Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2012 23
Egill Árni Pálsson tenór heldur
tónleika í Aratungu laugardag-
inn, 18. febrúar og hefjast þeir
klukkan 17. Tónleikana nefn-
ir hann Ideale – tónaperlur frá
Þýskalandi, Ítalíu og Íslandi.
„Ég hélt stóra afmælistónleika í
Aratungu þegar ég varð þrítugur
fyrir fimm árum og þetta verð-
ur svona nokkurs konar fram-
hald af þeim,“ segir Egill Árni
sem er frá Kvistholti í Laugarási
en hefur verið búsettur í Þýska-
landi síðustu fjögur ár. Þangað
fór hann til framhaldsnáms 2008
og hefur haft í ýmsu að snúast.
Meðal annars hefur hann sungið
á vinsælum tónleikum í Berlín
sem nefnast Classic Open Air og
eru haldnir á hverju ári á Gend-
armenmarkt-torginu. Síðustu tvö
ár hefur hann verið fastráðinn
við óperuna í Görlitz.
Aðallega er um sönglagatón-
leika að ræða í Aratungu að
sögn Egils Árna sem er heima
núna í feðraorlofi og langar að
gera eitthvað fyrir sveitungana.
Undirleikur á píanó er í höndum
Kristins Arnar Kristinssonar og
gestasöngvari verður Henríetta
Ósk Gunnarsdóttir. Bláskóga-
byggð og Söngskólinn í Reykjavík
styrkja tónleikana. Ekki verður
selt inn en frjáls framlög eru vel
þegin. - gun
Tónaperlur í Aratungu
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 15. febrúar 2012
➜ Tónleikar
12.15 Ljáðu okkur eyra tónleikaröðin
undir stjórn Gerrits Schuil heldur áfram.
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst
fyrir fram. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
20.00 Stórafmælistónleikar til heiðurs
John Cage verða haldnir á Kjarvals-
stöðum. Á tónleikunum verður meðal
annars að heyra verk eins og Aria,
Fontana Mix, Six Melodies for Violin
and Keyboard og Suite for Toy Piano.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
21.00 Björgvin Gíslason og félagar
halda tónleika á Café Rosenberg. Tón-
leikarnir verða endurtekning á 60 ára
afmælistónleikum sem Björgvin hélt í
Austurbæ í haust.
➜ Íþróttir
15.45 Gestir frá knattspyrnuskóla
Bobby Charlton halda opna BCSSA
æfingu í Akraneshöllinni. Gestirnir eru
þau Helena Geraldine Shiels fram-
kvæmdastjóri, Ciaran Donnelly yfir-
þjálfari, Dean M. Garrity þjálfari og Ryan
M.T.Skivington þjálfari. Nánari upp-
lýsingar á itferdir.is
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
EGILL ÁRNI „Ég syng á
þýsku af því að búseta
mín er í Þýskalandi,
ítalskan er tungumál
þessarar tónlistar í
mínum huga og svo
er það blessað móður-
málið,“ segir tenórinn.
11 leikhópar af 74 hlutu náð
fyrir augum leiklistarráðs
þegar úthlutað var styrkjum
til atvinnuleikhópa árið 2012.
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið úthutar styrkjunum að
fenginni tillögu ráðsins.
Þau verkefni sem hlutu styrki
voru, leikhópurinn Gljúfrastein-
ar Laxness eins og hann leggur
sig sem fékk eina milljón í styrk,
Leifur Þór Þorvaldsson hlaut
2,3 milljónir fyrir Stundarbrot,
Litlar og nettar fengu 2,8 millj-
ónir fyrir Dún, Va Va Voom hlaut
3 milljónir fyrir Breaking news,
Kviss búmm bang 5 milljónir
fyrir 24/7 Downtown Reykjavík,
Steinunn Ketilsdóttir hlaut 6,2
milljónir fyrir La familia, Lab
Loki 6,4 milljónir fyrir Áminnt
um sannsögli, leikhópurinn Geir-
fugl 7,7 milljónir fyrir Segðu mér
satt, Soðið svið 8,3 milljónir fyrir
Rökkurbjörg, Shalala ehf. 8,3
milljónir fyrir Inn að beini. Loks
hlaut Vesturport 6 milljón króna
starfsstyrk.
Alls komu 71,2 milljónir í hlut
atvinnuleikhópa en í fyrra var
upphæðin 58,4 milljónir. Hækk-
unin stafar af því að styrkir
til Leikfélags Reykjavíkur og
Draumasmiðjunnar – döff leik-
hús, sem Alþingi hafði áður
ákveðið, eru á þessu ári veittir
af sama fjárlagalið og ofantaldir
hópar.
Í leiklistarráði eru Guðrún Vil-
mundardóttir formaður, skipuð
án tilnefningar, Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir tilnefnd af Leiklist-
arsambandi Íslands og Hilmar
Jónsson tilnefndur af Bandalagi
sjálfstæðra leikhúsa.
11 leikhópar
styrktir
VESTURPORT Fær 6 milljón króna starfs-
styrk í ár. Myndin er úr leikriti hópsins,
Húsmóðirin.
399
FRÍTT RÚG
BRAUÐ!
FRÁ HP SE
LFOSSI
EF KEYPT
ERU 5 KG
Tilboðið gildir
aðeins í dag.
Fiskikóngurinn
Síðast seldist fiskfarsið upp!!
Við bjóðum þetta verð bara einusinni á ári
Hrikalega gott og hollt. Gott er að búa til fiskbollur og steikja
á pönnu. Fiskbollurnar má svo frysta. Þegar fiskbollurnar eru
matreiddar þá er fínt að setja þær frosnar inní ofn á 200 gráður
í 20 mínútur.
Í fiskfarsinu eru engin egg né mjólk. 100% nýr og góður fiskur
er notaður í fiskfarsið, enda getur Fiskikóngurinn ekki státað af
öðru nema góðu hráefni.
OPNUM KLUKKAN 8.00
Þetta er 20 ára gömul uppskrift, leyniuppskrift. Allir sem
kaupa 5 kg fá gefins glænýtt rúgbrauð frá HP Selfossi. ath
5 kg kosta aðeins 1.995 kr og duga fyrir 25 manns í matinn.
Sem gerir 80 kr á máltíðina. Það gerist varla ódýrara!!