Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 20
Á Heilsuhótelið er mjög gott að koma til að ná kröftum og hvíla sig. Þar er virki-
lega góður andi sem ég get mælt
með fyrir alla. Andrúmsloftið
er notalegt og mjög gott að byrja
árið á því að fara í tveggja vikna
dvöl,“ segir Bjarni Óskarsson, eig-
andi Nings. Hann gerir þó fleira en
njóta þjónustu Heilsuhótelsins en
hann kynnir notkun hveitigrass
og fræðir gesti um ýmsa hollustu.
Sjálfur drekkur hann hveitigras-
safa á hverjum degi og segir
hann allra meina bót.
„Hveitigrasið hefur mikinn
lækningamátt. Það er fyrirbyggj-
andi gagnvart ýmsum kvillum
og sjálfur finn ég mikinn mun
á mér eftir að ég fór að drekka
hveitigrassafa reglulega. Líkam-
inn tekur upp súrefnið í blaðgræn-
unni og gefur innra súrefni í frum-
urnar. Hann er einfaldlega allra
meina bót,“ segir Bjarni.
Hveitigras er ræktað upp af
fræinu sem verður eftir þegar
hveitið er þreskt (fræi hveiti plönt-
unnar). Fræið er látið liggja í bleyti
yfir nótt og svo sáð í mold. Við góð
skilyrði vex það upp á þremur til
fjórum sólarhringum. Þegar gras-
ið hefur náð tíu sentimetra hæð er
það klippt. Grasið hentar þó ekki
til átu.
„Það nást engin næringarefni úr
hveitigrasi með því að tyggja það
beint enda er það mjög hart og stíft
og getur verið beinlínis varasamt
fyrir meltinguna,” útskýrir Bjarni.
„Það verður að pressa úr því saf-
ann í sérstakri hveitigraspressu.
Safann er einnig hægt að nota út-
vortis, bera hann á andlit en þá
þarf að varast sólarljós meðan
grasið er á andlitinu,“ segir Bjarni.
Heilsuhótelið sækir ólíkur
hópur fólks. Margir koma aftur
og aftur . Þá hefur erlendum
gestum fjölgað, aðallega frá
Norðurlöndunum og eru þar Fær-
eyingar, Norðmenn og Danir
fjölmennastir.
Stefnt er á að bjóða upp ís-
lenskt hráefni og einnig lífrænt í
auknum mæli á Heilsuhótelinu
og hefur Bjarni tekið þátt í þeirri
uppbyggingu. „Auðvitað er ekki
allt grænmeti alltaf fáanlegt á Ís-
landi. Svo ég fór ásamt starfs-
fólki Heilsuhótelsins og heimsótti
garðyrkjubændur, meðal annars á
Akri og á Engi með samstarf í huga
enda skipta gæði hráefnis miklu
máli þegar fólk borðar eingöngu
grænmeti, súpur, safa og ávexti,“
útskýrir Bjarni.
„Við það að borða þetta fæði í
viku til hálfan mánuð verður fólk
svolítið orkulaust meðan á því
stendur, en það er svo skrítið að
maður finnur ekki fyrir svengd.
Þetta er svo einfalt þegar fólk er í
þessu saman. Svo fyllist maður
krafti þegar maður er búinn. Lík-
aminn fer að lækna sig sjálfur
innan frá við þetta. Það er alveg
ótrúlegt hvernig alls konar kvill-
ar hafa læknast hjá fólki við dvöl á
hóteinu. Ég kannast sjálfur við það.
Þarna eru engar freistingar og ekk-
ert sem truflar. Það er gott að fara
út úr hversdagslegri rútínu og eitt-
hvert þar sem maður er varinn fyrir
sjálfum sér,“ segir Bjarni glettinn.
En hvað tekur þá við eftir dvölina?
„Þá fer maður bara beint á
Nings, „segir Bjarni og hlær en
bætir svo við að gestir hótels-
ins fái bæði leiðsögn og kennslu
um framhaldið. „Á hótelið koma
margir fyrirlesarar sem kenna
hvað á að gera þegar dvölinni
lýkur. Ásdís Ragna grasalæknir
fjallar um meðferðina, Dr. Haukur
Ingi Jónasson hefur fjallað um
heilsu út frá huglægum þáttum
auk fjölda annarra fyrirlesara. Þá
hef ég sjálfur verið að miðla fróð-
leik um hveitigrasið. Þá hef ég líka
kynnt önnur heilsu spa sem ég hef
heimsótt erlendis meðal annars í
Taílandi, Póllandi og Púerto Ríkó.
Í samanburði finnst mér Heilsu-
hótelið standa sig virkilega vel.
Það er líka þægilegt að geta verið
með bílinn og skjótast í sund til
Keflavíkur,“ útskýrir Bjarni en
segir ekkert um að gestir stingi
af? „Mín helsta synd hefur verið
að kaupa mér epli í Nettó,“ segir
hann og hlær.
„Þarna eru allir á sömu for-
sendum og gestir njóta stuðnings
af hver öðrum. Svo kynnist fólk á
allt annan hátt og miklu dýpra en
annars á svona stað. Þarna verða
til vináttusambönd sem endast
löngu eftir að dvölinni lýkur.“
Heilsuhótelið orkugjöf fyrir alla
Bjarni Óskarsson, eigandi Nings, hefur notfært sér Heilsuhótelið í Reykjanesbæ. Hann segir það allra meina bót og einstaklega gott að byrja nýtt ár
með tveggja vikna dvöl á hótelinu. Þá drekkur Bjarni hveitigrassafa á hverjum degi og stendur fyrir kynningum á hveitigrasi á Heilsuhótelinu.
Bjarni Óskarsson, eigandi Nings, hefur góða reynslu af Heilsuhótelinu og drekkur hveitigrassafa sér til heilsubótar. MYND/VALLI
Kynning - auglýsing
Hveitigras hefur mikinn lækningamátt. Það
er fyrirbyggjandi gagnvart ýmsum kvillum
og sjálfur finn ég mikinn mun á mér eftir að ég fór
að drekka hveitigrassafa reglulega.
Heilsunámskeið (detox) tvær
vikur
2.-16. mars örfá pláss laus
30. mars -9. aprí uppselt
4.-18. maí
1.-15. júní
Munið að panta tímanlega
Heilsuhelgi – skóli lífsins
16.-18. mars uppselt
18.-20. maí
Tilboðsverð, 2 fyrir 1, 45.000
helgin.
Fæði, hreyfing og fræðsla innifalin
Slökun og skemmtilegur tími.
Hættum að reykja
Helgarnámskeið 23.-25. mars
Fyrir krakka
18.-22. júní, mánudag–föstudags
Töfrar og framsögn 9-14 ára.
Skráning stendur yfir.
Sumarið 2012 – opnir dagar
Frá 22. júní-27. ágúst 2012.
Val um 3, 4, eða 7, 14 daga.
Aðgengi að Heilsulind. Bláa lónið.
Hollt og gott fæði, fræðsla og
hreyfing.
Spennandi og uppbyggilegur
valkostur fyrir alla.
Kynnist þessu einstaka hóteli.
Heilsuhótel Íslands - næstu námskeið
Starfsfólk Heilsuhótels Ísland býður gesti velkomna.
HEILSUSAMLEG SAMVINNA
NOREGUR – ÍSLAND
Heilsuhótel Íslands og Tunsberg Medisinske Skole hafa gert með sér
samkomulag um starfsþjálfun útskriftarnemenda skólans en hann er
stærsti einkarekni skóli á sviði heilsu og næringar í Noregi. Alls koma 28
nemendur frá skólanum á Heilsuhótelið á árinu 2012 en þeir eru að ljúka
5 ára námi á sviði næringar og ráðgjafar.
Norsku nemendurnir munu veita gestum ráðgjöf og koma með
ábendingar sem munu nýtast gestum hótelsins og auka fræðilega þekk-
ingu gesta. Þá munu nemendur taka þátt í starfi hótelsins meðal annars
með auknu kynningar- og markaðsstarfi Heilsuhótels Íslands í Noregi á
komandi árum. Fyrsti hópurinn er væntanlegur í mars og síðan kemur
nýr hópur mánaðarlega allt árið.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
www.heilsuhotel.is
heilsa@heilsuhotel.is
Sími 5128040