skiptavinurinn pantað hjá okkur
100 bæklinga að morgni og feng-
ið afgreitt samdægurs og í góðum
gæðum. Í samfélaginu í dag er
þörf á slíkri þjónustu,“ bendir
Konráð á.
Að hans sögn stefnir Lit-
róf á að verða umhverfisvottuð
prentsmiðja á næstu vikum. „Við
notum jurtaliti á prentvélarn-
ar okkar og hreinsum þær með
jurtaolíu, og vottuðum hreinsi-
efnum. Í fyrra tókum við í gagn-
ið nýja plötugerðarvél fyrir off-
setvélarnar okkar þar sem engin
spilliefni koma við sögu. Platan
skrifast einungis með leisergeisla
og engrar framköllunar er þörf.
Örfáar prentsmiðjur á landinu
geta státað af því að nota engin
spilliefni í offsetplötugerð,“ segir
Konráð.
Hann segir Litróf millistóra
prentsmiðju sem hafi haldið sjó
undanfarin ár. „Fyrirtækið var
upphaf lega stofnað árið 1943,
en ég tók við því árið 1983. Við
fórum yfir í prentsmiðjurekstur
árið 1996 og síðan þá höfum við
bætt við vélakost okkar jafnt og
þétt, aukið þjónustu og tekið í
notkun nýjustu tækni.“
Hjá Litrófi starfa í dag átján
starfsmenn. Allir eru faglærðir í
sínu fagi og með mikla og góða
reynslu í prentgeiranum.
Almenn
prentun
í boði
Konráð Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri
prentsmiðjunnar Litrófs. MYND/STEFÁN
Litróf er prentsmiðja sem
getur tekið allt að sér sem
viðkemur prentun, bæði stórt
og smátt.