Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 46
Steinunn er í starfsþjálfun í tengslum við nám sitt í Austurbæjaskóla og segir það æðislegt. „Krakkarnir taka mér vel því ég er
alltaf svo glöð, kát og til í eitthvað skemmtilegt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Steinunn Ása leggur stund á við-
burðastjórnun og tómstundafræði
við Kennaraháskólann.
„Mér fannst ég þurfa að gera
eitthvað virkilega krefjandi því ég
vil eiga bjarta framtíð og líða vel.
Einn daginn langar mig að geta
búið í eigin íbúð með mitt eigið dót
í Vesturbænum og veit að ég get
það vel; bara ef ég fæ tækifæri til
þess,“ segir hún brosmild.
Steinunn Ása smitaði landsmenn
með glaðværð og fögru fasi í þátt-
unum Með okkar augum í Ríkis-
sjónvarpinu í fyrra, en um þá sáu
hæfileikaríkir þáttarstjórnendur
með þroskahömlun.
„Ég hef alltaf verið lífsglöð og
áhugasöm um lífið og tilveruna.
Ég er mikil félagsvera en finnst
líka gott að vera ein, slaka á og
hlusta á tónlist, því tónlist hjálpar
mér að glíma við söknuðinn eftir
mömmu,“ útskýrir Steinunn Ása
sem missti móður sína í október.
„Það var mikið áfall og mér leið
alls ekki vel fyrst á eftir, en hafði
kjark til að mæta strax í skólann
þar sem kennararnir hjálpuðu mér
mikið. Þegar ég er ein sé ég stund-
um mömmu eins og ljóslifandi og
við tölum saman, sem mér finnst
gott. Ætli hún sé ekki með því að
láta mig vita að ég lifi í henni og
að hún lifi innra með mér,“ hugs-
ar Steinunn Ása upphátt og lætur
hugann reika til móður sinnar og
bestu vinkonu.
„Líf mitt hefur breyst svo mikið
eftir að mamma dó, en í síðustu
viku fór ég að geta brosað aftur
við tilverunni.“
Í dag verður gleðin við völd
því Steinunn Ása verður með
kynningu á háskóladeginum og
afhendir íslensku kvikmynda-
og sjónvarpsverðlaunin í beinni
sjónvarpsútsendingu á Eddunni í
kvöld.
„Ég hlakka mikið til og fæ að
klæðast fallegum kjól og skart-
gripum, verð naglalökkuð og fer í
hárgreiðslu og andlitsförðun, svo
þetta verður sannkallað prinsessu-
kvöld,“ segir hún hláturmild, en
helgartilvera Steinunnar Ásu er
annars undirlögð af notalegheit-
um.
„Ég drekk voða mikið kaffi og
fer oft á kaffihús með vinum eða
sjálfri mér. Kaffi er uppáhalds-
drykkurinn minn en móðuramma
mín bauð mér upp á fyrsta kaffi-
bollann þegar ég var þriggja ára
og þá fannst mér gott að blanda
saman kaffi, mjólk og sykri og dýfa
kexi ofan í. Ég heimsæki ömmu og
afa gjarnan um helgar en fer líka
mikið á tónleika. Ég hef þörf fyrir
að hlusta á klassíska tónlist og
sálmasöng og fer því mikið í Hall-
grímskirkju þar sem ég nota tæki-
færið og læri söngtextana um leið
og ég hlusta á kórinn,“ segir Stein-
unn Ása sem hefur sjálf stund-
að söng- og píanónám og á einkar
gott með að læra tungumál, en hún
talar ítölsku reiprennandi eftir að
hafa búið með foreldrum sínum í
Feneyjum um tveggja ára skeið.
En á hún von á blómum á konu-
daginn?
„Nei, ég á engan kærasta og vil
bara eiga góða vini. Ég geri því
eitthvað fyrir mömmu í staðinn og
fer með blóm á leiðið hennar, því
þangað er gott að koma.“
thordis@frettabladid.is
Með kaupum á tilteknum réttum,
eru viðskiptavinir að tryggja að
hluti af verði þeirra renni til vernd-
ar barna í gegnum mannréttinda-
samtök barna, Barnaheil-Save the
Children á Íslandi. Alls hafa þrett-
án veitingastaðir ákveðið að taka
þátt í verkefninu sem hófst 15.
febrúar og stendur til 15. mars.
Veitingastaðirnir sem taka þátt í
þessum mánuði barnanna eru
Caruso, Dominos, Grill66, Ham-
borgarafabrikkan, Íslenska kaffi-
stofan, KFC, Nauthóll, Pizza Hut,
Saffran, Serrano, Skrúður, Subway
og Taco Bell.
Nánari upplýsingar eru að finna á
www.barnaheill.is.
Ágóði rennur
til barna
HLUTI AF ÁGÓÐA FJÖLDA VEIT-
INGASTAÐA RENNUR TIL VERKEFNA
BARNAHEILLA - SAVE THE CHILD-
REN Á ÍSLANDI, Á TÍMABILINU 15.
FEBRÚAR TIL 15. MARS.
„Ég er mikil félagsvera en finnst líka gott að vera ein,
slaka á og hlusta á tónlist, því tónlist hjálpar mér að
glíma við söknuðinn eftir mömmu.“
Framhald af forsíðu
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
25% afsláttur af barnavörum
Skoppa og Skrítla
skemmta börnunum í dag kl 13.30
börnin fá rúmföt
fyrir bangsann
meðan birgðir endast
*
föstuda
g &
laugard
ag
Barnadagar
Fjölskyldumiðja í gerð öskupoka
og bolluvanda verður haldin á
morgun í Gerðubergi og Borgar-
bókasafni Grófarhúsi.
Að flengja foreldrana og aðra
fullorðna að morgni bolludags
og segja „bolla, bolla“ og fá jafn-
margar bollur að launum síðar
um daginn ásamt því að hengja
öskupoka á bak ein-
hvers, án þess að við-
komandi verði þess
var, eru gamlir
og skemmtileg-
ir siðir.
Bolluvendi
er auðvelt að
útbúa en þeir eru
gjarnan gerðir
úr löngum prik-
um og litríkum
pappírsræmum.
Öskupokar eru
litlir skrautlegir
pokar sem dregnir
eru saman með þræði
sem í er hengdur boginn títu-
prjónn. Markmiðið er að næla
öskupokanum á bakið á ein-
hverjum án þess að fórnarlamb-
ið taki eftir því.
Í smiðjunni eru gerðir ösku-
pokar og bolluvendir eftir kúnst-
arinnar reglum. Verkefnið er við
allra hæfi, auðvelt og skemmtilegt
undir leiðsögn sérfróðra.
Smiðjan er haldin í sam-
starfi við Heimilisiðnaðarfé-
lag Íslands og er opin á morg-
un, sunnudag, í Gerðubergi frá
klukkan 14 til 16 og í Borgar-
bókasafni Grófarhúsi klukkan
15 til 16.30. Krakkar á öllum
aldri mega taka þátt. Allt efni
verður á staðnum, aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Málþing um fjölmiðla á landsbyggðinni , hlutverk
þeirra og stöðu verður haldið í Hátíðasal Héraðsskól-
ans í Reykholti í dag frá klukkan 14 til 17. Málþingið er
samstarfsverkefni Snorrastofu og Skessuhorns.
Búðu til bolluvendi
og öskupoka
Öskupokar eru hengdir
á bak einhvers, án þess
að viðkomandi verði
þess var.
Sölufulltrúar:
Jóna María
jmh@365.is 512 5473
Brynja Dan
brynjadan@365.is 512 5465
Snorri
snorris@365.is 512 5457