Fréttablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 42
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
SVERRIR GARÐARSSON hefur náð samkomulagi við knattspyrnudeild FH um starfslok sín hjá félaginu en þetta kom fram á
stuðningsmannasíðu FH í gær. Sverrir stóð í launadeilu við knattspyrnudeildina en nú er búið að finna lausn á því máli. Leikmaður-
inn hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli í gegnum tíðina. Hann þurfti að leggja skóna á hilluna árið 2010 vegna
höfuðmeiðsla en dró þá fram ári síðar. Hann náði þó ekkert að spila í síðasta sumar vegna meiðsla.
Þetta var bara vinaleg stríðni
Eftir leikinn á mánudag fóru Lennon og Gary Martin, leikmaður ÍA, mikinn
á samskiptasíðunni Twitter þar sem þeir gerðu stólpagrín að Skúla Jóni
Friðgeirssyni, leikmanni KR.
„Númer 7 í vörninni hefur tvo gíra. Hann er svakalega fljótur,“
sagði kaldhæðinn Martin og Lennon svaraði: „Var hann ekki
valinn í landsliðið? Ég hef spilað við betri leikmenn í yngri
flokkunum.“
Þessi ummæli þeirra, og fleiri til, fóru fyrir brjóstið
á mörgum sem fannst þeir sýna Skúla Jóni algert
virðingarleysi.
„Þetta var bara saklaus og vinaleg stríðni. Það er
eðlilegt í Bretlandi að haga sér svona. Ég ætlaði
ekki að vera með neitt virðingarleysi út í Skúla.
Við vorum bara að grínast,“ sagði Lennon.
„Ef Skúli tekur þessu illa þá munum við Gary
biðja hann afsökunar en eins og ég segi þá var
þetta bara grín.“
KR og Fram mætast næst þann 23. febrúar í Lengju-
bikarnum. Er þegar byrjað að tala um íslenska handa-
bandaspennu í anda enska boltans.
„Það verður bara skemmtilegur leikur. Ég hef ekki trú á
öðru en að við Skúli heilsumst. Þetta var saklaust hjá mér.
Við erum vanir að kynda hvor annan heima hjá mér og
kannski vantar meiri slíkan húmor á Íslandi.“
FÓTBOLTI Hinn 24 ára gamli Skoti,
Steven Lennon, átti stórbrotinn
leik fyrir Fram gegn KR í úrslita-
leik Reykjavíkurmótsins á mánu-
dag. Fram vann leikinn 5-0 og
skoraði Lennon öll mörk leiksins.
Mögnuð frammistaða.
Framherjinn skæði er greini-
lega í hörkugóðu formi og heldur
áfram þar sem frá var horfið síð-
asta sumar. Lennon var nefnilega í
lykilhlutverki í „flóttanum mikla“
hjá Fram síðasta sumar er liðið
bjargaði sér frá falli í Pepsi-deild-
inni með ævintýralegum enda-
spretti. Lennon skoraði fimm mörk
í tólf leikjum með Fram á síðasta
tímabili og mörkin afar mikilvæg.
„Það er alltaf gaman að vinna
titla. Ég var kannski að gera mér
vonir um að skora eitt til tvö mörk
í leiknum en ég sá það ekki alveg
fyrir að ég myndi skora fimm
mörk. Það var afar ánægjulegur
bónus sem og að vinna stórt. Allt
liðið stóð sig gríðarlega vel og við
erum sáttir.“
Framherjinn smái en knái virð-
ist kunna vel við sig því er hann
lék síðast bikarúrslitaleik, með
unglingaliði Rangers gegn Celtic
árið 2007, skoraði hann þrennu í
5-0 sigri Rangers.
Lennon er a l inn upp í
knattspyrnu akademíu skoska
stórliðsins Glasgow Rangers. Byrj-
aði sem miðjumaður en var síðar
færður í framlínuna. Hann var
afar duglegur að skora fyrir ung-
lingalið félagsins og var svo orð-
inn fastamaður í varaliði félagsins.
Hann spilaði sinn fyrsta leik
með aðalliði Rangers í lok ársins
2006 og ári síðar skrifaði hann
undir samning við Rangers til
ársins 2010.
Lennon náði ekki að brjóta sér
leið inn í aðallið Rangers og var
því lánaður til Partick Thistle
og síðan Lincoln City. Lincoln
vildi skrifa undir lengri samn-
ing við Lennon en ekkert varð af
því þar sem leikmaðurinn sagð-
ist ekki geta fundið stað til þess
að búa. Á endanum dró Lincoln
samningstilboðið til baka.
