Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 2
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
Stefán, ætlar svartur ekkert að
fara að leika?
Nei, þetta er bara þrátefli.
Bók rithöfundarins Stefáns Mána, Svartur
á leik, er nú komin á ný í toppsætið hjá
bókaútgáfunni Forlaginu, þrátt fyrir að
hafa fyrst verið gefin út fyrir átta árum.
SPURNING DAGSINS
M S . I S
ENGIN
SÆTUEFNI
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS
AÐEINS
1% FITA20%
ÁVEXTIR
ÞÝSKALAND Joachim Gauck, 72 ára
fyrrverandi prestur og fyrrverandi
austur-þýskur andófsmaður, tekur
við af Christian Wulff sem forseti
Þýskalands.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari sá sig nauðbeygða til að fallast
á þetta um helgina eftir að Philipp
Rösler, leiðtogi samstarfsflokks
hennar í ríkisstjórninni, ákvað að
styðja tillögu Sósíaldemókrata og
Græningja.
Þetta er talinn verulegur ósig-
ur fyrir Merkel, þar sem hún var
fyrir tveimur árum andvíg því að
Gauck yrði forseti, eins og Sósíal-
demókratar og Græningjar vildu
strax þá.
Þess í stað fékk Merkel því fram-
gengt þá að Christian Wulff yrði
fyrir valinu, en hann neyddist til
að segja af sér í lok síðustu viku
vegna gruns um spillingu.
Merkel er hins vegar sjálf
prestsdóttir frá Austur-Þýska-
landi, þannig að nú verða tvö æðstu
embætti landsins í fyrsta sinn skip-
uð fyrrverandi Austur-Þjóðverjum.
Merkel tók fram að hún bæri
fyllsta traust til Gaucks, þrátt fyrir
fyrri andstöðu sína: „Við höfum
bæði alið aldur okkar að hluta í
Austur-Þýskalandi og draumur
okkar um frelsi rættist árið 1989,“
sagði Merkel. - gb
Angelu Merkel þröngvað til að samþykkja að Joachim Gauck verði forseti:
Andófsmaður verður forseti
JOACHIM GAUCK OG ANGELA MERKEL Forseti og kanslari Þýskalands verða bæði
fyrrverandi Austur-Þjóðverjar. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært þrjá menn fyrir tilraun til
manndráps í Bryggjuhverfinu í
Reykjavík í nóvember síðastliðn-
um. Einn mannanna er ákærður
fyrir að skjóta úr haglabyssu á bíl
sem í voru tveir menn, en hinir
tveir fyrir að taka þátt í mann-
drápstilrauninni.
Ákærðu heita Kristján Hall-
dór Jensson, 31 árs, Axel Már
Smith, 33 ára, og Tómas Páls-
son Eyþórsson, 25 ára. Þeir hafa
allir setið í gæsluvarðhaldi á
grundvelli almannahagsmuna
frá því grunur féll á þá, segir
Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir,
aðstoðarsaksóknari hjá embætti
Ríkissaksóknara.
Ákæran verður þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins mun einn mann-
anna hafa játað brot að hluta.
Fjórði maðurinn tengist málinu
einnig, en haglabyssan sem notuð
var við skotárásina fannst í fórum
hans. Hann er ekki grunaður um
aðild að árásinni og hans mál því
skilið frá manndrápstilrauninni.
Málið tengist uppgjöri vegna
fíkniefnamála. Þremenningarnir
mæltu sér mót við mennina tvo
sem voru í bílnum sem skotið var
á til að gera upp ágreining um
skuld annars þeirra við Tómas,
að því er fram kemur í ákæru.
Mennirnir hittust að kvöldi
föstudagsins 18. nóvember á bíla-
stæðinu við bílasöluna Höfðahöll-
ina við Tangarbryggju í Reykja-
vík. Fram kemur í ákærunni
að þar hafi árásarmennirnir
farið úr bílnum og gengið að bíl
fórnarlambanna, og að Tómas
hafi sparkað í bílinn.
Ökumaður bílsins bakkaði til
að reyna að komast undan mönn-
unum, og skaut þá Kristján úr
haglabyssu að framhluta bílsins
en hitti ekki, samkvæmt lýsingu
á atburðum í ákærunni.
Fórnarlömbin óku á brott, og
veittu þremenningarnir þeim
eftirför í sínum bíl. Á hringtorg-
inu við Bíldshöfða skaut Kristján
öðru skoti út um glugga bílsins. Í
þetta skiptið hæfði hann bíl fórn-
arlambanna, með þeim afleiðing-
um að afturrúðan splundraðist og
miklar skemmdir urðu á bílnum.
Brot úr hagli hafnaði meðal ann-
ars í baki aftursætis bílsins.
Fórnarlömbin keyrðu eftir árás-
ina á lögreglustöðina við Hverfis-
götu og veittu árásarmennirnir
þeim ekki frekari eftirför.
Lögregla handtók Tómas sama
kvöld, og fann við leit í bíl hans
úðavopn og kylfu. Við húsleit hjá
Kristjáni fundust fjögur úðavopn.
Fórnarlömb mannanna krefj-
ast þess að þeir verði dæmdir til
að greiða hvorum mannanna 1,2
milljónir króna í miskabætur.
brjann@frettabladid.is
Þrír ákærðir fyrir til-
raun til manndráps
Þrír menn sem grunaðir eru um skotárás í Bryggjuhverfinu hafa verið ákærðir
fyrir tilraun til manndráps. Skuldauppgjör endaði með skotárás og bílaeltinga-
leik. Skot úr haglabyssu splundraði afturrúðunni í bíl fórnarlamba mannanna.
HANDTEKNIR Lögregla var með talsverðan viðbúnað eftir skotárásina við Höfðahöll-
ina í nóvember og handtók í kjölfar hennar þrjá menn sem setið hafa í gæslu-
varðhaldi síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Tveir erlendir
ferðamenn, karl og kona, voru í
bíl sem valt og lenti utan vegar
í Flóanum í gærdag. Líklegt er
talið að ökumaður bílsins hafi
misst stjórn á honum í hálku á
Suðurlandsvegi við Kjartansstaði.
Bíllinn valt tvær eða þrjár
veltur. Klippa þurfti ökumanninn
út úr bílnum en farþeginn komst
sjálfur út úr honum. Fólkið var
flutt með sjúkrabílum á slysa-
deild í Reykjavík en var ekki talið
alvarlega slasað. Bíllinn er mikið
skemmdur. - þeb
Hálka á Suðurlandsvegi:
Ferðamenn
slösuðust í veltu
DANMÖRK Nefnd á vegum dönsku
lögreglunnar leggur til að bíleig-
endur verði sektaðir vegna hrað-
aksturs en ekki ökumenn sé öku-
hraðinn allt að 30 prósentum yfir
leyfilegum hraða.
Markmiðið er að auðvelda störf
lögreglunnar verði sjálfvirkt
umferðareftirlit tekið í notkun
eins og stefnt er að.
Verði reglunum breytt eins og
nefndin leggur til þarf lögreglan
ekki að bera kennsl á ökumann-
inn af mynd. Nóg verður að kom-
ast að því hver eigandinn er með
því að skoða bílnúmerið á mynd-
inni. Þar með verður hægt að
senda eigandanum greiðsluseðil
vegna sektarinnar. - ibs
Tillaga vegna hraðasekta:
Bíleigandinn
greiði í stað
ökumanns
SERBÍA, AP Risavaxnar íshellur
sem borist hafa niður eftir Dóná í
Serbíu hafa valdið talsverðu tjóni
á bátum og bryggjum. Hundruð
báta hafa skemmst og fljótandi
skemmtistaður sem var þekkt
kennileiti í Belgrad sökk eftir að
íshrönglið lenti á honum.
Dóná lagði í frosthörkunum
síðustu vikur, en leysingar
undanfarna daga gerðu það af
verkum að ísinn brotnaði og
barst niður fljótið. Jakarnir voru
allt að 50 sentímetra þykkir og
afar þungir.
Ekki er vitað til þess að slys
hafi orðið á fólki, en óttast er að
leysingarnar geti valdið miklum
flóðum víða í Evrópu. - bj
Íshröngl á fljóti veldur hættu:
Sökkti fljótandi
skemmtistað
SKAÐI Flotbryggjur og bátar skemmdust
þegar jakana rak niður Dóná.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Maður, sem dæmdur var
í átján mánaða fangelsi í Hæsta-
rétti fyrir níu árum fyrir að valda
dauða níu mánaða drengs með
hristingi, ætlar að fara fram á að
mál sitt verði endurupptekið.
Lögmaður mannsins hefur sent
beiðni til héraðsdóms og óskar
eftir dómskvaðningu matsmanna
til að meta hvort nýjar rannsóknir
og álit sérfræðinga gefi tilefni til
að breyta niðurstöðu Hæstaréttar.
„Ég var ásakaður um að gera
hluti sem ég gerði ekki, og var
dæmdur fyrir það og ég vil fá
það leiðrétt,“ segir Sigurður
Guðmundsson. Drengurinn var
í daggæslu hjá Sigurði og þáver-
andi konu hans í Kópavogi árið
2001. Hann missti meðvitund í
gæslunni og lést tveimur dögum
síðar. Drengurinn var talinn
hafa látist af völdum heilkennis
ungbarnahristings.
Sigurður og kona hans voru
bæði ákærð og grunuð um að hafa
valdið dauða drengsins. Hún var
sýknuð en Sigurður fékk átján
mánaða fangelsisdóm og sat inni
í heilt ár á Kvíabryggju. Hann
hefur aldrei getað sætt sig við
málalyktir. - ha, bj
Vill endurupptöku máls eftir að hafa hlotið dóm fyrir að valda kornabarni dauða:
Vill mat á nýjum rannsóknum
BÖRN Dagfaðir er ósáttur við niðurstöðu
dómstóla um að hann hafi valdið dauða
kornabarns. Myndin tengist málinu ekki
beint. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SLYS Íslenskur piltur lést í alvar-
legu umferðarslysi á laugardaginn
í Tansaníu í Afríku. Starfsmaður
utanríkisráðuneytisins staðfest-
ir að pilturinn hafi látist en vildi
ekki gefa upp nánari upplýsingar
um málið.
Pilturinn var rétt tæplega tví-
tugur og var á ferð með sænskum
félögum sínum þegar hann lenti
í slysinu. Óhappið átti sér stað í
Arusha í Tansaníu, sem er nærri
hæsta fjalli Afríku, Kilimanjaro.
Orsök slyssins er óljós. Fram
kemur í sænskum fréttum að tvær
jeppabifreiðar hafi skollið saman á
þjóðveginum nærri Kilimanjaro.
- vg
Alvarlegt umferðarslys:
Íslenskur piltur
lést í Tansaníu
EGYPTALAND, AP Saksóknari í máli
Hosní Múbarak, fyrrverandi for-
seta Egyptalands, krafðist þess
í lokaræðu sinni við réttarhöldin
að hann verði
dæmdur til
dauða fyrir að
fyrirskipa lög-
reglu og örygg-
issveitum að
beita vopnum
gegn mótmæl-
endum.
Saksóknar-
inn segir sann-
að að Mubarak
hafi heimilað beitingu skotvopna
gegn óbreyttum borgurum. Sam-
kvæmt opinberum tölum létust
850 í mótmælum í landinu frá 25.
janúar til 11. febrúar í fyrra.
Mótmælunum lauk með því
að Múbarak hraktist frá völdum
eftir að hafa stýrt fjölmennasta
ríki arabaheimsins í nærri 30 ár.
- bj
Réttarhöld yfir Mubarak:
Saksóknari vill
dauðarefsingu
HOSNÍ MÚBARAK
Ökumaður bílsins bakkaði til
að reyna að komast undan
mönnunum, og skaut þá
Kristján úr haglabyssu að
framhluta bílsins en hitti ekki.