Fréttablaðið - 18.02.2012, Síða 74
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR42
● Vörur H&M voru seldar á Íslandi í póstvöruversluninni
H&M Rowells um nokkurra ára skeið. Þegar ákveðið
var að leggja niður Rowells-nafnið hætti starfsemi
verslunarinnar hér árið 2005. H&M-fyrirtækið var ekki
reiðubúið að opna hér eigin verslun.
● Fréttir bárust af því fyrir rúmu ári að fulltrúar
sænska tískurisans hefðu komið til Íslands
til að kanna aðstæður vegna mögulegrar
opnunar verslana hér. Enn virðist engin
ákvörðun hafa verið tekin.
● Samkvæmt könnun Capacent fyrir Samtök
verslunar og þjónustu kaupa Íslendingar
þriðjung fatnaðar síns í útlöndum. Þegar
spurt var í nóvember og desember síðast-
liðnum sögðust tæp 42 prósent hafa
keytp barnaföt síðast í útlöndum, þar af
62 prósent í H&M.
● Hjarta margra Íslendinga tók kipp í
janúar síðastliðnum þegar borði um
opnun H&M var hengdur utan á versl-
unarhúsnæði á Laugaveginum. Um var
að ræða verkefni nemenda Listaháskóla
Íslands sem áttu að vekja athygli á því
hvað gæti gert fólk hamingjusamt.
H&M Á ÍSLANDI Þ
egar Erling Persson
stofnaði kvenfata-
verslunina Hennes,
sem þýðir hennar, í
fyrrum húsakynn-
um fiskverslunar í
Väster ås í Svíþjóð árið 1947 hefur
hann varla grunað að 65 árum
síðar myndi heimsfræg leikkona
ganga eftir rauða dreglinum í
kjól frá fyrirtæki hans, eins
og Michelle Williams gerði á
Bafta-hátíðinni á dögunum.
Sennilega hefur hann held-
ur ekki grunað að H&M-
verslanirnar yrðu orðnar
um 2.500 í 43 löndum árið
2012 og að hjarta Íslendinga
tæki kipp þegar hengdur var
upp borði með tilkynningu
um opnun slíkrar verslunar
á Laugaveginum á dögunum.
Erling Persson, sem var
sonur kjötkaupmanns,
hafði fengið hugmyndina
að stofnun verslanakeðju
með kvenfatnað á lágu
verði þegar hann var á ferð
í New York og sá vöru-
hús með ódýrum fatnaði.
Með aðstoð föður síns,
sem seldi kjötbúðina sína,
stofnaði Persson fyrstu
Hennes-verslunina sama
ár.
Það var ekki fyrr en
fimm árum seinna, eða 1952,
sem Hennes-verslun var opnuð
í Stokkhólmi. Árið 1968 keypti
Erling Persson verslunina Mau-
ritz Widforss sem seldi veiði-
græjur og herrafatnað. Nafni
Hennes-verslunarinnar var breytt
í Hennes & Mauritz, H&M, og nú
bættist herra- og barnafatnaður
við vöruúrvalið. Um þetta leyti
voru verslanirnar í Svíþjóð orðn-
ar um fimmtíu talsins.
Sama ár og fyrsta verslunin var
stofnuð í Västerås fæddist Erling
Persson sonurinn Stefan. Hann
er sagður hafa kynnt sér ýmsar
námsgreinar við Stokkhólmshá-
skóla og Háskólann í Lundi án
þess að taka próf. Í staðinn sneri
hann sér að námi innan fjöl-
skyldufyrirtækisins og var sífellt
látinn axla meiri ábyrgð.
Með ríkustu mönnum heims
Stefan Persson flutti til Lund-
úna um svipað leyti og H&M var
skráð í kauphöllina í Stokkhólmi
árið 1974. Í Lundúnum stofnaði
hann fyrstu H&M-verslunina utan
Skandinavíu. Örfáum árum síðar
fékk hann sæti í stjórn fyrirtæk-
isins og árið 1982 var hann gerð-
ur að nýjum framkvæmdastjóra
þess. Þeirri stöðu gegndi hann til
ársins 1998.
Þótt fyrirtækið væri vel rekið
var það fyrstu árin eftir skrán-
inguna í kauphöllinni of lítið til
þess að vekja athygli stóru fjár-
festanna.
Það var fyrst við lok síðari hluta
tíunda áratugar síðustu aldar sem
hjólin fóru að snúast. Þeir sem
þá áttu mörg hlutabréf, fyrst og
fremst fjölskyldan sjálf, stóðu
þá vel að vígi. Nú á fjölskyldan
nærri 40 prósent í fyrirtækinu
og ræður yfir um 70 prósentum
atkvæða í stjórninni. Stefan Pers-
son var í fyrra í 13. sæti á lista
Forbes yfir ríkustu menn heims
og voru eignir hans sagðar nema
24,5 milljörðum dollara eða rétt
rúmum þremur þúsundum millj-
arða í íslenskum krónum.
Keypti heilt þorp í Englandi
Sænski blaðamaðurinn Bengt
Ericson segir í bók sinni um nýju
hástéttina í Svíþjóð, Den nya
överklassen, að Stefan Persson
hafi tileinkað sér hefð sem lengi
hafi ríkt í Bretlandi, nefnilega
að sýna ríkidæmi sitt með fjár-
festingum í glæsilegum bústöð-
um. Í lok tíunda áratugar síð-
ustu aldar keypti hann gamalt
klaustur í Wiltshire, vestur af
London. Landareignin er yfir
fimm þúsund hektarar þar sem
ræktaðir eru nautgripir af Aber-
deen Angus kyni. Þar er jafn-
framt ræktað korn, meðal annars
korn til bruggunar í eigin brugg-
húsi Stefans Persson, Ramsbury
Estate Brewery. Bjórinn er sagð-
ur renna út á kránum á svæðinu.
Vorið 2009 bauð Persson í heilt
þorp og hafði betur. Um er að
ræða þorpið Linkenholt í Hamp-
shire suðaustur af London. Þar
með var Persson orðinn eigandi
herragarðs, tuttugu annarra
húsa, krikketvallar, veiðilendna
og akurlendis. Kaupverðið var um
sex milljarðar íslenskra króna.
Ericsson segir The Sunday Times
hafa giskað á að líklega hafi veiði-
réttindi á svæðinu lokkað mest.
Konungshjónin í heimsókn
Þótt Persson hafi ekki sóst eftir
sviðsljósinu hefur hann ekki verið
feiminn við að bjóða til sín tign-
um gestum sem auðvitað hafa
vakið athygli. Breskir fjölmiðlar
greindu til dæmis frá heimsókn
Karls Gústafs Svíakonungs og
Silvíu drottningar og að þau hefðu
farið á nálæga krá. Stefan Pers-
son er reglulega á listanum yfir
þá sem boðið er í veiðiferðir kon-
ungs í Svíþjóð því að þátttakend-
ur í þeim eru ekki bara greifar og
barónar heldur einnig auðjöfrar
sem ekki eru af aðalsættum.
Stefan Persson tók ekki bara
við H&M-veldinu af föður sínum
heldur erfði hann sumarparadís
á eyjunni Värmdö í skerjagarðin-
um við Stokkhólm. Þar hefur hann
fært út kvíarnar, alveg eins og í
fyrirtækjarekstrinum.
Sænskir fjölmiðlar hafa greint
frá því að á Värmdö eigi fjölskyld-
an og ýmis félög í hennar eigu
um 550 hektara af strandlengju,
ökrum, skógi og vötnum auk lítils
herragarðs, nokkurra glæsilegra
einbýlishúsa og minni húsa.
Fjöldi stórra fasteigna í mið-
borg Stokkhólms er í eigu fast-
eignafélags Stefans Persson,
Ramsbury Property, auk fast-
eigna á Oxford Street í Lundún-
um og Champs-Élysées í París.
H&M-fyrirtækið hefur sjaldan
fjárfest í húsnæðinu sem versl-
anirnar sjálfar eru í. Húsnæðið
hefur verið tekið á leigu og þar
með hefur verið möguleiki til
þess að hverfa fljótt af svæði sem
af ýmsum ástæðum hefur ekki
virkað.
Alltaf á vaktinni
Leyndarmálið á bak við velgengni
H&M er sagt vera einfalt. Fyrir-
tækið fylgist með tískustraumun-
um öllum stundum, verði, gæðum
og framleiðendum. H&M kaupir
vörur af um 700 sjálfstæðum fram-
leiðendum í Evrópu og Asíu. Eins
og önnur alþjóðleg fyrirtæki sem
láta framleiða vörur fyrir sig í Asíu
hefur H&M sætt gagnrýni vegna
aðstæðna hjá þeim sem þar starfa.
Fyrir nokkrum dögum sögðu sam-
tökin Asian Floor Wage Alliance
vinnuaðstæður í Kambódíu brjóta
gegn mannréttindum og að launin
væru alltof of lág. Talsmenn H&M
segjast fagna öllum ábendingum
um réttindi starfsmanna en ítreka
að þeir krefjist þess að starfsmönn-
um séu greidd að minnsta kosti lög-
bundin lágmarkslaun. H&M, sem
taki þátt í verkefninu Fair Wage
Network, geti hins vegar ekki ráðið
því hvaða laun séu greidd.
Starfsmenn H&M eru um 94
þúsund og velta verslanakeðjunn-
ar í fyrra var rúmir tvö þúsund
milljarðar íslenskra króna. Mark-
miðið hefur verið að fjölga H&M-
verslununum um 10 til 15 prósent
á ári víða um heiminn og auka
samtímis söluna í öllum verslun-
um. Verkefnin eru ærin og á dög-
unum útilokaði nýi framkvæmda-
stjórinn, Karl-Johan Persson sem
er sonur Stefans, ekki að opnaðar
yrðu nýjar verslanakeðjur í stíl við
verslanakeðjuna Cos sem er lúxus-
útgáfa af H&M en hún var opnuð
í fyrra.
Karl-Johan Persson, sem sagður
er kunna vel við sig á herragarðin-
um í þorpinu sem faðir hans keypti
í Englandi, lýsti því yfir í viðtali við
Expressen fyrr í þessum mánuði að
hugmyndirnar flæddu innan H&M.
H&M-veldið er í stöðugri sókn
H&M-verslanirnar eru um 2.500 talsins í 43 löndum. Markmiðið er að fjölga þeim enn frekar eða um 10 til 15 prósent á ári.
Ingibjörg B. Sveinsdóttir komst að því að sonur stofnandans er ofarlega á lista Forbes yfir ríkustu menn í heiminum.
AUÐUGUR EIGANDI Stefan Persson, sonur stofnanda H&M, er í 13. sæti á lista Forbes
yfir ríkustu menn heims. Hér er hann við opnun H&M í París. NORDICPHOTOS/GETTY
Hugmyndin um að fá tískukónga í hönnunar-
samvinnu við H&M vakti mikla athygli á sínum
tíma. Slík samvinna hófst við Karl Lagerfeld árið
2004 og á eftir fylgdu Stella McCartney, Viktor
& Rolf, Madonna, Roberto Cavalli, Comme des
Garcons, Matthew Williamson, Jimmy Choo,
Sonia Rykiel, Lanvin og Versace. Vinsældir
H&M jukust enn. Viðskiptavinirnir biðu í
röðum fyrir utan þær sérvöldu verslanir sem
buðu vörurnar til sölu og þær seldust fljótt
upp. Fræg tískublöð hafa fjallað um þessa
samvinnu og birt myndir af tískuflíkunum.
Stórstjörnur hafa klæðst fatnaði frá H&M
verslanakeðjunni og á dögunum gekk
kvikmyndaleikkonan Michelle Williams
eftir rauða dreglinum á Bafta-kvik-
myndahátíðinni í kjól frá H&M úr
lúxuslínunni Conscious Collection
sem er væntanleg á markað í vor.
Fatnaðurinn í þessari línu er úr endur-
unnum efnum.
SAMVINNA VIÐ TÍSKUKÓNGA
OPIÐ HÚS á Gigtarmiðstöðinni Ármúla 5
Í dag 18. febrúar milli kl. 13 og 16.
Gigtarfélag Íslands býður fólki að koma á OPIÐ HÚS á Gigtarmiðstöðinni að
Ármúla 5, í dag 18. febrúar milli kl. 13 og 15.
Dagskrá:
1. Ávörp og fyrirlestrar
13:00 Einar S Ingólfsson formaður GÍ opnar húsið.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ávarpar gesti.
13:15 Fyrirlestur um Gjörhygli „mindfulness“;
Bridget Ýr McEvoy verkefnastjóri hjúkrunar við heilsustofnunina
í Hveragerði flytur.
13:45 Kynning á Tai Chi - vinnusmiðja; Anna Kristín Kristjánsdóttir
sjúkraþjálfari flytur.
2. Kynning á starfi Gigtarmiðstöðvarinnar,
vörukynningar fyrirtækja og kaffi á könnunni.
14:20 Kynnt verður sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, áhugahópar félagsins,
hópþjálfun fótaaðgerðir, Gigtarlínan, fræðsla og ráðgjöf.
Vörukynningar: Eirberg, Iljaskinn, Lífsorka, Lýsi, Portfarma, Stoð,
Varmahlífar Volcano Iceland, Öryggismiðstöðin og Össur.
Allir eru velkomnir.