Fréttablaðið - 15.02.2012, Page 30
KYNNING − AUGLÝSINGApótek MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20124
UNDRALYFIÐ KÓK
Dr. John Sith Pemberton (1831-
1888), lyfjafræðingur í Atlanta
í Georgíu, Bandaríkjunum,
framleiddi fyrst sírópið sem varð
þekkt sem Coca-Cola árið 1886.
Hann var að reyna að finna upp
vökva sem læknaði höfuðverk.
Pemberton lét blanda kolsýrðu
vatni saman við sírópið í apóteki
í nágrenninu og seldi
í glösum á 5 sent
stykkið. Uppruna-
legi drykkurinn
innihélt kókaín.
Seinna keypti
athafnamaðurinn
Asa Griggs
Chandler
(1851-1929)
framleiðslu-
réttinn að kóki
og stofnaði
Coca Cola-
fyrirtækið.
Nú er kók
ein þekktasta
vörutegund í
heiminum.
Heimild:
visindavefur.
hi.is
HEIMATILBÚINN TEPOKI
Fátt er betra fyrir sáran háls en
heitt og mjúkt te. Einfalt er að
nota kaffisíupoka úr bréfi í heima-
tilbúinn tepoka undir engifer og
dýfa í sjóðandi vatn.
Raspaðu engiferrót niður með
fínu rifjárni þar til það fyllir um
það bil teskeið. Skóflaðu rifnu
engiferrótinni í botninn á kaffi-
poka og snúðu upp á til að loka.
Dýfðu pokanum ofan í sjóðandi
vatn í bolla í um það bil tvær mín-
útur. Fjarlægðu þá pokann svo
teið verði ekki of rammt. Bættu
tveimur teskeiðum af hunangi í
bollann og kreistu nokkra dropa
úr sítrónu út í. Hrærðu þar til
hunangið leysist upp.
SAGA PENISILLÍNS
Ernest Duchesne, franskur læknanemi, uppgötvaði bakteríudrepandi eiginleika penisillíns fyrstur
manna árið 1896 þegar hann skoðaði mygluna Penicillum glaucum sem notuð er til að búa til
gorgonzola-ost. Uppgötvun hans vakti enga sérstaka athygli.
Skoska vísindamanninum Alexander Fleming er yfirleitt eignaður heiðurinn af uppgötvun penisillíns.
Hann enduruppgötvaði það árið 1928 þegar hann uppgötvaði að sveppurinn Penicillum notatum gaf
frá sér bakteríudrepandi efni. Efnið var kallað penisillín eftir sveppnum. Fleming taldi hins vegar að
áhrif pensillíns væru ekki nógu langvarandi til að lækna sjúkdóma. Hann hætti því rannsóknum á því
1931.
Ástralski meinafræðingurinn Howard Florey og þýski lífefnafræðingurinn Ernst Chain við Oxford-
háskóla fóru aftur að rannsaka áhrif penisillíns 1939. Rannsóknirnar leiddu til framleiðslu á penisillíni
og vöktu von um að hægt yrði að útrýma sjúkdómum. Fleming, Florey og Chain voru veitt Nóbels-
verðlaunin í lífeðlisfræði eða læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar árið 1945.
Heimildir: visindavefur.hi.is og wikipedia.org
Penisillín er kennt við sveppinn Penicillum notatum.
FRAMLEIDD EFTIR GÖMLUM LYFJAUPPSKRIFTUM
SEM NOTAÐAR HAFA VERIÐ Í ALDANNA RÁS
ÍSLENSK
GÆÐAVARA
FÆST Í HELSTU APÓTEKUM
PharmArctica · Grenivík · pharma.is
MUNN- OG TANNHIRÐA MIXTÚRUR KREM OLÍUR SÓTTHREINSANDI
UNDRALYFIÐ LÝSI
Lýsi er samheiti á fitu sem unnin
er úr sjávardýrum. Til eru margar
gerðir af lýsi og má til dæmis
nefna þorskalýsi, loðnulýsi,
síldarlýsi, túnfisklýsi, háfalýsi og
sardínulýsi. Þessar tegundir eru
allar unnar úr fiski, ýmist heilum
(til dæmis loðnulýsi) eða úr
einstökum líffærum (til dæmis
þorskalýsi úr þorskalifur). Meðan
enn voru stundaðar hvalveiðar
við Ísland var einnig framleitt lýsi
úr hval. Sumar þjóðir framleiða
lýsi úr selspiki.