Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGPrentsmiðjur MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20126
Fyrsta prentsmiðja á Íslandi
var að Hólum í Hjaltadal. Jón
Matthíasson prestur flutti hana
til landsins, að því að talið er
í kringum 1530, að tilhlutan
Jóns Arasonar biskups. Óhætt
er að segja að þar hafi á sínum
tíma verið prentuð mörg önd-
vegisrit á íslensku, svo sem guð-
ræknirit, rímnakver, dómbækur,
lögbækur og fleira.
Guðbrandsbiblía er meðal
þess sem prentað var á Hólum.
Hún er fyrsta heildarútgáfa
Biblíunnar á íslensku og kennd
við Guðbrand Þorláksson bisk-
up þar. Samkvæmt titilblaði var
útgáfuár 1584. Hægt er að skoða
upprunalegt eintak af henni
á Þjóðminjasafni Íslands. Af
öðrum verkum sem voru prentuð
á Hólum má nefna frumútgáfu
Passíusálma Hallgríms Péturs-
sonar árið 1666 og Jónsbók, hin
forna lögbók Íslendinga, sem
kom í tveimur útgáfum, 1707 og
1709.
Prentsmiðjan á Hólum var
starfsrækt til 1779.
Heimildir: visindavefur.hi.is
og wikipedia.org.
Fyrsta prentsmiðjan á Íslandi
Prentsmiðja var lengi vel rekin á Hólum. MYND/GUN
Minnsta bók heims sam-kvæmt heimsmetabók Guinnes er „Teeny Ted
from Turnip Town“ sem Robert
Chaplin gaf út í apríl árið 2007.
Sagan er eftir Malcom Douglas
Chaplin og er dæmisaga um sigur
Teeny Ted í næpukeppni á land-
búnaðarsýningu. Bókin var fram-
leidd í rannsóknarstofunni Nano
Imaging við Simon Fraser-há-
skólann í Vancouver í Bandaríkj-
unum. Bókin er aðeins 0,07 mm
sinnum 0,10 mm að stærð. Staf-
irnir eru ristir með 7 nanómetra
jónageisla á 30 örsmáar töflur á
sílíkonflögu.
Bókin kostaði tíu þúsund pund
í framleiðslu og var gefin út í 100
eintökum. Ekki var talið að eftir-
spurnin yrði mjög mikil þar sem
sérstaka smásjá þarf til að lesa
bókina. Bókin hefur sitt eigið
ISBN-númer sem er ISBN-978-1-
894897-17-4
Stærsta smábókasafnið
Su m i r sa f na f r í merk j-
um, aðrir servíettum, en
indverski kennarinn Nik-
unj Vagadia safnar smáum
bókum. Hann á nú eitt stærsta
safn slíkra bóka í heimi. Þar má
finna bækur sem eru frá 19x27
mm upp í 47x55mm. Safninu er
skipt niður í 17 f lokka á borð við
ævisögur, klassísk leikrit, smá-
sögur, barnabækur, skáldverk og
trúarleg rit. Dýrasta bókin í safni
hans er 33x46 mm stór ævi-
saga Mahatma Gandhi
sem bundin er í kápu
úr 24 karata gulli.
Meðal annarra bóka
í safni Vagadia má
nefnda Harry Potter
og viskusteininn
og 258 svipað-
ar bækur sem
ha n n hef u r
sjálfur fram-
leitt. Og mark-
miðið? Það er
að dreifa boðskap
friðar, kærleika og
ástar.
Minnstu bækurnar
Bækur eru heillandi. Þær geta bæði glatt augað með fallegu prentverki en ekki síður
auðgað hugann með fróðlegu innihaldi. Þetta á bæði við stórar sem smáar bækur og
jafnvel svo örsmáar að þær sjást ekki með beru auga.
Minnsta bók í heimi samkvæmt
heimsmetabók Guinness er Teeny
Ted from Turnip Town Hún er 0,07
mm x 0,10 mm og sést ekki með
berum augum.
Meðal þess sem er að finna í smábóka-
safni Nikunjs Vagadia er minnsta ævisaga
Gandhi skreytt gulli.
Faðirvorið er prentað í þessari örsmáu bók sem er 5x5 mm og er ein minnsta bók í heimi.
NORDICPHOTOS/GETTY
ALÞJÓÐLEGT PRENTSAFN Í SUÐURKALIFORNÍU
Alþjóðlega prentsafnið er opinber stofnun
sem stofnuð var 1988 af
David Jacobson og Ernest A.
Lindner. Safnið er í smábænum
Carson í Kaliforníu um tuttugu
mínútna akstur fyrir sunnan
miðborg Los Angeles. Þar
er meðal annars að finna The
Lindner Collection of Antique
Printing Machinery sem lánað
hefur prentvélar frá ýmsum tímum
til kvikmyndavera sem gera myndir þar
sem prentiðnaðurinn kemur við sögu.
Í tilefn
i ferm
ingar
minn
ar vil
ég b
jóða þ
ér/ykk
ur
að gl
eðjas
t með
mér
og fjö
lskyld
u min
ni á þ
essum
tíma
mótu
m.
Athöf
nin fe
r fram
í Vída
línskir
kju í G
arðab
æ
sunnu
dagin
n 28.
mars
kl. 13
:00. V
eislan
verðu
r
í sal T
annlæ
knafé
lags Í
sland
s, Síðu
múla
35, R
eykja
vík kl.
17:00
.
Kær k
veðja
,
Sif Sn
orrad
óttir
Ef þið
hafið
ekki
tök á
að m
æta,
vinsa
mlega
hafið
samb
and í
síma
863 8
103 e
ða í t
ölvup
óst
gudru
n.finn
sdotti
r@gm
ail.co
m fyr
ir 14.
mars
.
Fermi
ng
hönnun • umbrot • auglýsingar • prent
Sími 568 1000 • GSM 824 6610
Grensásvegi 12A • 108 Reykjavík
frum@frum.is • www.frum.is
… góður punktur
…góður punktur
Grensásvegur 12A • Sími 568 1000 • frum.is
Fermingarboðskort • Bæklingar
Bréfsefni • Litaljósritun • Nafnspjöld • Plastkort
Prentun • Reikningar • Skýrslur • o.fl. o.fl.
hönnun • umbrot • auglýsingar • prentun
FR
U
M
ÖLL ALMENN
PRENTUN
Svo sem:
Nafnspjöld
Bréfsefni
Möppur
Umslög
Ársskýrslur
Bæklingar
Boðskort
Bækur
Bjóðum einnig:
Útlitshönnun
Heimasíðugerð
Rafbókagerð
Ljósmyndir
Ljósritun
VIÐEY
GERÐU KORTIN HEIMA
Útbúðu sjálf/ur fermingar kortið
þitt á www.katkort.is.
Einfalt og ódýrt
Göngum
hreint til verks!
#1 á Íslandi með
Svansmerkið!