Fréttablaðið - 18.02.2012, Side 105

Fréttablaðið - 18.02.2012, Side 105
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2012 73 FÓTBOLTI „Fyrir svona tveimur vikum höfðu menn frá Start sam- band. Sögðust muna eftir mér frá því ég kom til þeirra árið 2009 og að þeir væru að leita að manni eins og mér. Þá fóru hjólin í gang og núna er allt klárt,“ sagði nýjasti liðsmaður norska liðsins Start, Matthías Vilhjálmsson. FH lánaði Matthías til Start í gær fram að áramótum en kaup- ákvæði er í lánssamningnum. Start getur því keypt Matthías að ári liðnu ef það hefur áhuga á. Matthías framlengdi við FH til ársins 2013 áður en hann var lánaður. „Þá fær FH líklega eitt- hvað fyrir mig og mér finnst félagið eiga það skilið.“ Start féll úr norsku úrvals- deildinni á síðustu leiktíð og ætlar sér beint upp aftur. „Mér líst mjög vel á allt hérna. Þetta er stór klúbbur sem á að vera ofar. Ég fæ vonandi mikið að spila og get þar með sýnt að ég á vel heima hérna. Það er það eina sem skiptir mig máli,“ sagði hinn 25 ára gamli Matthías, sem hefur lengi stefnt á að komast í atvinnu- mennsku en hann hefur verið einn af bestu mönnum íslenska boltans. „Það er ánægjulegt að þetta hafi gengið. Ég lít á þetta sem mikið tækifæri fyrir mig. Vonandi mun þetta skila mér langtímasamningi í atvinnumennsku, sama hvort það er hér eða annars staðar,“ sagði Matthías en hann tapaði aldrei trúnni á að hann kæmist út. „Ég get alveg viðurkennt að eftir því sem árunum fjölgaði var þetta erfiðara. Þannig er bransinn.“ Matthías fer með íslenska lands- liðinu til Japans í næstu viku og þaðan heldur hann beint til La Manga á æfingar með Start. - hbg Matthías Vilhjálmsson lánaður frá FH til norska liðsins Start út þetta ár: Þetta er mikið tækifæri fyrir mig DRAUMUR AÐ RÆTAST Matthías hefur loksins náð því markmiði að komast í atvinnu- mennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Íslenski lands liðs- maðurinn Gylfi Sigurðsson hefur slegið í gegn með Swansea í ensku úrvalsdeildinni undan- farnar vikur. Spyrnutækni Gylfa hefur vakið verðskuldaða athygli. Gylfi hefur skorað eitt mark og lagt upp þrjú mörk í fimm leikjum með Swansea frá því hann kom til liðsins sem láns maður frá Hoffen- heim í Þýskalandi. Barry Glendenning, aðstoðar- ritstjóri íþróttafrétta hjá hinu virta dagblaði The Guardian, telur að Gylfi taki bestu horn- spyrnur í heimi. Þetta kemur fram í umræðu sem spratt upp í vinsælum podcast-þætti á vegum The Guardian fyrr í vikunni. Stjórnandi þáttarins, Max Rus- hden, bar upp spurninguna hvaða leikmaður í knattspyrnusögunni ætti bestu hornspyrnurnar. Rushden fullyrti að það væri Andy Hinchcliffe, fyrrum leik- maður Manchester City og Everton. Glendenning svaraði um hæl að Gylfi Sigurðsson tæki betri hornspyrnur en Hinchcliffe. - seth Aðstoðarritstjóri Guardian: Gylfi tekur bestu horn í heimi GYLFI SIGURÐSSON Hefur slegið í gegn hjá Swansea. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Það er lítið um góðar fréttir úr herbúðum Arsenal í þessari viku og til að bæta gráu ofan á svart kom í ljós í dag að þýski varnarmaðurinn Per Mertesacker verður lengi frá vegna meiðsla. Mertesacker meiddist á ökkla í leiknum gegn Sunderland um síðustu helgi og er búinn að fara í aðgerð vegna meiðslanna sem voru alvarleg. Arsenal segir að það sé óljóst hvenær Þjóðverjinn snúi aftur á völlinn. Hann hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann kom til liðsins frá Werder Bremen. Laurent Koscielny er einnig meiddur þannig að það verður hausverkur fyrir Wenger stjóra að stilla upp vörninni í næstu leikjum. - hbg Mertesacker fór í aðgerð: Verður lengi frá vegna meiðsla
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.