Fréttablaðið - 15.02.2012, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2012 27
2 fyrir 1
Lambakjöt og bernaise
í febrúar.
Nýbýlavegi 32 www.supersub.is
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir
nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí
á sólarhring. Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið
hjartabilun eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi
eða með barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Barce-
lona eru í frábærum málum eftir
3-1 útisigur á þýska liðinu Bayer
Leverkusen í fyrri leik liðanna
í sextán liða úrslitum Meistara-
deildarinnar í gærkvöldi. Síle-
maðurinn Alexis Sánchez var hetja
kvöldsins hjá Börsungum því hann
skoraði tvö fyrstu mörk liðsins sitt
í hvorum hálfleiknum og Lionel
Messi innsiglaði síðan sigurinn í
lokin.
Barcelona var mun meira með
boltann frá byrjun leiks en ekkert
gekk hjá liðinu að skapa sér færi.
Þolinmæði Barcelona skilaði
sér hins vegar á 41. mínútu. Alexis
Sánchez vann þá skallaeinvígi og
boltinn barst til Lionel Messi sem
stakk honum inn fyrir vörnina þar
sem Sánchez var sloppinn einn í
gegn og skoraði undir Bernd Leno.
Fyrri hálfleikurinn var róleg-
ur en mun meira fjör var í þeim
seinni. Bayer Leverkusen var ekk-
ert á því að gefast upp því bak-
vörðurinn Michal Kadlec skoraði
með skalla úr markteignum á 51.
mínútu eftir fyrirgjöf frá Vedran
Corluka.
Alexis Sánchez var aðeins
fjórar mínútur að koma Barca
yfir á ný eftir að hafa fengið
frábæra stungusendingu frá Cesc
Fabregas. Sánchez slapp í gegn,
lék á markvörðinn og skoraði í autt
markið.
Lionel Messi sýndi nokkrum
sinnum snilli sína í seinni hálfleik
og innsiglaði síðan sigurinn í lokin
eftir sendingu frá Dani Alves.
Messi er þar með orðinn marka-
hæstur í sögu útsláttarkeppni
Meistaradeildarinnar.
- óój
Barcelona vann Leverkusen 3-1 í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar:
Börsungar í frábærum málum
MAÐUR KVÖLDSINS Alexis Sánchez fagnar hér fyrra marki sínu á móti Leverkusen í
gær. FRÉTTABLAÐIÐAP
Meistaradeildin í fótb. í gær
16 LIÐA ÚRSLIT - FYRRI LEIKUR
Bayer Leverkusen - Barcelona 1-3
0-1 Alexis Sánchez (41.), 1-1 Michal Kadlec (51.),
1-2 Alexis Sánchez (55.), 1-3 Lionel Messi (88.)
Lyon - APOEL Nicosia 1-0
1-0 Alexandre Lacazette (58.)
Enska b-deildin í fótb. í gær
Cardiff - Peterborough 3-1
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Cardiff
en var tekinn útaf á 72. mínútu í stöðunni 3-0.
Coventry - Leeds 2-1
Hermann Hreiðarsson lék ekki vegna meiðsla.
Sænski körfuboltinn
Lf Basket-Jamtland Basket 81-79 (41-48)
Brynjar Þór Björnsson skoraði 7 stig á 23 mín.
og hitti úr 2 af 3 þriggja stiga skotum sínum.
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Carlos Tevez lenti í
Manchester í gær og mætti
í kjölfarið á æfingasvæði
Manchester City en þar hefur
hann ekki látið sjá sig síðan
að hann stalst til Argentínu 7.
nóvember síðastliðinn eða fyrir
99 dögum.
City er búið að sekta Tevez
um 1,2 milljónir punda (232
milljónir) fyrir að neita að koma
aftur til Englands auk þess sem
Tevez hefur ekki fengið launin
sín borguð þennan tíma en hann
fær 200 þúsund pund á viku (38
milljónir). City tókst ekki að selja
Tevez í janúar og hann er á 25
manna leikmannalista liðsins
fyrir seinni hluta tímabilsins.
Tevez hefur talað um að
Roberto Mancini, stjóri City,
hafi komið fram við sig eins og
hund í München í september en
ítalski stjórinn, sem afneitaði
Argentínumanninum á sínum
tíma, segist vera tilbúinn til að
taka Tevez aftur inn í liðið sé
hann í formi til þess að spila. - óój
Tevez mættur til Manchester:
99 daga útlegð
er á enda
CARLOS TEVEZ Með dóttur sinni á
flugvellinum í Manchester í gær. AFP