Fréttablaðið - 21.02.2012, Qupperneq 4
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR4
STJÓRNSÝSLA Gunnar Andersen, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins (FME),
hefur farið fram á að fá rýmri
frest til þess að andmæla boð-
aðri uppsögn
hans. Lögmaður
Gunnars sendi
stjórn FME bréf
þessa efnis í
gær, þegar rann
út frestur sem
Gunnari hafði
verið gefinn.
Stjórn FME
fu nd að i u m
málið í gær-
kvöld. Fundinum var ekki lokið
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Í bréfi lögmanns Gunnars er
fresturinn sagður almennt of stutt-
ur og andstæður meginreglum
stjórnsýslusaga. Gunnari barst
síðastliðinn föstudag tilkynning
um „hina fyrirhuguðu löglausu
uppsögn“ líkt og segir í bréfinu.
„Andmælafrestur er því aðeins
einn virkur dagur.“
Í bréfinu er kallað eftir þeim
nýju gögnum sem vísað hefur verið
til að byggja eigi á uppsögn Gunn-
ars. Þá er óskað skýrari svara frá
stjórn FME um hvort mál Gunnars
sé enn til rannsóknar. „Ef það er
rétt óskast haldbærar skýringar á
því hvernig hægt er að boða upp-
sögn með löglegum hætti meðan
rannsókn er ekki lokið.“
Eins má ráða af bréfinu það
álit að lagaheimild skorti fyrir
uppsögninni og bent á að í bréfi
stjórnar frá því um helgina sé
vísað til sjötta töluliðar þriðju
greinar stjórnsýslulaga sem laga-
heimildar fyrir henni. „Eins og
kunnugt er fjallar tilvitnuð laga-
grein um sérstakt vanhæfi í
einstökum málum sem getur orðið
þess valdandi að að viðkomandi
stjórnvald þarf að segja sig frá
afgreiðslu tiltekins máls. Gerð er
krafa um að upplýst verði hvort hér
er um innsláttarvillu að ræða og ef
svo er óskast upplýst á hvaða laga-
heimild hugmyndin er að byggja
uppsögnina á komi til hennar.“
Skömmu áður en bréf Gunnars
barst stjórn FME í gær sagði Aðal-
steinn Leifsson, stjórnarformaður
FME, að stjórnin hafi veitt honum
viðbótarfrest eins og þurfa þyki og
kvað það mundu gert áfram bærist
um það beiðni.
Aðalsteinn hafnar því hins vegar
að Gunnari hafi verið veittur
ósæmilega skammur frestur til
andmæla. „Þetta er hluti af ferli
sem staðið hefur yfir lengi og í
því hefur Gunnari Þorsteini verið
gefin tækifæri til að koma á fram-
færi sínum athugasemdum.
Hann hefur fengið til þess
rúman frest og fengið aukinn frest
þegar eftir því hefur verið leitað.
En þessi stutti frestur er gefinn í
ljósi forsögunnar.“
Aðalsteinn segir um leið ljóst
að málinu sé ekki lokið og verði
það ekki fyrr en með ákvörðun
stjórnar FME. „Og hún verður ekki
tekin fyrr en öll gögn liggja fyrir.“
olikr@frettabladid.is
BRÉF TIL STJÓRNAR FME
Síðdegis í gær sendi Skúli
Bjarnason, lögmaður Gunnars
Andersen, forstjóra FME, stjórn
FME bréf þar sem óskað er eftir
rýmri fresti til andsvara vegna
fyrirhugaðrar brottvikningar
Gunnars.
Forstöðumenn ríkisstofnana eru embættismenn og njóta sem slíkir verndar
laga um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna þegar kemur að brottvikningu
úr starfi. Í lögunum er gert ráð fyrir ákveðnu ferli sem fari í gang þegar um
brottvikningu er að ræða þar sem viðkomandi er veitt tímabundin lausn frá
störfum á meðan sérstök nefnd fjármálaráðuneytisins gefur álit sitt á því
hvort tilefni sé til að víkja viðkomandi að fullu úr starfi.
Vernd í lögum
GENGIÐ 20.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,1602
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,62 123,20
194,32 195,26
162,10 163,00
21,803 21,931
21,608 21,736
18,374 18,482
1,5391 1,5481
189,61 190,75
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
hefur birt áætlun um tímasetn-
ingar næstu þriggja gjaldeyris-
útboða sinna í tengslum við afnám
gjaldeyrishafta. Stefnir bankinn
að því að halda útboð 28. mars
næstkomandi, 9. maí og 20. júní.
Í útboðunum kaupir Seðla-
bankinn erlendan gjaldeyri sam-
kvæmt hinni svokölluðu fjárfest-
ingarleið bankans, sem er líka
kölluð 50-50 leiðin, eða í skiptum
fyrir ríkisskuldabréf.
Útboðin ásamt skilmálum
verða auglýst betur síðar. - mþl
Seðlabankinn birtir áætlun:
Gjaldeyrisútboð
á næstu vikum
SEÐLABANKINN Markmiðið með gjald-
eyrisútboðum er að auðvelda losun
gjaldeyrishafta án þess að gengis- eða
fjármálastöðugleika sé stefnt í hættu.
LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögregl-
unnar á tveimur nauðgunarkær-
um á hendur Agli Einarssyni
miðar vel. Að
sögn Björgvins
Björgvinsson-
ar, yfirmanns
kynferðis-
brotadeildar
lögreglunnar
á höfuðborgar-
svæðinu, verð-
ur málið að
öllum líkindum
sent til ákæru-
sviðs á næstu dögum. Frétta-
stofa Vísis greindi frá málinu í
gær.
Kærurnar verða líklega
sendar saman til ríkissaksókn-
ara sem tekur svo ákvörðun
um hvort ákært verði í málinu.
Egill hefur tvívegis verið
kærður fyrir nauðgun á síðustu
mánuðum. - sv
Rannsókn á lokametrunum:
Málin á leið til
ákærusviðs
EGILL EINARSSON
GUNNAR
ANDERSEN
Telja heimild skorta
fyrir starfsuppsögn
Lögmaður Gunnars Andersen, forstjóra FME, fer fram á að vita hvort um inn-
sláttarvillu sé að ræða í rökstuðningi fyrir uppsögn hans. Forstöðumenn stofn-
ana njóta verndar í lögum. Stjórn FME kom saman til fundar í gærkvöldi.
NOREGUR Helge Solum Larsen,
fyrrverandi varaformaður Ven-
stre í Noregi, var útskrifaður af
geðdeild um helgina. Hann var
handtekinn strax í kjölfarið.
Larsen er grunaður um að hafa
nauðgað sautján ára stúlku úr
ungliðahreyfingu flokksins á árs-
fundi Rogalands-deildar hans í
byrjun febrúar. Í kjölfarið sagði
hann af sér og dvaldi á geðdeild.
Hann hefur viðurkennt að hafa
haft samræði við stúlkuna en
segir það hafa verið með hennar
samþykki. - þeb
Stjórnmálamaður í Noregi:
Af geðdeild í
hald lögreglu
HOLLAND Vísindamönnum í Hol-
landi hefur tekist að rækta kjöt
úr stofnfrumum nautgrips. Þeir
stefna að því að kynna í haust
fyrsta hamborgarann, sem
gerður verður úr slíku kjöti.
Það er ónafngreindur dýravin-
ur sem hefur styrkt rannsókn-
irnar, sem munu kosta um 250
þúsund evrur, jafnvirði um 40
milljóna króna.
Með þessu vill hinn fjársterki
dýravinur leggja sitt af mörk-
um til þess að færri dýr verði
drepin til að útvega mannkyn-
inu fæðu, og jafnframt draga
úr útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda sem fylgir dýrahaldi.
- gb
Dýravinur styrkir rannsóknir:
Vísindamenn
búa til kjöt
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
6°
4°
7°
7°
4°
5°
5°
19°
12°
12°
9°
25°
1°
8°
18°
1°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FIMMTUDAGUR
8-13 m/s.
13
6
4
4
0
0
-1
-1
-2
1
2
3
7
8
109
8
7
4
7
5
3
0
0
3
3
2
0
0
4
3
2
LÆGÐIR verða
viðloðandi landið
næstu dagana með
tilheyrandi úrkomu.
Vindur verður yfi r-
leitt ekki mjög
mikill nema þá
helst við strendur
landsins, einkum
suðurströndina.
Úrkoman verður
yfi rleitt slydda
eða snjókoma en
rigning syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SÝRLAND, AP Stjórnvöld í Sýrlandi
hafa sent liðsauka að borginni
Homs, sem verið hefur höfuðvígi
uppreisnarmanna í landinu und-
anfarna mánuði. Það þykir benda
til þess að linnulausum sprengju-
árásum á borgina verði fylgt eftir
með innrás hersins, á sama tíma
og Rauði krossinn reynir að koma
á vopnahléi í landinu.
Uppreisnarmenn í Baba Amr-
hverfinu í Homs heita því að berj-
ast til síðasta blóðdropa komi til
innrásar stjórnarhersins í borg-
ina. Ástandið í hverfinu er sagt
afar alvarlegt eftir sprengjuárásir
hersins, en fjölmiðlafólki er mein-
að að kynna sér ástandið á átaka-
svæðunum.
„Mannfallið verður gríðarlegt ef
herinn reynir að taka Baba Amr,“
segir Rami Abdul-Rahman, for-
mælandi breskra mannréttinda-
samtaka sem láta sig ástandið í
Sýrlandi varða. Hann segir að átta
hafi látist í árásum hersins í gær.
Talsmaður Rauða krossins í
Genf sagði í gær viðræður í gangi
við stjórnvöld í Sýrlandi um tíma-
bundið vopnahlé til að koma nauð-
þurftum til almennings á átaka-
svæðunum.
Stjórnarherinn virðist nú stefna
á að gera innrás í Homs áður en
þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja
stjórnarskrá fer fram um næstu
helgi. Uppreisnarmenn hafa gagn-
rýnt þjóðaratkvæðagreiðsluna, og
segja fyrirhugaðar breytingar
einskis virði.
„Við hvetjum fólk til að hafa
þjóðaratkvæðagreiðsluna að
engu, það er ekki hægt að ganga
til atkvæða þegar stríðsátök eru
í landinu,“ segir Omar Idilbi,
talsmaður þjóðarráðs Sýrlands,
búsettur í Beirút.
- bj
Stjórnvöld í Sýrlandi senda skriðdreka og fótgöngulið að borg sem orðin er höfuðvígi uppreisnarmanna:
Rauði krossinn reynir að koma á vopnahléi
FALLINN Fallinn uppreisnarmaður sést
borinn til grafar á mynd sem uppreisnar-
menn í Sýrlandi hafa sent fjölmiðlum.
Blaðamenn og ljósmyndarar fá ekki að
koma til landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP