Fréttablaðið - 21.02.2012, Side 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Sólarljós er mesti skaðvaldurinn þegar kemur að
hrukkumyndun en húðlæknar áætla að allt að 90
prósent þeirra húðbreytinga sem fólk telur að séu
vegna öldrunar séu í raun tilkomnar vegna skemmda
af völdum sólarljóss.
Kvenleikinn
uppmálaður
B
ikiní Fitness snýst um stæltan en ofur
kvenlegan vöxt, þannig að fegurð kvenlík-
amans fái notið sín til hins ítrasta,“ segir
Kristbjörg þar sem hún ræktar sinn eigin
kropp og annarra í Laugum.
Fram undan er WBFF-heimsmeistaramót í
Tórontó í ágúst þar sem Kristbjörg keppir í fyrsta
sinn við atvinnumenn í Bikiní Fitness.
„Það verður mjög spennandi, en ég þurfti
lítið að hafa fyrir atvinnumannakortinu,“
segir hún hlæjandi og vísar til þess þegar
Paul Dillett, heimsfrægur vaxtarræktar-
maður og stofnandi World Bodybuilding
and Fitness Federation (WBFF) sá hana
í ræktinni þegar hann kom til Íslands í
vetur.
„Þá leist honum svona ljómandi vel á
mig að hann vatt sér upp að mér í tækja-
salnum og bauð mér atvinnumannakort á
staðnum,“ segir hún brosmild.
Kristbjörg fékk ung áhuga á hreysti og
hreyfingu. Hún æfði fótbolta á Álftanesi
frá níu ára aldri, en fór að halla sér meira
að líkamsrækt í tækjasal þegar nálgaðist
tvítugt.
„Mér fannst strax gaman að rækta líkam-
ann með lóðum en smitaðist af fitness-bakt-
eríunni þegar besta vinkona mín keppti í
fitness vorið 2010,“ segir Kristbjörg sem
mætti sjálf til keppni um haustið sama ár og
lenti í öðru sæti á bikarmóti IFBB.
En hvað kostar að komast í svo glæsilegt
bikiníform?
„Miklar æfingar og hollt mataræði. Fit-
ness er lífsstíll sem útheimtir mikinn sjálf-
saga og viljastyrk, og getur verið mjög erf-
iður andlega og líkamlega. Ég æfi sex til tólf
sinnum í viku og hef einn hvíldar- og nammi-
dag, en borða hina dagana hollan kost sex sinn-
um á dag. Þá passa ég vel upp á skammtastærðir
og hef vanið mig á að borða hægt og rólega,“ upp-
lýsir Kristbjörg sem á næstu dögum opnar sína eigin
fjarþjálfunarsíðu.
Hún segir sjálfstraust sitt hafa aukist í takt við æ
betra líkamsform og því fylgi mikil vellíðan.
„Jú, jú, auðvitað er maður öruggur með sig á bik-
iníi á sundlaugarbakkanum, en ég velti því minna
fyrir mér eftir að fitness varð lífsstíll. Nú finnst
mér ekkert eðlilegra en að vera í fínu formi,
þótt ég sé alls ekki í keppnisformi allan ársins
hring. Slíkt er beinlínis óhollt því þá getur
maður ekki leyft sér neitt og það verður
leiðinlegt til lengdar. Líkamsrækt verður
einfaldlega að vera skemmtileg.“
thordis@frettabladid.is
Einkaþjálfarinn Kristbjörg Jónasdóttir keppir á WBFF-
heimsmeistaramóti í Bikiní Fitness í Kanada í ágúst.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
STÓR FLOTTUR
teg MAGGIE - með sérstaklega gott hald fyrir þung
brjóst, fæst frá 36-42 í skálum E,F,FF,G,GG,H,HH,J,JJ á
kr. 10.985,- glæsilegar buxur frá M-4xl á kr. 4.750,-
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Sundfatnaður
- ný sending komin
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Hæðasmára 6 | Hafnarborg
Lífræn ofurfæða
frá Naturya
Ofurfæða er það sem allir eru að tala um þessa dagana enda
er hún einstaklega rík af andoxunarefnum, vítamínum og
steinefnum. Fólk hefur notað ofurfæðu frá örófi alda til að
viðhalda hraustleika og heilsu.
Tilvalið í þeytinginn,
grautinn og baksturinn.
Nýtt
20%
afsláttur
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48
rautt st. 36-42
blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt
36-42
Verona
svart, hvítt
st. 36-41
Bari
leður
rautt, sand, blátt
st. 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og
rúskinnssóla
st. 36-42