Fréttablaðið - 15.02.2012, Side 46
15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR30
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hlusta á íslenska tónlist,
enda eru eingöngu spiluð íslensk
lög í vinnunni. Gömul sem ný!“
Sigmar Vilhjálmsson, eigandi Íslensku
Hamborgarafabrikkunnar og Íslensku
kaffistofunnar.
„Þetta verður svakalegt ævintýri,“
segir tónlistarkonan Lay Low.
Hún hitar upp fyrir hljómsveitina
Of Monsters and Men á stórri tón-
leikaferð um Bandaríkin og Kanada
í mars og apríl. Tónleikarnir verða
átján talsins og verða þeir fyrstu í
Los Angeles 20. mars en þeir síðustu í
Toronto 12. apríl.
„Ég er mjög spennt fyrir þessu. Ég
hef ekki túrað svona mikið í einu um
Bandaríkin áður,“ segir Lay Low. „Það
verður gaman að vera með krökkun-
um. Það er að ganga svona blússandi
vel hjá þeim og allir í megastuði fyrir
þeim úti, þannig að ég fæ að fljóta
með í þessa miklu hamingju.“
Hún verður ein á ferð með kassagít-
arinn og skilur því tónleikabandið sitt
eftir í þetta sinn, enda kostar mikið
að fara með heila hljómsveit vestur
um haf. Aðspurð hvort hún geti ekki
gefið nýliðunum Of Monsters and Men
góð ráð í ferðinni segist hún vonast
til þess enda búin að spila á sumum
af þessum stöðum áður. „En ég er
alltaf að læra sjálf. Ég get ekki
farið að miðla voða miklu, nema
bara benda þeim á einhverja góða
veitingastaði.“
Hún gaf út plötuna Brostinn
strengur fyrir síðustu jól en er
strax byrjuð að taka upp nýja.
Sú verður á ensku og er ætluð
fyrir erlendan markað. Hún
kemur líklega út í haust.
„Mér sýnist á öllu að ég
verði að vinna í svipuðum
„fíling“ og á síðustu
plötu,“ segir hún um
upptökurnar. - fb
Ævintýri með Of Monsters
SPENNT Lay Low er mjög
spennt fyrir tónleikaferðinni
með Of Monsters and Men.
„Ég svaf allan tímann. Það er
asnalegt hvað þetta var þægi-
legt,“ segir Sindri Már Sigrúnar-
son, aðdáandi rokksveitarinnar
Endless Dark sem er ættuð frá
Ólafsvík og Grundarfirði.
Hann gerði sér lítið fyrir og
lét húðflúra nafn sveitarinn-
ar á höfuðið fyrir skömmu. „Ég
er mjög mikill aðdáandi End-
less Dark. Frá því að ég heyrði í
þeim í fyrsta skipti hef ég hlust-
að mikið á þá og viljað fá þetta
tattú. Ég var á tónleikum með
þeim um daginn og ákvað að láta
slag standa og kýla á þetta,“ segir
Sindri Már.
Hann dreif sig í Bleksmiðjuna
í Reykjavík og segist ekki hafa
fundið fyrir neinu. „Þetta var
bara svæfandi. Ég var byrjaður
að slefa og læti. Þetta var lúxus
miðað við marga aðra staði.“
Sindri Már er með hvorki fleiri
né færri en 27 önnur húðflúr á
líkamanum, þar af eitt annað á
höfðinu með hljómsveitinni Urm-
ull. Hún er frá Ísafirði, rétt eins
og hann sjálfur. „Ég heyrði fyrst í
Urmul 1994 þegar hún gaf út plöt-
una Ull á víðavangi. Ég hef ekki
hætt að hlusta á Urmul síðan og á
plötuna þeirra enn þá í plastinu.“
Annað húðflúr er í vinnslu,
tileinkað bandarísku þungarokk-
sveitinni Avenge Sevenfold. Það
verður risastórt og mun ná yfir
allan brjóstkassann á honum.
„Maður er soddan rokkari.“
Atli Sigursveinsson, gítarleik-
ari Endless Dark, kynntist Sindra
Má fyrst þegar hann keypti bassa
af Hólmkeli Leó Aðalsteinssyni
úr Endless Dark. „Það er kúl að
einhver sé að fá sér tattú með
okkur, hvað þá á hausinn,“ segir
Atli. „Þetta er samt seinasti stað-
urinn sem ég myndi fá mér tattú
á. Þetta er dálítið brjálæði en
samt kúl fyrir okkur.“
freyr@frettabladid.is
SINDRI MÁR SIGRÚNARSON: LÉT SLAG STANDA EFTIR TÓNLEIKA
Svaf á meðan Endless Dark
var húðflúrað á höfuð hans
ÞÆGILEGT Sindri Már Sigrúnarson svaf allan tímann á meðan hann lét húðflúra Endless Dark á höfuðið á sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég missi ekki svefn þótt ég fari aldrei í
Eurovision. Þetta er rosalega skemmti-
legt en ég kemst alveg af,“ segir Magni
Ásgeirsson, sem var að keppa í fjórða
sinn í Eurovision og hefur aldrei komist í
lokakeppnina.
Í fyrra lenti hann í öðru sæti með lagið
Ég trúi á betra líf, á eftir sigurlagi Vina
Sjonna. Í þetta sinn lenti Hugarró, eftir
Svein Rúnar Sigurðsson og Þórunni Clau-
sen, í öðru sæti hjá dómnefndinni en því
þriðja í símakosningunni. „Fyrstu tvö
skiptin voru meira vinargreiði og þá var
ekkert verið að keppa að titlinum en síð-
ustu tvö ár er þetta búið að vera alvöru.“
Inntur eftir hvort hann sé búinn að
gefast upp á því að reyna að komast
í lokakeppnina segir hann: „Þetta er
orðið ágætt, nema ef einhver kemur með
þriggja mínútna Karma Police í hend-
urnar á mér. Þá er ég til í að gera þetta
aftur,“ segir Magni.
Fram undan hjá Magna eru tónleikar
til heiðurs hljómsveitinni Queen á Akur-
eyri annað kvöld og í Spot í Kópavogi á
laugardagskvöld. „Svo er ég að taka upp
fullt af efni og leika mér,“ segir hann
hress.
Semurðu ekki bara þitt eigið Eurovisi-
on-sigurlag? „Ég á rosalega erfitt með
að semja þriggja mínútna Eurovision-
lag, með fullri virðingu fyrir Eurovision.
Ég virðist ekki kunna þessa Eurovision-
formúlu.“ - fb
Missir ekki svefn yfir Eurovision
KANNSKI EINU SINNI ENN Magni Ásgeirsson ræðir við Rósu
Birgittu Ísfeld baksviðs í Eurovision-keppninni um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín