Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 23
KYNNING − AUGLÝSING Kassakerfi & sjóðsvélar21. FEBRÚAR 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3
Optima að Vínlandsleið 6-8 hefur verið starfað á Ís-landi í tæp sextíu ár en fyr-
irtækið var stofnað árið 1953. Fyr-
irtækið leggur áherslu á sölu á ljós-
ritunartækjum, rekstrarvörum,
skjalaskápum, talningarvélum
fyrir seðla og mynt, öryggiskápum
og hugbúnaðarlausnum. Allt þetta
kemur frá viðurkenndum aðilum
á borð við Ricoh, Xerox, Rosen-
grens, Secureline, Scan Coin og
Bisley.
Hágæða kassakerfi frá þýsku
gæðafyrirtæki
„Wincor Nixdorf er stórt fyrirtæki
í Þýskalandi sem tilheyrði áður
Siemens Nixdorf en fyrirtækinu
var síðar skipt upp, annars vegar
í Wincor Nixdorf og hins vegar í
Siemens.
Tækin frá Wincor Nixdorf eru
framleidd með langan endingar-
tíma í huga og eru mjög vönduð í
alla staði, enda brýnt að til dæmis
kassakerfi séu örugg í notkun þar
sem notendur vilja ekki lenda í
vandræðum í miðri sölu,“ segir Lúð-
vík Andreasson, sölustjóri kassa-
kerfa hjá Optima.
Að hans sögn er hægt að fá Win-
cor Nixdorf kassakerfin í nokkr-
um útfærslum eftir fyrirhugaðri
notkun; sem sambyggðan snert-
iskjá og tölvu og svo sem sjálfstæð-
an snertiskjá og sjálfstæða tölvu.
„Það síðarnefnda hentar til dæmis
fyrirtækjum sem selja matvöru og
nota vigtarskanna,“ útskýrir hann
og getur þess að hægt sé að velja um
nokkrar ólíkar gerðir strikamerkja-
lesara, prentara, kortalesara, skúff-
ur og fleiri fylgihluti eða allt eftir
þörfum hvers og eins.
Notum hugbúnað frá íslenskum
fyrirtækjum
„Wincor Nixdorf kassakerfin keyra á
flestum af þeim íslenska hugbúnaði
sem boðinn er á markaðnum í dag,“
bendir Lúðvík á og bætir við að Op-
tima eigi nú í viðskiptum við mörg
af fremstu hugbúnaðarfyrirtækj-
um landsins. „Hugbúnaðarkerfin
eru misjöfn, allt frá því að vera mjög
einföld og upp í að bjóða birgðahald
og viðskiptamenn en það er ákvörð-
un viðskiptavina okkar hvers konar
kerfi þjónar þörfum þeirra best.“
Þjónustar banka
Lúðvík segir Wincor Nixdorf ekki
síður hafa átt velgengni að fagna
í framleiðslu á Wincor Nixdorf
hraðbönkum, sjálfsafgreiðslu-
kerfum og hugbúnaði frá Wincor
Nixdorf. „Miðað við þau viðbrögð
sem við höfum fengið á búnaði frá
þeim er ég ekki í nokkrum vafa um
að tækin eigi eftir að fá glimrandi
góðar viðtökur hérlendis. Enda
gæði út í gegn.“
Viðhald og viðgerðir
Optima heldur einnig úti öflugri
eftirlits- og viðhaldsþjónustu í
húsakynnum sínum að Vínlands-
leið 6-8. „Þar kemur að góðum
notum áralöng reynsla í þjónustu
og viðhaldi á f lóknum tækjum,“
bendir Lúðvík á og tekur fram að
fyrirtækið hafi yfir að ráða starfs-
mönnum með mikla þekkingu og
getu á því sviði. „Sem betur fer eru
þetta þó allt saman vönduð tæki
og viðskiptavinir þurfa því sjaldn-
ast að hafa áhyggjur af miklu við-
haldi.“
Hjá fyrirtækinu starfa á þriðja
tug starfsmanna á sviði sölu og
tækniþjónustu. „Þetta er öflugur
hópur sem leggur áherslu á hraða,
fagmennsku og persónulegt við-
mót og þjónustu,“ segir Lúðvík og
hvetur að lokum sem flesta til að
hafa samband og kynna sér betur
fyrirtækið, vörur þess og þjónustu
á heimasíðu Optima á slóðinni
www.optima.is. Einnig að hafa
beint samband í síma 588-9000.
WINCOR NIXDORF kassakerfi
– gæði og fagmennska út í gegn
Fyrirtækið Optima að Vínlandsleið 6-8 sérhæfir sig í sölu á kassakerfum, sjóðsvélum og tilheyrandi vörum frá þýska fyrirtækinu Wincor Nixdorf.
Wincor Nixdorf hefur verið leiðandi í sölu kassakerfa og hugbúnaðar auk hraðbanka og búnaðar fyrir banka og fjármálafyrirtæki í 35 ár.
„Tækin frá Wincor Nixdorf eru framleidd með langan endingartíma í huga og eru mjög vönduð í alla staði, enda brýnt að til dæmis
kassakerfi séu örugg í notkun þar sem notendur vilja ekki lenda í vandræðum í miðri sölu,“ segir Lúðvík Andreasson sölustjóri
kassakerfa hjá Optima. MYND/GVA
Að sögn Lúðvíks er hægt að fá Wincor Nixdorf kassakerfin í nokkrum útfærslum eftir
fyrirhugaðri notkun; sem sambyggðan snertiskjá og tölvu og svo sem sjálfstæðan
snertiskjá og sjálfstæða tölvu.