Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 12
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR12
SAMGÖNGUR Íslenska nýsköpunar-
fyrirtækið Northern Lights
Energy (NLE) stefnir á að hefja
rekstur skyndibílakerfis á höfuð-
borgarsvæðinu strax í sumar.
Fréttablaðið hefur að undanförnu
fjallað um hugmyndir nokkurra
fyrirtækja sem hafa áhuga á að
koma slíku kerfi á, en Gísli Gísla-
son, stjórnarformaður NLE, segir
í samtali við Fréttablaðið að fyrir-
tækið hafi unnið lengi að svipuðu
verkefni og muni hefja skyndibíla-
rekstur í sumar, bæði fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga.
„NLE hefur unnið að þessari
hugmynd frá árinu 2009 og við
komum þá fram með nafnið
„Skyndibílar“ sem við eigum sem
skrásett vörumerki. Við hefðum
getað farið fyrr af stað en lögðum
áherslu á að nota aðeins bíla sem
ganga fyrir íslenskri orku. Nú
eigum við von á rafbílum frá ind-
verska fyrirtækinu Reva á næst-
unni og er því ekkert að van-
búnaði.“
Gísli bætir því við að NLE sé í
samvinnu við danskan aðila sem sé
að þróa sambærilega lausn í Kaup-
mannahöfn.
„Okkar notendum mun líka
standa til boða þeirra þjónusta
án þess að skrá sig sérstaklega til
þess,“ segir Gísli. - þj
Nýsköpunarfyrirtækið Northern Lights Energy á von á tugum rafbíla:
Grænir skyndibílar klárir fyrir sumarið
GÍSLI GÍSLASON Hann stefnir að því
að taka græna skyndibíla í notkun fyrir
sumarið.
Skyndibílafyrirkomulag felur í sér
að notendur skrá sig á vef fyrir-
tækisins. Þaðan geta þeir pantað
sér bíl með litlum fyrirvara og til
skamms tíma. Þeir sækja síðan
bílinn á ákveðinn stað, opna með
korti eða farsíma, og skila þangað
aftur eftir notkun.
Skyndibílakerfið:
ÞÝSKALAND, AP Undanfarna tvo
mánuði hefur Christian Wulff
Þýskalandsforseti setið undir
sívaxandi þrýstingi vegna frétta
af því að hann hafi þegið ýmsa
greiða af vinum sínum meðan
hann var forsætisráðherra í
Neðra-Saxlandi, einu hinna sextán
landa sambandsríkisins Þýska-
lands.
Hann sagði loks af sér í gær
þegar saksóknari í Hannover,
höfuðstað Neðra-Saxlands, óskaði
eftir því að þjóðþingið í Berlín
svipti forsetann friðhelgi svo hægt
verði að hefja rannsókn á málinu.
Wulff sagðist í ávarpi sínu í
gærmorgun segja af sér vegna
þess að Þýskaland þurfi á forseta
að halda sem nýtur trausts yfir-
gnæfandi meirihluta þjóðarinnar.
„Þróunin síðustu daga og mánuði
hefur sýnt að þetta trúnaðar traust,
og þar með möguleikar mínir til
að sinna starfi mínu, hefur beðið
varanlegan hnekki.“
Hann sagðist samt sannfærð-
ur um að rannsókn á málum
hans leiði ekkert saknæmt í ljós:
„Ég hef alltaf farið að lögum í
embættis störfum mínum. Ég hef
gert mistök, en ég hef alltaf verið
heiðarlegur.“
Nokkru fyrir jól bárust fyrst
fréttir af því að Wulff hefði þegið
óvenju hagstætt lán af vini sínum,
sem hann notaði til að kaupa sér
hús. Stuttu síðar fréttist að Wulff
hefði reynt að hindra eða tefja
birtingu frétta af þessari lán-
veitingu, og hefði meðal annars
haft í hótunum við ritstjóra dag-
blaðsins Bild.
Síðar kom upp grunur um að
þýskur kvikmyndaframleiðandi,
David Grönewold, hafi greitt fyrir
dvöl Wulffs á lúxushóteli árið 2007.
Þá hafi Wulff þegið fleiri greiða
af Grönewold og hugsanlega veitt
honum einhverja greiða í staðinn.
Forseti Þýskalands er kosinn af
þjóðþingi landsins, þannig að nú
hefst leit að forsetaefni sem meiri-
hluti þingmanna getur stutt.
Wulff var forsetaefni hægri-
manna þegar hann var kosinn
fyrir tveimur árum. Margvíslegt
ósætti innan stjórnarflokkanna
gerir það að verkum að Angela
Merkel kanslari segist nú vilja
forsetaefni sem nýtur stuðnings
allra flokka á þingi – að undan-
skildum Vinstriflokknum sem er
arftaki gamla Kommúnistaflokks-
ins í Austur-Þýskalandi.
gudsteinn@frettabladid.is
Segist ekki
njóta trausts
Christian Wulff, forseti Þýskalands, sagði af sér
eftir að saksóknari fór fram á að hann yrði sviptur
friðhelgi svo hægt verði að rannsaka grun um
spillingar mál. Angela Merkel leitar nú að arftaka.
CHRISTIAN WULFF SEGIR AF SÉR Christian Wulf ásamt eiginkonu sinni Bettinu í
forsetahöllinni í Berlín, þar sem hann les upp yfirlýsingu um afsögn sína.
NORDICPHOTOS/AFP
Í Kringlunni færðu blóm, dekurvörur, konfekt
og miklu miklu meira sem gleður góðar konur.
Mán - mið 10-18:30, fim 10-21, fös 10-19, lau 10-18, sun 13-18 | Sími 517 9000
Konudagurinn er á morgun!
Námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á þróunarsamvinnu, neyðaraðstoð,
mannúðarstörfum og friðaruppbyggingu. Veitt er innsýn í störf á vettvangi,
stefnur og starfsemi ólíkra stofnana og þátttöku Íslands á þessu sviði.
Kennsla fer fram 9. og. 10. mars og 23., 24. og 25. mars.
Skráningarfrestur til 29. febrúar.
Sjá nánari upplýsingar á endurmenntun.is eða í síma 525 4444
ÁLITAMÁL Í ÞRÓUNARSAMVINNU
OG HJÁLPARSTARFI Á VETTVANGI
Í samstarfi við Utanríkisráðuneytið, Rauða krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands
TRÉ Í KLAKAPILSI Þessa sérstæðu
klakamyndun gat að líta á tré í
bænum Schwedt í norðaustanverðu
Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP