Fréttablaðið - 21.02.2012, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 2012 11
KJARAMÁL Alls 63 kjaradeilum var
vísað til ríkissáttasemjara á árinu
2011. Aðeins einu sinni hefur fleiri
málum verið
vísað til embætt-
isins á einu ári.
Þetta er meðal
þess sem fram
kemur í árs-
skýrslu ríkis-
sáttasemjara
fyrir árið 2011.
Auk þeirra mála
sem vísað var
til embættisins
voru fjórar óleystar deilur á borði
þess í upphafi ársins. Því voru alls
67 kjaradeilur teknar til meðferðar
hjá ríkissáttasemjara árið 2011.
Í deilunum 67 voru samning-
ar síðar felldir í atkvæðagreiðslu
í einungis fimm tilfellum. Deil-
urnar leystust þó allar síðar á
árinu með samþykktum samningi.
Stærstum hluta málanna lauk með
samþykktum samningi í fyrstu til-
raun eða alls 52 málum. Önnur mál
voru leyst með sérstöku samkomu-
lagi, samningum án beinnar aðildar
sáttasemjara eða þá að málin voru
dregin til baka eða talin ótæk til
sáttameðferðar.
Á síðustu tíu árum hefur fjöldi
mála sem vísað er til embættisins
ekki farið yfir 40 mál utan ársins í
fyrra. Árin 2000 og 2001 var hins
vegar 44 málum og 53 málum vísað
til embættisins. Árið 1997 var aftur
á móti hið annasamasta í sögu emb-
ættisins en þá var 101 máli vísað til
þess. - mþl
Aðeins einu sinni hefur fleiri málum verið vísað til ríkissáttasemjara en árið 2011:
Annasamt ár hjá ríkissáttasemjara
VIÐSKIPTI Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismál hefur staðfest
ákvörðun Samkeppniseftirlits-
ins um að sekta Langasjó um 80
milljónir króna.
Langisjór er móðurfélag Síldar
og fisks og Matfugls. Samkeppnis-
eftirlitið sektaði fyrirtækið í
nóvember vegna ólöglegs samráðs
um smásöluverð Bónuss og afslátt
frá því. Áfrýjunarnefndin segir
brotin varða umfangsmikil við-
skipti og að með hliðsjón af heild-
arveltu Langasjávar telji hún ekki
efni til að hrófla við ákvörðun um
fjárhæð sektar. - óká
Brutu lög með samráði:
80 milljóna sekt
er látin standa
Í BÓNUS Neytendur voru blekktir
í tengslum við forverðmerkingar á
kjötvörum, segir Samkeppniseftirlitið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MAGNÚS
PÉTURSSON
kjaramálum var
vísað til ríkis-
sáttasemjara á
síðasta ári.
67
Áhrif flugs
á Íslandi
Hafa flugsamgöngur meiri áhrif á eyríki langt úti í Atlantshafi en ríki á meginlandi
Evrópu? Hver eru áhrif flugs á Íslandi? Að undanförnu hefur hið þekkta
rannsóknarfyrirtæki Oxford Economics unnið að úttekt á efnahagslegum
áhrifum flugstarfsemi í 55 löndum um allan heim í samstarfi við IATA,
Alþjóðasamtök flugfélaga. Nú er skýrslan um Ísland komin út og á fundinum
verða athyglisverðar niðurstöður hennar kynntar undir fundarstjórn hinnar
góðkunnu sjónvarpskonu Þóru Arnórsdóttur.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Efnahagslegur ábati af flugrekstri á Íslandi
Kynning á niðurstöðum skýrslu Oxford Economics
Julie Perovic, hagfræðingur IATA
Pallborðsumræður um efni skýrslunnar
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og atvinnumálaráðherra
Pétur K. Maack, flugmálastjóri
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Fáið nýjustu upplýsingar um samgöngumál á Íslandi beint í æð.
Vinsamlega skráið þátttöku á info@saf.is. Aðgangur er ókeypis.
Morgunverðarfundur á Hilton Reykjavík Nordica,
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 8:30-9:45.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
5
83
54
0
2/
12
SAMGÖNGUR Stéttarfélagið Fram-
sýn á Húsavík telur mikilvægt
að framkvæmdir við Vaðlaheið-
argöng hefjist hið fyrsta. Það
sé í ljósi þess að fullnægjandi
gögn um kostnað og rekstur
ganganna liggi fyrir og að fram-
kvæmdin verði fjármögnuð með
veggjöldum.
Fram kemur í ályktun frá
félaginu að gerð ganganna skipti
gríðarlega miklu máli fyrir veg-
farendur um þjóðveg 1, þjónustu-
svæðið við Eyjafjörð og atvinnu-
uppbyggingu í Þingeyjarsýslum.
Þá gagnrýnir félagið „óvandað-
an og órökstuddan málaflutning“
í kringum framkvæmdina. - sv
Framsýn á Húsavík ályktar:
Stéttarfélag vill
göng sem fyrst
Byggingarvísitala hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar um
miðjan febrúar hækkaði um 1,6
prósent frá fyrra mánuði. Verð á inn-
fluttu efni hækkaði um 3,2 prósent,
en á innlendu efni um 0,6 prósent.
Vinnuliðir hækkuðu um 1,7 prósent
vegna samningsbundinna hækkana.
Þetta kemur fram hjá Hagstofu
Íslands.
EFNAHAGSMÁL
Fjöltengi hafði ofhitnað
Allt tiltækt slökkvilið var sent að
Sendibílastöðinni hf. við Klettagarða
í gærmorgun vegna reyks. Þegar
slökkvilið kom á staðinn var enginn
eldur laus heldur hafði fjöltengi
ofhitnað svo að rauk úr.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Hópur ungmenna
réðst á ungan mann fyrir utan
verslun við Arnarbakka í Breið-
holti í gærkvöldi.
Ungmennin munu hafa haft í
hyggju að innheimta skuld vegna
fíkniefna af unga manninum sem
ráðist var á.
Þegar lögregla kom á staðinn
var hópurinn flúinn af vettvangi,
en sá sem ráðist var á var fluttur
á slysadeild til aðhlynningar.
Hann hlaut einhverja áverka en
var ekki alvarlega slasaður.
- þeb
Hópur ungmenna í Breiðholti:
Réðust á mann
vegna skuldar
BÓLUSETT Þetta indverska barn fékk
bóluefni gegn lömunarveiki hjá sjálf-
boðaliða. Gríðarlegur árangur hefur
náðst í baráttunni við sjúkdóminn.
NORDICPHOTOS/AFP