Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 4
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR4
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær tveggja ára óskilorðs bundinn
fangelsisdóm yfir Baldri Guð-
laugssyni, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu.
Baldur gerðist sekur um inn-
herja svik í opinberu starfi þegar
hann seldi hlutabréf sín í Lands-
bankanum um miðjan september
2008 fyrir 192 milljónir króna.
Baldur sat sem fulltrúi fjár-
málaráðuneytisins í samráðs-
hópi um fjármálastöðugleika sem
fundaði reglulega um ástand fjár-
málakerfisins árið 2008, fram að
hruninu í októberbyrjun. Meiri-
hluti Hæstaréttar fellst á það með
héraðsdómara að upplýsingar sem
Baldur öðlaðist á þessum fundum,
og eru tilgreindar í fimm liðum
í ákæru, hefðu verið viðkvæm
trúnaðar mál og teldust innherja-
upplýsingar í skilningi laga.
Í dómnum segir að fallast
megi á það með Baldri að máls-
meðferðin hjá Fjármálaeftirlitinu
hafi dregist úr hömlu og jafnframt
að hann hafi að nokkru leyti sýnt
fram á að fjölmiðlaumfjöllun um
mál hans hafi verið afar óvægin.
Hvorugt geti þó verið metið honum
til refsilækkunar.
Einn dómari af fimm, Ólafur
Börkur Þorvaldsson, skilar sér-
atkvæði og telur að vísa hefði átt
málinu frá ellegar sýkna Baldur.
Frávísunina rökstyður Ólafur
Börkur með því að Fjármálaeftir-
litinu hafi verið óheimilt að taka
rannsókn málsins upp að nýju
eftir að hafa tilkynnt Baldri um að
henni hefði verið hætt. Engar nýjar
upplýsingar hefðu komið fram sem
réttlættu það. Sýknunina rök styður
hann þannig að Baldur hafi ein-
faldlega ekki búið yfir neinum inn-
herjaupplýsingum.
Ágóðinn af brotinu er gerður
upptækur í ríkissjóð en Hæsti-
réttur lækkar upphæðina þó um
átján milljónir sem Baldur hefur
þegar greitt af fénu í söluþóknun
og fjármagnstekjuskatt.
Dómurinn yfir Baldri er fyrsti
dómur Hæstaréttar í máli sérstaks
saksóknara og auk þess fyrsti
sektardómur sem fellur á Íslandi
vegna innherjasvika. Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari,
segir embættið nú hafa til rann-
sóknar allnokkurn fjölda inn herja-
svikamála.
„Þessi dómur gefur ákveðnar
vísbendingar og skapar fordæmi
sem mun létta okkur róðurinn í
þeim málum,“ segir Ólafur. „Engin
þeirra hafa verið beint í biðstöðu
en menn geta þá handleikið ákæru-
valdið af meira öryggi þegar þarf
að taka ákvörðun um saksókn.“
stigur@frettabladid.is
GENGIÐ 17.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,2186
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,1 123,68
195,08 196,02
161,86 162,76
21,771 21,899
21,574 21,702
18,325 18,433
1,5566 1,5658
190,12 191,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Dómur yfir Baldri staðfestur
Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri Guðlaugssyni. Einn dómari skilaði sératkvæði og
vildi vísa málinu frá eða sýkna. Baldur er mjög vonsvikinn. Skapar fordæmi fyrir önnur innherjasvikamál.
SEKUR „Baldur var mjög valdamikill maður í þessari ríkisstjórn, kannski valdamesti
maðurinn af okkur öllum,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson við rannsóknarnefnd
Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍTARLEGT Sigríður Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari kynnir sér 34 blaðsíðna
hæstaréttardóminn í gær. Í tilkynningu
segir hún að niðurstaðan sé í takti við
það sem ákæruvaldið lagði upp með
og gefi einnig mikilvægt fordæmi á sviði
innherjasvikamála.
„Ég er búinn að tala við Baldur. Viðbrögð
hans eru sömu og mín, mikil vonbrigði,“
sagði Karl Axelsson, verjandi Baldurs, við
fjölmiðla að lokinni dómsuppkvaðningunni í
Hæstarétti í gær. „Það er sératkvæði og það
gerir vonbrigðin ekki minni að í dómi þar
sem verið er að refsa fólki skuli dómurinn
klofna,“ sagði Karl.
Karl hefur haldið því sjónarmiði Baldurs
á lofti frá upphafi að á honum hafi verið
brotin mannréttindi þegar Fjármálaeftirlitið
hóf rannsókn á máli hans á nýjan leik vorið
2009. Hann sagði í gær að ekki hefði verið
ákveðið hvort farið yrði með málið lengra.
Lögmaður Baldurs segir ekki ákveðið hvort málið fari lengra
Málþing um tækifæri í hjólaferðamennsku á Íslandi
Föstudaginn 24. 02. 2012 kl. 10.30 – 15.30 í Sal Eflu Höfðabakka 9
Innlendir fyrirlesarar flytja eftirfarandi erindi:
SAMGÖNGUR Umferð um Reykja-
nesbraut við Straumsvík verður
frá og með deginum í dag beint
um bráðabirgðarveg.
Framkvæmdir standa yfir
gegnt álverinu þar sem verið er
að byggja göng undir Reykjanes-
brautina. Verður bráðabirgða-
vegurinn notaður á meðan fram-
kvæmdirnar standa yfir. en
verklok eru fyrirhuguð í júlí. Í
tilkynningu frá Vegagerðinni eru
ökumenn beðnir um að aka var-
lega um framkvæmdasvæðið. - þj
Vegaframkvæmdir:
Bílum beint um
bráðabirgðaveg
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
8°
6°
5°
8°
6°
3°
3°
19°
10°
15°
9°
26°
3°
10°
13°
0°
1
Á MORGUN
Strekkingur með SA-
strönd annars hægari.
-2
0
MÁNUDAGUR
Strekkingur með SA-
strönd annars hægari.
2 2
-1
-1
-2
3 -2
-6
-6
-6
-6
-6
-7
-5
-7
-4
-14
-5
3
6
8
6
5
9
6
8
7
7
2 18
HLÝNAR
Það dregur úr frosti
þegar líður á dag-
inn og á morgun
fer hitinn yfi r
frostmark með
ströndum sunnan-
og vestanlands.
Það þykknar upp
vestan til síðdegis
í dag og á morgun
má búast við snjó-
komu eða slyddu
víða en þó ekki
allra austast.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
hefur hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
úr BBB- í BB+. Langtímaskuldabréf ríkis-
sjóðs eru því á ný komin í fjárfestingaflokk
og teljast þar með ekki lengur til svokallaðra
ruslskuldabréfa, að mati Fitch.
Fitch var hið eina af hinum þremur stóru
matsfyrirtækjum sem lækkaði lánshæfis-
einkunn Íslands niður í ruslflokk í kjölfar
þess að Ólafur Ragnar Grímsson forseti
vísaði fyrri Icesave-lögunum í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Í tilkynningu sem Fitch sendi frá sér af
þessu tilefni segir að hækkunin endurspegli
þann árangur sem náðst hefur frá bankahruni
við að endurheimta stöðugleika í hagkerfinu,
framfylgja kerfisumbótum og endurbyggja
lánstraust ríkissjóðs.
Þá telur Fitch að vergar skuldir hins opin-
bera hafi líklega náð hámarki á síðasta ári
í kringum 100 prósent af landsframleiðslu.
Hrein skuldastaða sé hins vegar umtalsvert
lægri eða um 65 prósent af landsframleiðslu.
Þá metur Fitch það sem svo að verði komist
hjá frekari áföllum ætti skuldahlutfall hins
opinbera að lækka stöðugt á næstu árum.
Loks kemur fram í tilkynningu Fitch að
úrskurði EFTA-dómstóllinn Íslendingum
í óhag í Icesave-málinu gætu skuldir hins
opinbera hækkað um 6 til 13 prósent af
landsframleiðslu. Þá telur Fitch að afnám
gjaldeyris hafta gæti tekið langan tíma. - mþl
Lánshæfismat skuldbindinga ríkissjóðs Íslands hækkað hjá matsfyrirtækinu Fitch:
Fitch lyftir lánshæfi Íslandi úr ruslflokki
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Fitch telur skuldbindingar ríkis-
sjóðs nú traustari en áður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍÞRÓTTIR Borgarráð hefur sam-
þykkt að verja 2,5 milljónum
króna til að unnt sé að opna skíða-
svæðið í Skálafelli út veturinn.
Tilskilið er þó að hin sveitar-
félögin, sem hlut eiga að máli,
setji einnig fé í verkefnið.
Miðað við afstöðu fulltrúa
Kópavogsbæjar í stjórn Skíða-
svæða höfuðborgarsvæðisins er
óljóst hvort samstaða náist meðal
sveitarfélaganna. „Vinnubrögð
sem byggja á skyndiaðgerðum
og fela í sér ófyrirséð fjárútlát
fyrir sveitarfélögin eru í takt við
þau vinnubrögð sem ollu hruninu
á Íslandi 2008 og ég get ekki
tekið þátt í slíku,“ bókaði Kristín
Sævars dóttir úr Kópavogi. Skíða-
deild KR hyggst opna í Skálafelli
25. febrúar. - gar
Grænt ljós frá borgarrráði:
Reiðubúin að
opna Skálafell
Skólameistarastöður í boði
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið hefur auglýst tvær stöður
skólameistara lausar til umsóknar.
Það er hjá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 20. mars.
MENNTAMÁL