Fréttablaðið - 21.02.2012, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 2012 13
Unglingar í Reykjavík sýna okkur á hverjum degi hvað
þeir eru frábærir. Þeir bæta sig í
námi ár frá ári, þeir eru skapandi
og meðvitaðir. Þeir segja nei við
vímugjöfum og vekja athygli um
heim allan fyrir stöðugar fram-
farir þegar kemur að heilbrigðu
líferni. Þeir eru langflestir í
skipulögðu frístundastarfi utan
skóla. Unglingar í Reykjavík eiga
skilið bestu hugsanlegu tækifæri
til náms og félagsstarfs. Það er
okkar að tryggja það.
Hjartað í skólastarfinu
Okkur í meirihluta borgarstjórn-
ar þykir vænst um það sem stund-
um er nefnt hjartað í skólastarf-
inu, verkefni sem styrkja innra
starf skólanna, skólastarfið sjálft.
Þangað á fjármagnið að fara. Við
viljum skapa svigrúm til fag-
legrar uppbyggingar. Ábyrgir
stjórnmálamenn velja þá leið sem
kemur sér best fyrir börn og ung-
linga. Allar breytingar reyna á
en það skiptir mestu fyrir börn
og unglinga að þær gangi vel. Við
undir búning breytinga höfum við
hlustað á áhyggjur og óskir ung-
linganna. Uppbyggileg gagnrýni
og vel ígrundaðar ábendingar ung-
linganna hafa gert mikið gagn.
Þær lúta að samgöngum, félags-
starfi, kennsluháttum, náms-
framboði, námsmati og hvern-
ig skapa megi góðan skólabrag í
nýrri, sameinaðri unglingadeild.
Unglingar vilja bestu mögu-
lega menntun fyrir framtíðina.
Þeir leggja áherslu á að kennar-
ar á unglingastigi séu sérhæfðir
í sínum kennslugreinum. Þeim
er líka annt um lýðræði og vilja
sameiginlegt unglingaráð svo
raddir allra heyrist í nýju skóla-
samfélagi. Það er okkar verkefni
að koma til móts við þessar óskir.
Og það hefur gengið vel.
Breytingar
Haustið 2010 hóf Reykjavíkurborg
skipulagsbreytingar í skóla- og frí-
stundastarfi sínu. Ástæðan var ein-
föld. Mikið hafði verið skorið niður
í innra starfi skóla og mat fagfólks
að þolmörkum væri náð. Undir-
búningur var viðamikill með við-
tölum við rúmlega 100 stjórnendur,
hverfafundir og rýnihópar skóla-
fólks og foreldra skoðuðu leiðir til
hagræðingar. Unnið var
út frá einfaldri forsendu:
Ef breyting á skólastarfi
er til góðs fyrir börnin,
unglingana, skólastarf-
ið og borgarsjóð, skyldi
hún skoðuð með opnum
huga.
Þegar farið var yfir
ábendingar var áberandi
hve margir sáu ókosti
við fámennar unglinga-
deildir. Því samþykkti
borgarstjórn breytingar
í sunnanverðum og norð-
anverðum Grafarvogi,
sem og í skólahverfi
Hvassaleitis.
Nemendafækkun
hefur verið nokkuð jöfn
í Grafarvogi á undan-
förnum árum og fyrirséð að svo
verði áfram. Í Hamra- og Húsa-
skóla eru mjög fámennar ung-
lingadeildir með aðeins rúmlega
150 unglingum samtals í þremur
efstu bekkjum. Fjölmörg fagleg
rök styðja sameiningu svo lítilla
unglingadeilda. Þannig má skapa
fjölbreyttari valgreinar fyrir ung-
lingana, efla fagþekkingu kenn-
ara og aðra sérþekkingu sem teng-
ist aldurshópnum, efla samvinnu
kennara, styrkja félagslíf og ung-
lingamenningu. Til verður öflugri
skóli með fleiri tækifærum fyrir
unglinga til að blómstra og rækta
sína hæfileika.
Hagræðing í umgjörð
eða innra starfi?
Á síðustu þremur árum hafa
sveitarfélögin í landinu hagrætt
um 12 milljarða króna í skóla-
og frístundastarfi. Í Reykjavík
var haustið 2010 komið að sárs-
aukamörkum þess að skera frek-
ar niður í innra starfi skólanna.
Því var farin sú leið að horfa til
breytinga á skólagerðum, stjórnun
og ytra skipulagi skóla. Leik-
og grunnskólar í borginni eru
fámennir samanborið við stærstu
sveitarfélög landsins. En íbúar
krefjast þess að þeir njóti hag-
kvæmni stærðarinnar. Hér verð-
ur því að leita jafnvægis og horfa
á heildarmyndina.
Bestu lausnirnar eru þær sem
sameina faglegan metnað okkar
fyrir hönd skólastarfs barna og
unglinga í Reykjavík og draga
jafnframt úr rekstrarkostnaði.
Einungis þannig getum
við haldið áfram að efla
okkar góða skólastarf.
Þessi leið er ekki hafin
yfir gagnrýni, en við
vorum ekki kosin til að
velja auðveldustu leið-
ina.
Á þessu ári nemur
ávinningur af rekstrar-
hagræðingu í skólastarfi
tæplega 140 milljónum
króna, en mun aukast
þegar breytingarnar
eru að fullu komnar til
framkvæmda á næsta
ári. Þetta eru töluverðir
fjármunir sem skila sér
strax til innra starfs
skólanna næstu árin: til
þróunarverkefna, bóka-
safna, mötuneyta, búnaðarkaupa
og margs fleira sem setið hefur á
hakanum undanfarin ár.
Við vitum hvað við höfum
en ekki hvað við fáum
Við höfum sterka sannfæringu
fyrir því að nemendum farnist
betur í stærra samfélagi unglinga.
Sú sannfæring byggir á reynslu,
mati og úttektum og við deilum
henni með reynslumiklum skóla-
stjórum og kennurum, en líka for-
eldrum. Unglingarnir sjálfir sýna
fram á að þeim líður vel í stærra
samfélagi jafnaldra sinna, mæl-
ingar á líðan, einelti og námsár-
angri benda til þess. Áhyggjur
foreldra eru engu að síður skiljan-
legar. Fæstir eru hrifnir af breyt-
ingum á námsumhverfi barna
sinna. En reynslan sýnir okkur,
hér heima sem og erlendis, að fag-
legt starf er í engri hættu. Breyt-
ingarnar þurfa hvorki að leiða til
verri líðunar nemenda né slakari
námsárangurs og geta þvert á móti
haft áhrif til góðs.
Ég tel að við verðum öll að setja
börnin okkar og unglingana í for-
gang og leggjast á eitt til að sá góði
undirbúningur að breytingunum
gangi eftir og nýtist sem best. Það
er best fyrir börn og unglinga í
Reykjavík.
Unglingar í Reykjavík
eiga það besta skilið
Fjölmiðlar hafa nýlega fjallað um lán sem íslenskir bankar
veittu til kaupa á eigin bréfum á
árunum fyrir bankahrun.
Lán sem óskyldur aðili veitir
til kaupa á hlutabréfum í banka
hefur engin áhrif á eignir eða
skuldir bankans. Ef bankinn lánar
til kaupanna gegnir allt öðru máli.
Kaupandinn fær peningana að
láni úr bankanum og borgar selj-
anda. Peningarnir færast úr bank-
anum í hendur seljanda.
Eignahlið bankans rýrnar sem
nemur lánsupphæð nema eðlileg
veð séu tekin í ótengdum eignum
kaupanda sem hlaut lánið.
Lán banka til kaupa á eigin
bréfum án eðlilegra veða í ótengd-
um eignum minnka eignirnar
sem eru til skiptanna fyrir alla
kröfuhafa bankans og veikja þar
með eiginfjárgrunn. Lánþegi fær
hlutabréf gegn engu endurgjaldi
á kostnað allra annarra kröfu-
hafa, bæði lánardrottna og hlut-
hafa. Lánþegi nýtur hagnaðar ef
vel gengur en tekur ekki á sig tap,
tapið lendir á öðrum kröfuhöfum.
Lán banka til útvaldra aðila
sem kaupa hlutabréf bankans
fyrir andvirði lánsins án þess að
bankinn taki eðlileg veð í ótengd-
um eignum er því augljóslega
fjárdráttur, bankinn greiðir fyrir
bréfin án endurgjalds frá lánþega.
Lánþegi eignast hlutabréf á kostn-
að annarra kröfuhafa.
Stjórnendur banka sem lána
útvöldum án eðlilegra veða í
ótengdum eignum til kaupa á
hlutabréfum á sama tíma og þeir
afla bankanum fjár stunda einn-
ig fjárdrátt nema þeir geri grein
fyrir rýrnun eigna bankans sem
samsvarar veðlausa láninu. Ef
stjórnendur banka sem skráður
er á markað gera ekki grein fyrir
eignarýrnun í uppgjöri bankans
þá hindra þeir einnig eðlilega
verðmyndun með hlutabréf og
skuldabréf bankans.
Lán banka til útvaldra innherja
til kaupa á bréfum bankans án
eðlilegra veða í ótengdum eign-
um getur því eftir atvikum falið
í sér fjárdrátt, fjársvik og jafnvel
fleiri brot.
Banki getur ekki tekið fullt veð
í eigin bréfum ef hann lánar til
kaupa þeirra þó þau gangi kaup-
um og sölum á markaði. Bréfin
rýrna strax og þau eru keypt með
láni frá bankanum því þá stendur
minna eftir í bankanum.
Upplýstur kaupandi kaupir þau
aldrei nema á lægra verði, veðið
er ófullnægjandi.
Banki getur keypt upp kröfu á
sjálfan sig samkvæmt lögum, sam-
þykktum bankans og samningum
við lánadrottna, til dæmis með
kaupum á eigin hlutabréfum. En
þá fellur krafan niður. Ef útvaldir
innherjar fá lán án eðlilegra veða
í ótengdum eignum og kaupa upp
kröfu á banka frá þriðja aðila og
krafan stendur eftir í nafni hinna
útvöldu eignast þeir kröfu á bank-
ann með peningum bankans án
þess að hafa lagt nokkuð fram.
Slíkt er í besta falli gjafagjörn-
ingur á kostnað annarra kröfu-
hafa bankans og í versta falli fjár-
dráttur.
Allar sömu röksemdir gilda ef
útvaldir fá lán án eðlilegra veða í
ótengdum eignum til að greiða upp
lán frá óskyldum aðilum sem hvíla
á bréfum hinna útvöldu. Peningar
bankans renna þá úr bankanum til
fyrri lánveitenda. Útvaldir „eig-
endur“ bréfanna halda eftir bréf-
unum án þess að hafa lagt nokkuð
fram, aðrir kröfuhafar bankans
borga.
Fyrir utan hugsanleg lagabrot
standast lán banka til kaupa á
eigin bréfum engin rök. Banki
getur ekki lánað með veði í kröfu
á sig sjálfan.
Það er ekki hægt, bankinn getur
aldrei innheimt sjálfan sig.
Forgangskrafa banka (lán) til
kaupa á víkjandi kröfu í sjálfum
sér (hlutabréf) án eðlilegra veða
í ótengdum eignum stenst engin
lögmál bókhalds, viðskipta- eða
hagfræði. Hún er jafn fáránleg og
ávísun á kanínu í tómum hatti.
Ávísun á tóman hatt
Menntamál
Oddný S
turludóttir
borgarfulltrúi og
formaður skóla- og
frístundaráðs
Við höfum
sterka sann-
færingu
fyrir því að
nemendum
farnist
betur í stærra
samfélagi
unglinga.
Fjármál
Sveinn
Valfells
eðlisfræðingur og
hagfræðingur
Fyrir utan hugs-
anleg lagabrot
standast lán banka til
kaupa á eigin bréfum
engin rök.
* Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar.
Komdu í kaffi á
greiðslukjörin
nýttu verðmætin
í gamla bílnum
við kaupum hann
kaupir þú nýjan
milli kl. 9 og 17
skoðaðu
Komdu í kaffi og spjallaðu við okkur. Segðu okkur
hvað þú ert að pæla og við finnum örugglega
hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
Notaðu sérþjónustu atvinnubíla Ford
Verð með vsk. frá 5.990.000 kr. (áður 6.590.000 kr.)
FordTransit 8-9 sæta
fyrir leigubílstjóra / bílaleigur
FordTransit 14-18 sæta
fyrir hópferðaleyfishafa
FordTransit 6 sæta
með palli, fyrir vinnuflokka
Verð án vsk. frá 4.772.908 kr. (áður 5.250.996 kr.)
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 | ford.is
FordTransit
Stilltu klukkuna að kvöldi og þú
byrjar daginn heitur að morgni.
Tímastillanleg olíumiðstöð er
staðalbúnaður í Transit. Vertu í
hópi þeirra bestu. Kauptu Ford.
Standard heitur alla morgna
Verð án vsk. frá 3.338.645 kr. (áður 3.577.690 kr.)
Ford Transit sendibíll
Ford Transit Connect sendibíll
Verð án vsk. frá 2.382.470 kr. (áður 2.541.833 kr.)
Verð með vsk. frá 4.190.000 kr. (áður 4.490.000 kr.)
Verð með vsk. frá 2.990.000 kr. (áður 3.190.000 kr.)
Ford Transit fjórhjóladrifinn (AWD) sendibíll
300.000 kr. lækkun
600.000 kr. lækkun
200.000 kr. lækkun