Framherjinn var að lokum leyst-
ur undan samningi við Rangers.
Hann fór þá til írska liðsins Dun-
dalk en fótbrotnaði eftir mánuð
hjá félaginu og náði ekki að sýna
sig þar.
Eftir það lá leiðin til Newport
County. Hann spilaði með liðinu í
nokkra mánuði en vildi ekki fram-
lengja við þá í maí á síðasta ári.
Hann var því í leit að félagi er
hann kom til Fram í júlí síðasta
sumar.
„Ég er ekkert að fara fram úr
sjálfum mér og veit að það er enn
undirbúningstímabil. Ég er með
tveggja ára samning við Fram og
er ekki að hugsa um neitt annað
en að standa mig vel með liðinu
í sumar,“ sagði Lennon en heyri
mátti áhyggjuraddir hjá einhverj-
um stuðningsmönnum félagsins
sem óttuðust að hann færi fyrr
frekar en seinna ef hann ætlaði að
spila svona áfram.
Lennon kom til móts við Fram-
liðið upp úr áramótum og allir
útlendingarnir byrjuðu þá að æfa
með Fram-liðinu. Er það augljós-
lega mikill styrkur fyrir liðið
að geta spilað sig saman í fjóra
mánuði.
„Liðið lítur vel út hjá okkur. Í lok
síðasta tímabils vorum við komnir
á fína siglingu. Sýndum og sönnuð-
um þá að við erum með gott lið og
höfum haldið áfram á sömu braut.
Vonandi verður framhald á þess-
ari spilamennsku,“ sagði Lennon
en Fram var á botni deildarinn-
ar með þrjú stig er hann kom til
þeirra í fyrra.
Hann vonast til þess að Fram-
arar bíti frá sér í efri hlutanum í
sumar.
„Okkar markmið verður líklega
að ná sæti í Evrópukeppninni og
allt meira en það verður bónus.
Við teljum okkur geta staðið undir
því,“ sagði Lennon sem hefur ekki
sett sér nein markmið varðandi
markaskorun en hann ætlar að
koma grimmur inn í sumarið til
þess að opna dyr fyrir framtíðina.
„Auðvitað vil ég spila í stærri
deild en það gerist ekki nema ég
standi mig vel með Fram. Það eina
sem ég er því að hugsa um núna er
að standa mig í Pepsi-deildinni.“
henry@frettabladid.is
Stefnum á Evrópusæti í sumar
Framherjinn Steven Lennon segir að Fram-liðið ætli ekki að vera í neinni fallbaráttu í sumar. Hann skoraði
fimm mörk í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins gegn KR. Lennon er með tveggja ára samning við Fram og
ætlar að sýna sig og sanna í sumar svo fleiri möguleikar opnist varðandi framtíðina hjá honum.
SJÓÐHEITUR Lennon sýndi síðasta sumar að hann er skeinuhættur framherji og er
líklegur til þess að raða inn mörkum fyrir Fram í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Kvennalið KR verður
án tveggja lykilmanna á næst-
unni en liðið stendur í harðri bar-
áttu um sæti í úrslitakeppninni.
Varafyrirliðinn Helga Einars-
dóttir verður ekkert meira með
á tímabilinu vegna meiðsla í baki
og Bryndís Guðmundsdóttir miss-
ir af næstu þremur til fjórum
vikum.
Meiðsli Bryndísar voru samt
ekki eins alvarleg og óttast var.
Hún meiddist á sama hné og hún
sleit krossband fyrir nokkrum
árum en fékk þær jákvæðu
fréttir í gær að krossbandið væri
heilt.
„Ég verð ekki með næstu þrjár
til fjórar vikurnar. Það var mik-
ill léttir að krossbandið er í lagi.
Þetta er auðvitað pirrandi en
manni finnst þessi meiðsli ekki
vera neitt miðað við hitt. Ég varð
því mjög fegin,“ sagði Bryndís og
bætti við: „Ég má bara hjóla og
synda næstu vikurnar.“
„Helga er líka alveg frá en það
kom í ljós í dag að hún verður
ekki meira með á tímabilinu,“
sagði Bryndís um varafyrirliðann
Helgu Einarsdóttur.
„Það vantar tvo stóra hlekki í
liðið núna þannig að nú er spurn-
ing hvað verður gert. Ef við
ætlum okkur í fyrsta lagi að kom-
ast í úrslitakeppnina verða menn
eins og Böðvar að fara að skoða
eitthvað fyrir okkur,“ sagði Bryn-
dís og beindi orðum sínum til
Böðvars Guðjónssonar, formanns
körfuknattleiksdeildar KR. KR
er eina liðið í deildinni sem hefur
bara einn erlendan leikmann. - óój
Meiðsli í kvennaliði KR:
Bryndís slapp en
Helga er úr leik
BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Kemur inn
á ný eftir 3 til 4 vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Arsenal heldur uppi
heiðri ensku úrvalsdeildarinn-
ar í fótbolta en Lundúnaliðið er
eina enska liðið sem komst upp
úr riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu í fótbolta. Arsenal fékk
án efa einn erfiðasta mótherj-
ann sem hugsast getur í 16-liða
úrslitum. Ítalska meistaraliðið
AC Milan er mótherji Arsenal og
fyrri leikurinn fer fram á hinum
eina sanna leikvangi San Síró í
Mílanó.
„Það er mín tilfinning að það
eigi magnaðir hlutir eftir að ger-
ast á San Síró. Þetta er líklega síð-
asti leikur Thierrys Henry á ferl-
inum með Arsenal og það er bara
skrifað í skýin að hann á eftir
gera eitthvað stórkostlegt,“ segir
Pétur Marteinsson um viðureign
AC Milan og Arsenal. Pétur er í
sérfræðingateymi sem fjallar um
Meistaradeildina á Stöð 2 sport
en tveir leikir fara fram í dag og
kvöld. „Ítalska meistaraliðið AC
Milan er að mínu mati hálfgert
„vélmennalið“. Það er skipað iðn-
aðarmönnum en það er ekki mikið
um listamenn í þessu liði. Leik-
ur liðsins á það til að vera jafnvel
„leiðinlegur“, sagði Pétur en hann
á samt von á að sóknarleikurinn
verði ofarlega á forgangslistanum
hjá báðum þjálfurum.
„AC Milan verður að skora á
heimavelli til þess að eiga séns
og báðir þjálfararnir hafa sagt
að þeir ætli að leggja áherslu á
sóknarleikinn. Arsenal mun skora
mark og jafnvel mörk eftir hraða-
upphlaup.“
Pétur bendir knattspyrnu-
áhugamönnum á að fylgjast vel
með sænska framherjanum Zlat-
an Ibrahimovich í liði AC Milan.
„Það hefur fylgt Zlatan að hann
hefur ekki náð sér á strik gegn
enskum liðum. Þetta vita Eng-
lendingar og þeir eru duglegir að
láta hann heyra það. Zlatan hefur
ekki náð að sýna styrk sinn í
Evrópukeppninni. Það verða allra
augu á Zlatan og Henry í þessum
leik. Robert Van Persie getur
líka breytt gangi leiksins með
snilli sinni – hann er mikilvæg-
asti leikmaður Arsenal,“ sagði
Pétur. Leikurinn hefst kl. 19.45
í kvöld og upphitun fyrir leik-
inn hefst kl. 19.00 á Stöð 2 sport.
Hin viðureign kvöldsins er leikur
Zenit gegn Benfica frá Portúgal.
Leikurinn fer fram í St. Péturs-
borg í Rússlandi og hefst hann kl.
16.55. - seth
Pétur Marteinsson spáir í spilin fyrir leik AC Milan gegn Arsenal í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar:
Henry gerir eitthvað stórkostlegt í kvöld
THIERRY HENRY Skoraði sigurmark Arsenal í síðasta leik. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Einar Jónsson, þjálfari
Fram, hefur sent frá sér opinber-
lega afsökunarbeiðni á ummæl-
um sínum eftir jafntefli Fram
á móti Aftureldingu í N1 deild
karla í síðustu viku.
„Undirritaður vill hér með
opinberlega biðjast afsökunar á
þeim orðum sem féllu um dóm-
ara leiksins, þá Gísla Jóhannsson
og Hafstein Ingibergsson, eftir
leikinn sl. fimmtudag. Ummæl-
in voru ómakleg og sögð í hita
leiksins, en þeir Gísli og Haf-
steinn eru eitt okkar fremsta
dómarapar. Með handbolta-
kveðju, Einar Jónsson, þjálfari
Fram.“ - óój
Einar Jónsson, þjálfari Fram:
Bað Hafstein og
Gísla afsökunar
EINAR JÓNSSON FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN